Sjöundi var Hurðaskellir, sá var nokkuð klúr, ef fólkið vildi í rökkrinufá sér vænan dúr. Hann var ekki sérlegahnugginn yfir því, þó harkalega marraðihjörunum í. Thursday, December 18, 2008
18. desember
Sjöundi var Hurðaskellir, sá var nokkuð klúr, ef fólkið vildi í rökkrinufá sér vænan dúr. Hann var ekki sérlegahnugginn yfir því, þó harkalega marraðihjörunum í. Þá er litla krúttið komið til mín eftir langan dag hjá honum í gær að bíða eftir að fá ömulega sprautu :(. Hann er algjört ljós þessi hundur í alla staði, ég vil helst ekki leifa honum að fara neitt han er alveg eins og hungur mans, mjög rólegur og yfirvegaður ekki hræddur við neitt, sýnir Mola undirgefni en samt áhuga og fór að sofa í búrinu sínu eftir að hafa gefið frá sér smá væl tíst í mestalagi 30 sek. Ég fór ekkert með hann út að pissa í nótt og hann pissaði ekkert inni ógeðslega duglegur :D. Núna er Moli í fanginu hjá mér þar sem hann er að passa að sér verði ekki skilað verður voðalega lovy dovy þegar maður er með einhvern annan sem fær mikla athyggli enda kanski eðlilegt ;) og litli liggur hjá okkur hinumegin í sófanum búin að vera að naga bein og er núna svo rosalega sibbinn að hann ætlar að taka smá lúr ;).
Dagurinn í gær var TROÐINN!!! Strax eftir vinnu náði ég náttúrulega í litla og finnst okkur í minni fjölskildu að hann ætti að heita Jökull eða Hnoðri og ég verð að viðurkenna að Hnoðri passar svo við hann svona loving og æðislegur hvítur hnoðri. Kanski að hann ætti að heita Jökull Hnoðri ;). Ísi kom líka upp vegna þess að hann er rosalega ísbjarnalegur með kolsvart nef og svartar loppur og svo svona hvítur ;9. En nóg um það, við fórum svo öll heim til pabba og mömmu og borðuðum fisk og skárum út laufabrauð áður en við kíktum svo hinumegin við götuna til Jóhanns frænda og steiktum allar kökurnar. En þegar þangað var komið var sko HUNDA STUÐ en þegar ég var komin með mína tvo voru hundarnir orðnir 5. 3 Chihuahua Coco, Moli og ónefndi hnoðrinn, Bordercolli blanda Sól og Langhundur Nígo. Litli var sko ekkert hræddur þrátt fyrir að lætin og æsingurinn og spennan væri mikil og stóð sig eins oghetja. Ég hélt þó nokkuð á honum samt bara svona til að gefa honum smá brake ne ég var ekkert smá stolt af honum rosalega duglegur. Nígó er bara hvolpaskott um 4 mánaða oghann var alveg í Mola allan tíman sem gerði ekki Mola mjög kátan en það var svos em allt í lagi hann gafst upp á endanum ;).
Moli var rosalega kátur að fá að hitta ein af sínum uppáhalds vinum hann Coco þannig að það var stuð hjá mínum. Við Davíð fórum svo heim rétt fyrir 10 og fórum svo að sofa um 12.
En í dag ætla ég að kíkja út með Mola og litla og sjá hvað hann er duglegur að labba og svo fer ég í vinnuna kl 1 og losna kl 3:30. Litli og Moli verða þá bara heima einir á meðan en svo kemur Davíð og sækir þá og við förum í smá Hagkaupsferð, hver veit nema ég laumi bara litla inn með mér ;).
Svo er HELGA AÐ KOMA HEIM Í DAG!!!!!!!!!!!!!!!! Hún kemur svo til mín líklega um hálf 5 og nær í litla krútt.
í kvöld er svo jólahittingur hjá Margréti Ólöfu kl 6:30 og ætlum við Davíð að mæta þangað. Ég verð bara að sjá til hvort ég komist í hundafimina en það verður þá bara ða hafa það ef ég næ því ekki. Ætli ég kíki svo ekki á Helgu seinna í kvöld finnst það mjög líklegt ;).
En nóg í bili, Guð blessi ykkur og varðveiti og munið það eru bara 6. dagar til jóla :D.
En látum myndirnar um rest.
