Monday, December 20, 2010

20. desember

Við kveikjum fjórum kertum á;
brátt kemur gesturinn
og allar þjóðir þurfa að sjá
að það er frelsarinn.

bjugnakraekir.jpg (49817 bytes)

Níundi var Bjúgnakrækir,
brögðóttur og snar.
Hann hentist upp í rjáfrin
og hnuplaði þar.

Á eldhúsbita sat hann
í sóti og reyk
og át þar hangið bjúga,
sem engan sveik.


Þá er ég búin með prófið mitt og ég fékk hvorki meira né minna en 95% :D s.s 9,5 á íslenskum mælikvarða ;D. Ég er alveg í skýjunum og er ekkert smá ánægð :D.

Annars áttum við góðan dag í g´r, f

orum í Brooklyn Tabernacle kirkjuna og sáum þar jólasýningu sem var bara mjög skemmtilegt :D. Í dag er svo allir að gera sig til að fara og sjá jólasýningu í manhattan sem var keyft miða á fyrir löngu síðan :D. Davíð þarf víst eitthvað að vinna eftir sýninguna þannig að við erum eiginlega búin að plana að fara og versla það sem vantar af jólagjöfum :D.

En ég sendi bara knúsa heim og er svo þakklát í alla staði fyrir allt :D.

Elska ykkur og Guð veri með ykkur :D.


Fjóla og co

2 comments:

Helga said...

Vá, æðislegt, til hamingju! Skemmtið ykkur vel í dag! Sendi knúsa <3

Anonymous said...

Innilega til hamingju aftur Fjóla glæislegur árangur bjóst svo sem ekki við öðru ;)

Kristín