Thursday, April 23, 2009

Íbúðaleit :(

oh það gengur ekki vel að finna réttu íbúðina frir okkur. Ég er búin að vera að skoða þetta í dag og hringja og tala við fólk og mér finnst ekkert ganga. Það er altaf einhvað sem vantar annað hvort of dýrt, eða of lítil, eða of langt í burtu eða uppfyllir ekki gæludýrakröfur og þið vitið hvað Moli skiptir mig miklu máli og svo verður að leifa að fá annan hund því það kemur ekkert annað til greina í framtíðinni.
En vildi bara deila þessu með ykkur og biðja ykkur um að hafa okkur í bænum ykkar að íbúðin fynnist og hún hafi allt það sem við þurfum.
kv Fjóla og Moli

3 comments:

Helga said...

Ég hef ykkur bænum mínum að vana Fjóla mín. Ég efast hins vegar ekki um að þið eigið eftir að fá frábæra íbúð. Ég hef verið hræðileg að blogga undanfarið, það hefur bara verið brjálað að gera hjá mér. En ég ætla að reyna að henda inn bloggi í dag eða á morgun, og helling af myndum.
Hjartans kveðjur og knús frá mér og Fróðamús.
P.S. Ég sótti afmælispakkann frá þér á pósthúsið í gær, get ekki beðið eftir að opna hann :D

Anonymous said...

Æ vonandi finnið þið einhverja frábæra íbúð sem hentar ykkur fulkomlega :D

Knús Kristín

Mamma og Pabbi! said...

Við erum sannfærð um að rétta íbúðin finnst fljótlega, hún er bara ekki á lausu akkúrat núna.