Wednesday, December 17, 2008
17. desember
Sá sjötti, Askasleikir,var alveg dæmalaus. Hann fram undan rúmunumrak sinn ljóta haus. Þegar fólkið setti askanafyrir kött og hund,hann slunginn var að ná þeimog sleikja á ýmsa lund.Litli voffin kom ekki í gærkvöldi en ég næ í hann hjá mömmu hennar Helgu í dag eftir vinnu og verður gaman að hafa hann hjá okkur.
Það var nóg að gera hjá okkur í gær. Davíð kláraði síðasta prófið sitt í Háskólanum, við pökkuðum í 4-5 kassa, tókum til fyrir jólin hérna heima, fórum til afa og ömmu í mat og svo komu Jón og Marisa í heimsókn og við horfðum á Home alone sem var mikið stuð.
Í dag er svo næst síðasti vinnudagurinn minn og hlakka ég mikið til að klára þetta. Í kvöld er svo laufabrauð hjá Jóhanni frænda og ætlum við að muna að taka myndavélina með og taka myndir ;). Annars er tölvan mín leiðinleg þessa dagana þannig að ég er í Davíðs tölvu núna en vonandi getur pabbi lagað hana, ég er alveg handalaus án hennar.
Á morgun er svo síðasti vinnudagurinn og..... HELGA KEMUR HEIM :D!!!!!
Við Davíð annars settumst niður og skipulögðum næstu tvær vikur og við erum nánast upptekin öll kvöld mjög upptekin.
En nóg um það Guð elskar þig og Jesús elskar alla ;) munið bara 7. dagar til jóla :D ég er að SPRINGA úr spennu!!!!
Tuesday, December 16, 2008
16. desember
Sá fimmti, Pottaskefill,var skrítið kuldastrá. Þegar börnin fengu skófirhann barði dyrnar á. Þau ruku' upp, til að gá aðhvort gestur væri á ferð. Þá flýtti 'ann sér að pottinumog fékk sér góðan verð. Það er sko mikið búið að gerast síðan í gær. Ég er að fara ða fá til mín 5 hunda. Núna kl 10 koma Dýri, Fíóna og litla barnið þeirra (Chihuahua) en það er bara klóaklipping. Kristín ætlar svo að koma með Arisi kl 10 líka og bíða bara meðan ég klára hina. Ég fæ svo Chihuahua og Peking blöndu um 2 leitið en er að vonast til þess að ég geti beðið hana að koma kl 1 sé hvort hún svari mér. Davíð er svo að fara í síðasta prófið sitt eftir hádegi í dag og þá byrjar bara alsherar jólatiltekt og kassa pakkanir og tösku pakkanir og fleira og fleira.
Ég er svo það heppin að fá að hafa í heimsókn hjá mér litla krúttið sem systir hennar Helgu vínkonu fær í jólagjöf. Hann kemur til mín í kvöld og við Moli förum svo með hann til dýra á morgun kl 10:30 í hundaæðissprautuna vegna þess að það þurfa að líða 21 dagur áður en má senda hann út til Danmerkur en þar á maría systir Helgu heima og hún kemur of seint til landsins til að gera það sjálf. Ég hlakka bara heilmikið til að sjá hvernig litli stendur sig og hvernig Moli tekur við honum því það er jú planið að fara að bæta við sig hér á þessum bæ og draumurinn er að frá sér annan Chihuahua rakka.
Litli gutti fer svo eftir sprautuna í pössun til mömmu Helgu meðan ég er í vinnunni og svo fær hann að koma með okkur í laufarbrauð hjá Jóhanni frænda á miðvikudagskvöldið. Á fimmtudaginn er ég að vonast til að losna úr vinnunni kl 15:30 svo hann þurfi ekki að vera of lengi einn heima en ég á eftir að heyra frá yfirmanninum mínum um það þar sem hún hélt að ég ætlaði að vinna fram í janúar sem er náttúrulega bara algjört bull og misskilningu þar sem ég hef engan tíma til þess vera að fara að flytja út.
Helga lendir svo kl 16 á fimmtudagin og þá myndi hún bara koma og ná í litla skottið heim til mín.
Ég ætla að fara að gera til fyrir hundana, en Guð veri með ykkur og munið það eru bara 8. dagar til jóla :D
Kv Fjóla og Moli
Monday, December 15, 2008
15. desember
Sá fjórði, Þvörusleikir,var fjarskalega mjór.Og ósköp varð hann glaður,þegar eldabuskan fór.Þá þaut hann eins og eldingog þvöruna greip,og hélt með báðum höndum,því hún var stundum sleip. Davíð er farinn í næst seinasta prófið sitt LOKSINS og svo er hann búinn á morgun. Ég vaknaði í gær morgun við mikla fiskibollu likt enda voru pabbi, mamma og afi á fullu að steikja fiskibollur úr gamla fiskinum sínum og svo er bara málið að fara klifjaður út af fiskibollum ;).
Ég keyfti síðustu jólagjöfina í gær og VÁ hvað það er mikill léttir. Núna á ég bara eftir að bæta við einhverju smá sem ég get gert í dag eða kanski frekar á morgun og svo auðvita afmælisgjöf handa Davíð.
Við Moli erum hérna vöknuð... já eða ég, fyrir allar aldir (eða allavegana á mínum mælikvarða) þar sem hún Tara hennar Maríönnu er að koma í snyrtingu. Hún er Silky Terrier og á bara rétt að klippa frá augum og laga eyrun og svo bara jólabað og sætleiki.
Núna eru bara 4 vinnudagar eftir hjá mér og vá hvað mig hlakkar til að komast bara í LANGT frí og vinna bara í því að fá fólk í partý og heimsóknir og að flytja.
Í dag er annars ekkert spennó að gerast hjá mér nema bara vinna. Ég kláraði jólasökkin hans Davíðs í gær og þarf bara núna að gera nafnspjaldið sem er soldið flókið því ég þarf að gera nafnið fríhendis veit ekki alveg hvernig ég á að gera það.
En annars bið ég Guð um að blesa ykkur og varðveita og þakka honum fyrir góð bænasvör. Einnig minni ég á að það eru bara 9. dagar til jóla (komin niður í 1 tölu :D)
Kær kveðja Fjóla Dögg og Trölli Moli ;)
Sunday, December 14, 2008
14. desember
Stúfur hét sá þriðjistubburinn sá.Hann krækti sér í pönnu,þegar kostur var á.Hann hljóp með hana í burtuog hirti agnirnar,sem brunnu stundum fastarvið barminn hér og þar.Tíminn líður og það styttist í jólin sem er nú ekki leiðinlegt skal ég segja þér. Það eru bara 4 dagar í Helgu, bara 10 dagar til jóla, bara 16, dagar í 24. ára afmæli Davíð s og Kveðjupartýið, bara 22 dagar þangað til Davíð flytur út og ég á 25. ára afmæli og bara 26 dagar þangað til ég og Moli flytjum út.
Ég var alveg á fullu með Kristínu frá 11-að verða 4. Við fórum á Pro pac útsölu og fengum nammi handa voffunum á mjög góðu verði. Eftir það skelltum við okkur í hressandi göngu kringum Vífilsstaðarvatn (held ég að það heiti) og drifum okkur svo að skila voffunum heim, kaupa smá gotterí og fara í jólaföndur með Hundafimideildinni. Það var boðið upp á að föndra á kerti og á sápur. Kristín gerið 2 kverti og tvær sápur en ég hélt mig bara við að gera jólasokkinn minn.
Eftir föndrið fór ég svo og hitti Marisu í Smáralindinni og við kíktum smá í búðir en enduðum fljótlega heima hjá mér að horfa á Santa Claus þar sem við höndluðum ekki alla þessa mannamergð í Smáralindini á laugardegi.
Við fórum svo í pízzu til pabba og mömmu þar sem Hlynur og Dísa voru líka. Hlynsi mætti grautfúl þar sem þau hefðu verið að skoða jólatré og ekkert var nógu fullkomið fyrir Hlynsa ;). Við fórum því öll niður í garðheima og hjálpuðum Dísu að sannfæra Hlyn um ða kaupa jólatré sem tókst og núna held ég að hann sé bara nokkuð sáttur að vera búin að þessu.
Ég fór svo í Hagkaup að kaupa smá nammi handa Davíð og kíkti svo til pabba og mömmu að horfa á Svínasúpuna. Davíð kom svo og náði í mig um 12 leitið og ég fór heim og eiginlega rotaðist strax.
En í dag ætla ég líklega að kíkja eitthvað í Smáralindina eða Kringluna og klára bara alfarið þessi jólainnkaup nenni ekki að bíða lengur með þetta. Ég þarf svo að hjálpa jólasveininum eitthvað að finna eitthvað sniðugt í sokkinn handa Davíð en Kertasníkir biður alltaf um hjálp frá mér ;).
Guð veri með ykkur í öllu því sem þið gerið og munið það eru bara 10. dagar til jóla :D :D
Að lokum fáið þið að sjá myndr úr göngunni okkar Kristínar sem við fórum í í gær í gullfallegu verði en það var ískalt.
Aris elskar snjóinn og er annaðhvort að velta sér uppúrhonum eða með ndlitið á kafi ofaní honum eins og má sjá á þesari mynd
Moli fallegi með Jólaólina sína og í jólapeysunni sinni.
Sóldís var ekki sátt aðvera að fara út að labba í þessum kulda þannig að hún fékk far hjá mömmu mest alla leiðina ;).

Veðrð var alveg gull fallegt eins og sjá má hér og tunglið var á lofti allan daginn í gær.
Saturday, December 13, 2008
13. desember
Giljagaur var annar,með gráa hausinn sinn.- Hann skreið ofan úr giliog skauzt í fjósið inn.Hann faldi sig í básunumog froðunni stal,meðan fjósakonan áttivið fjósamanninn tal. Þá er Giljagaur komin til byggða og 13. desember mættur á svæðið. Ég, pabbi og mamma gerðum mikið afrek í gær, fórum í gegnum alla skápasamstæðuna hérna heima og settum í kassa það sem fer ekki út og það sem fer út seinna. Við vorum alveg hellings tíma að þessu en það sem mér kveið mest semsagt þessi skápasamstæða er hér með BÚINN!!!!
Það er jólaföndur með Hundafimi fólkinu í dag kl 13 og erum við Kristín að plana smá göngu fyrir það eða um 11. Ég þarf að fara út í búð og kaupa smákökur eða eitthvað gott á jólaborðið og taka með föndrið mitt ;) gaman gaman.
Annars er ég eitthvað slöpp af hvefi og með þurran háls :(. Helga vinkona fer alveg að fara að koma og þá verður sko gaman. Mikið að gera og mikið stuð.
Það styttist heldur hratt í að við flytjum út og tíminn hleypur frá okkur. Pabbi og mamma eru búin að kaupa miða út til USA og fara 16. janúar og koma heim 9. ....MARS :D, þannig að við höfum nægan tíma með þeim þarna úti sem er mjög gott.
Annars ætla ég að reyna að klára bara þessi jólagjafa innkaup í dag ég nenni ekki að bíða lengur með þessar síðustu gjafir, en ég sé til hvað ég geri.
Kellingin með poodle hundana í gær mætti ekki og lét mig ekki vita eða neitt alveg rosalega lélegt og dónalegt finnst mér en ég náði þá að gera allt það sem ég gerið í gær sem betur fer.
Guð blessi ykkur og munið það eru bara 11. dagar til jóla
Fjóla og Moli
p.s. ég er búin ða vera í sambandi við þennan Chihuahua ræktanda sem er rétt hjá mér endilega kíkið á síðuna. http://www.limarchihuahuas.com/index.html
Friday, December 12, 2008
12. desember

Stekkjarstaur kom fyrstur,stinnur eins og tré.Hann laumaðist í fjárhúsinog lék á bóndans fé.Hann vildi sjúga ærnar,- þá var þeim ekki um sel,því greyið hafði staurfætur,- það gekk nú ekki vel.
Þá er Stekkjastaur fyrsti sveinninn komin til byggða og örugglega mörg spennt börn sem vöknuðu þennan morgunin að gá hvað þau fengu gott í skóginn.
Í gær pakkaði ég í stóran kassa til að fara með til tengdó og ætla ég að reyna ða vera dugeg í dag líka þrátt fyrir að ég sé að fara ða fá tvo Poodle í klippingu. Ég ætla að reyna ða vera eins fljór og ég get með þá. Kristín bað mig um að koma með sér í göngu kl 5 í dag og ætlum við Moli svo sannarlega ða gera það enda langt síðan síðast.
Við Davíð fórum eins og ég var búin að segja ykkur frá á Fólkið í Blokkinni með Berglindi og JónÓ og var það heljarinnar stuð og ég naut þes alveg jafnvel í seinna skiptið. Það var samt alveg sturlað veður þegar við gengum út og svo þegar við komum heim komumst við að því að það hefði verið búið að kalla út aðstoð 210 sinnum í gær... SÆLL!!!
Annars er bara a ðslappa af um helgina og hafa það kósý og bíða eftir þriðjudeginum því þá er Davíð búinn í prófum YESSS!!!!!
En ég verð að fara ða gera mig til fyrir hundana og fá mér morgunmat en Guð blessi ykkur og munið það eru bara 12. dagar til jóla ;)
Fjóla og Moli
Thursday, December 11, 2008
11. desember
Það er ekki markt sem ég hef að segja í dag. Eftir vinnu í gær fórum við Davíð og kláruðum það sem eftir var af jólagjöfum og fórum svo í mat til pabba og mömmu. Við ræddum soldið flutningin út til USA og svona og ælta ég að hringja þangað í dag og spurjast fyrir um hvað það kostar að taka með sér hjól. Einnig þarf ég að pannta tíma hjá dýra fyrir Mola því hann þarf að vera ormahreinsaður rétt fyrir fugið. Helga mín er alveg að fara að koma og ég hlakka svo til þess.Í kvöld erum við svo að fara í leikhús á fólkið í Blokkini og hlakka ég mikið til þess enda búin að sjá sýninguna einusinni og get ekki beðið að sjá hana aftur.
Davíð fer að vera búinn með þessi próf sín en þeim líkur á þriðjudagin YESSSS!!!! Þá er bara að fara á fult í að pakka niður í kassa og töskur og bara tæma íbúðina sem fyrst. Sjálf er ég að spá í að pakka í eina tösku núna á eftir og setja eitthvað í kassa.
En ég bið en og aftur Guð að bassa ykkur og halda utanum ykkur þegar ykkur líður illa og munið það eru bara 13. dagar til jóla :D
Kær kveðja Fjóla og Moli
Wednesday, December 10, 2008
10. desember
Þá erum við komin í tveggja stafa tölu yesss ;D. Ég tók því rólega fyrripartinn þar sem afbókaður var tími hjá mér en ég fékk þá bara perlu hennar Huldu frænku til mín aðeins fyrr. Ég var alveg rúmlega 3 tíma með hana og var alveg búin þegar hún var tilbúin.Moli var svo kósý og vildi vera hjá okkur allt kvöldið í gær sem var bara gaman og svo fallegur enda tók ég nokkrar myndir af honum sem þið fáið að sjá.
Í gærkvöldi bakaði ég 3 döðlubrauð fyrir kveðjupartíið okkar Davíðs og Mola þannig að þá er það búið og gert.
Ég er að fara í vinnuna núna á eftir og svo ætla ég í göngu klikkan hálf 8 með Kristínu, Önnu og Sunnevu þannig að það verður stuð hjá voffunum okkar. Marisa vinkona kmur svo líklega hingað til mín í kvöld eða ég til hennar að horfa á Americas Next Top Model :D.
Guð varðveiti og blessi og sé ávalt með ykkur alla daga og munið það eru bara 14. dagar ti. jóla ;D
Fjóla í jólastuði og Moli (sofandi ;D)

Jæja hér koma myndir af Perlu. Kom in me mikin lubba en alltaf jafn sæt :D
Tuesday, December 09, 2008
9.desember
Þá er bara kominn 9. desember úff hvað það fer að stuttast í jólin :D. Eins og ég sagði ykkur í gær þá átti pabbi afmæli og við kíktum til hans ásamt Hlynsa og Dísu í mat. Við Davíð og Moli vorum ekkert smá dugleg og löbbuðum til þeira og aftur til baka ekkert smá stolt af okkur ;D. Við horfðum á 11 þáttin af Dexter og men ó men hvað hann var rosalegur. Helga ég býst við að ræða hann með þér von bráðar þegar þú ert búin að sjá hann ;).Ég átti að fá tvo hunda til mín í dag í snyrtingu en einn er búin að baila þannig að Perla hennar Huldu frænku verður eini kúninn í dag, sem er kanski ágætt nema það að ég hef altaf gaman á að fá Papillona þeir eru svo auðveldir og auðvelt að gera þá fína og flotta. Annars er ekkert planað í dag hjá okkur skötuhjúunum. Davíð er að læra sem er gott og ég held ég fari kanski bara í góða langa göngu með Mola eða sé hvort Kristín og gengið nenni í göngu í dag.
Ég er svo stolt af mér að vera búin að kaupa nánast allar jólagjafir og þær sem éghef ekki keyft enn er ég búin að ákveða. Allt er pakkað inn og tilbúið að fara á rétta staði.
Það er eitthvernvegin enginn fílingur hjá mér að baka smákökur eða neitt þar sem Davíð má ekki borða neitt svoleiðis þannig að égheld það verði bara einginn smákökbaxtur í ár eins sorglegt og það hljómar :(. Ég þarf samt að baka döðlubrauð og svona fyrir kveðjubartýið okkar Davíðs og Mola þannig að það er spurning hvort ég geri það í dag?
En að lokum Guð belssi ykkur og munið það eru bara 15. dagar til jóla ;)
Kv Fjóla og Moli
Monday, December 08, 2008
8. desember
Pabbi minn á afmæli í dag :D!!! Við Davíð gáfum honum gjöf í gærkvöldi og skelltum okkur svo í bíó með Marisu á Four Christmas sem var bara mjög skemmtileg. Við vinkonurnar Anna og Kristín skelltum okkur í göngu með stóðið okkar í Guðmundarlundi og tók ég myndavélina með aldrei þessu vant og ætla ég að skella inn nokkrum myndum hér. Hundarnir voru í ekkert smá góðu skapi og allir léku sér saman allan tíman.Í dag fer ég í vinnuna og hlakka ekkert sérstaklega til þess eins og venjuega í desember en ég á erfitt með að mæta í vinnu þegar það fer að nálgast jólin. Davíð min er að fara í vinnuna núna og kemur svo heim í hádeginu til að læra.
Í gær snyrti ég Mola minn klippti smá á honum skottið, buxurnar, eyrnaharin og snyrti hér og þar og er hann svo fínn og sætur þótt ég ætla aðeins að lagfæra hann þegar nær dregur jólum. En þið fáið að sjálfsögðu myndir af honum líka núna.
Hérna er kallinn ný komin úr göngunni og er þreyttur og sjúskaður
Hér er svo ein af andlitinu soldið grömpí varð nefnilega ða horfa fram fyrir þessa mynd og þeir sem þekkja Mola vita að hann er ekki hrifinn af því að horfa beint í myndavélina ;)
Svo druslulegu buxurar og skottið
Hér eru svo buxurnar og skottið eftir snyrtingu allir slitnir endar farnir. Hann hefur altaf verið með svona híung eins og ég kýs að kalla það á lærunum og ég tók það af og sést það best á þessum tveim hér fyrir ofan
Hér er svo hann allur en ég tók náttúrlega loppurnar líka en ef þið stækkið myndina getið þið séð betur hvað þær eru fínar
og hér sjást svo eyrnahárin og framhliðin á honum :D. Ég er allavegana mjög ánægð með hann og sé hellings mun og get ekki beðið að baða hann og gera hann sætan aftur rétt fyrir jól :D.
Þá eru það myndir úr göngunni hér eru vinirnir Moli og Fríman en Moli er ekkert smá hrifin af honum.
Hérna er svo Prinsinn minn
Eldur að sitja fínn bara sætt enda algjört sjarmatröll þessi hundur ;D
Moli að bíða eftir að hlaupa á þann næsta sem hleypur framhjá
Allir saman að þefa og sniffa
Aris litla prinsessa bara sæt eins og alltaf
Aris að tékka á okkur
Moli fór og tékkaði á þessari örðu þarna og allir hinir eltu svo kallaði ég á Mola. Fyrst kom hann hlaupandi....
Svo komu allir hinir í röð Munið að Guð elskar ykkur og er ávalt hjá ykkur. Það eru bara 16. dagar til jóla, bara 10 dagar í að helga komi sem gerir það að það eru bara 12 dagar þangað til ég , Kristín, Helga og allir voffarnir förum í bústað YESSS!!!
Sunday, December 07, 2008
7. desember
Í dag er svo spurningin hvort við förum óg reynum að finna jólaspariskó frir Davíð en hann vill víst bara fá reimar í sína eld gömlu sem hann fékk þegar hann fermdi sig held ég.
Ég hef tekið ákvörðun um að snyrta Mola minn í dag og klippa smá rassahár, skott, eyru og raka og klippa þófa. Ég set að sjálfsögðu fyrir og eftir myndir af honum það þarf bara ða vekja hann er soldið mikil svefnpurka elsku kallin enda mikið búið að vera að gera hjá honum síðastliðna daga.
í dag eru líka Stubbadagar á dýralæknastofunni í Grafarholti og eigar Rauðakross hundar að vera heiðursgestir og er ég að spá í að mæta með Mola minn þangað spurja Kristínu hvort hún nenni ekki með mér ;).
Ég bið þá að lokum Guð að blessa ykkur eins og alltaf og að hann meigi vera nálægt ykkur og okkur Davíð og munið það eru bara 17. dagar til jóla :D
Saturday, December 06, 2008
6. desember
Þá er komin 6. desember. Ég setti upp jólaþorpið já pabba og mömmu og stein gleymdi auðvita myndavél til að setja inn myndir af því en það gerir ekert til get sett það inn seinna. Svo skelltm við okkur í búðarráp og ég keyfti Nóakonfekt á spottprís og það í Bíkó af öllum stöðum.Núna sit ég hérna uppi í rúmmi á laugardagsmorgni kl 9 að bíða eftir að fá Pomma til mín í snyrtingu. Moli og Davíð lyggja hérna við hliðina á mér alveg meka sæir og stein sofandi.
Við Kristín fórum að skoða hvolpana hja Ólöfu og vá hvað þær voru gegjaðar litlu dúllurnar. Ég fer aftur og þá man ég vonandi eftir myndavél ;D.
Ég veit svosem ekkert hvað skal gera af sér í dag en vonandi verður það eitthvað skemmtilegt þar sem það er nú laugardagur ;D.
Guð blessi ykkur og munið bara 18. dagar til jóla :D.
Fjóla jóla og Moli Foli ;)
Friday, December 05, 2008
5. desember

Fyrsta jólakortið er komið í hús og hver á vinninginn..... GUGGA!!!!!! Talandi um jólakort þá fórum við Davíð og keyrðum út restina af jólakortunum en það eru þó nokkur sem á eftir að senda vegna heimilisleysis eða eitthverju öðru, það er bara svoleiðis syundum. Við kíktum svo til pabba og mömmu þegar við vorum búin og var Brandur þá í heimsókn hjá þeim sem var bara aldeilis ágætt.
Davíð stóð sig vel í prófinu sínu þrátt fyrir að hann var að hafa einhverjar áhyggjur af því. Við erum búin að kaupa eða ákveða jólagjafir handa öllum sem er mikill léttir.
Í dag ætla ég eitthvað að reyna að hitta Marisu þar sem hún liggur heima eftir jakslatöku og er alveg að drepast. Ég var líka búin að lofa mömmu að koma og setja upp jólaþorpið. Í kvöld ætlum við Kristín líka ða kíkja á hvolpana hjá Ólöfu þar sem ég var svo þreitt og slöpp í gær kvöldi. Vonandi komumst við líka í göngu.
En ég hef ekkert meira að segja ykkur en munið að Guð elskar ykkur og hann vill vera vinur ykkar og að það eru bara 19 dagar til jóla :D
Fjóla og Moli
Thursday, December 04, 2008
4. desember
Þá er þetta allt búið og rosalega er röddin sátt við það enda búin að vera á fullu í þrjá daga. Fyrri tónleikarnir voru hálfgert flopp hjá okkur það fór þó nokkuð úrskeiðis, Edgar byrjaði ekki á Gleðilega jól laginu þannig að það þurfti að stoppa og byrja aftur næstum því tvisvar. Snúran datt úr miknum hjá Kiddý þegar hún átti að burja að syngja, það klúðaraðist eitthvað í gloríulaginu sem hefur aldrei gerst og eitthver önnur smáatriði og það tíbíska við það er að Jóhann frændi var akkúrat á þeim tónleikum ásamt Krúsu konunni sinni. En nóg um það seinni tónleikarnir voru þá líklega þeir bestu því þá var ekkert sem við þurftum að alda eftir og við gáfum allt sem eftir var.Í dag hjá mér er vinna í bakaríinu og svo hundafimi í kvöld. Við Kristín ætlum líklegast að Kikja á Ólöfu í kvöld en það er ekki alveg komið á hreint og sjá hvolparassgötin.
Ég fór í Perluna í gær með pabba og mömmu og keyfti mér nokkra diska en ég fann Snorra Idol stjörnu á 99 KR SÆLL og svo Luxor með Edgari á 199 KR ég þarf að stríða honum aðeins með það ;D. Einnig keyfti ég jóladiskinn með Baggalúti ekki þennan glænýja heldur hinn og hann er bara yndislegur. Ég var samt að heyra eitt af jólalögunum á þeim nýasta og vá hvað það er mikil snild.
En ég hef það ekki lengra í dag en ég bið Guð að bassa ykkur og varðveita og munið það eru bara 20. daga til jóla ;D
Kær kveðja Fjóla og Moli
Wednesday, December 03, 2008
3. desember
Í dag þarf ég svo ekki að vera mætt niður í Fíló fyrr en kl 18 sem er bara klukkutíma fyrir tónleika. Ég ætla því að skella mér út að kaupa jólagjafir handa þó nokkrum ef mér text það og vonast náttúrulega til að getað klárað sem flesta.
Annars er ég og Davíð alveg á nálum við erum svo spennt yfir Dexter en það er nú alveg annað mál útaf fyrir sig ;).
Ég hef það ekki lengra að sinni en bið Guð að varðveita og blessa ykkur öll og munið það eru bara 21. dagur til jóla ;).
Kær kveðja Fjóla Dögg
Tuesday, December 02, 2008
2. desember
Þá er fyrsti dagur tónleika liðin og spennufallið búið. Allt gekk vel seinni voru þó betri en fyrri. Í morgun fékk ég hund til mín í snyrtingu og gekk það svona mis vel þar sem greyið var svo skít hræddur við að láta snerta á sér fæturnar en hann er farin þannig að þetta hefr þó reddast eitthvernvegin hjá okkur Davíð en ég varð að fá hann til að hjálpa mér að halda honum.
Ég þarf að mæta kl 15 í dag niður í Fíló þar sem í kvöld verða tónleikarnir teknir upp og þá þarf að sminka allt gengeð og það tekur sinn tíma.
Ég sé ekki framá að Moli minn koist í labb í dag neða Davíð skelli sér með hann sem gæti nú vel verið því hann er að reyna að taka sig á hreifingalega séð.
En ég hef það ekki lengra í dag.
Guð blessi ykkur og munið það eru bara 22. dagar til jóla :D
Kv Fjóla og Mola mús
Monday, December 01, 2008
1. desember
Þá er kominn 1. desember. Dagurinn framundan bverður strembinn og erfiður. Ég ælta að reyna að fá hjálp hjá pabba og mömmu og fara með hjólin okkar davíðs í gýrstillingu og dekkjaumskifti þar sem eitt dekkið mit er alveg hreint sprungið í tætlur. Einig ætla ég að reyna að fara með Mola minn í góða göngu og þegar það fera að byrta. Svo klukkan 4 í dag er svo málið að vera mætt í Fíló tilbúin að syngja úr mér lungun TVISVAR s.s einusinni gl 19 og svo aftur kl 21!!!!
Við Davíð vorum að taka til og jólaskreyta já okkur í gær og er allt að verða svona ásættanlegt ja svona allavegana í stofunni ;). Ég skelli inn myndu sem fyrst af íbúðinni því hún er nú bara ansi jólaleg skal ég segja ykkur.
Davíð minn þarf að fara ða taka sig á því hann er með of hátt kólesteról þannig að nú er bara að hreyfa sig annan vern dag að minstakosti og skea niður landbúnaðar og mjólkur fitu. Ég ætla að sjálfsögðu að taka þátt í þessu með honum svo hann standi sig nú kallinn. Þetta kemur að sjálfsögðu á erfiðasta tíma því prófin eru að byra og hann hefur allt of miklar áhyggjur af öllu öðru, þið meigið biðja fyrir honum.
Guð blessi ykkur og munið það eru bara 23. dagar til jóla.
Jóla Fjóla og Jóla Moli
Subscribe to:
Posts (Atom)






Litli kall og Moli í bakgrunn







Svona lá Prinsinn hjá okkur uppi í sófa í gær með kroslagðar fætur og hafði það gott. BARA sætur!!!!
