Sunday, May 09, 2010

Moli búinn að fá nýja tösku

Já við kíktum í Petco í gær og viti menn haldið þið að ég hafi ekki fundið þessa tösku sem ég var búin að skoða MIKIÐ á netinu en ekki tímt að kaupa vegna þess að hun kostaði að mig minnir $80 eða $90. En viti menn þessi var á þessu líka hrottalega góða tilboði $17 :D. En ég vildi bara deila með ykkur þessum gleði fréttum og sýna ykkur gripinn :D.

Hérna er ein hlið

Hérna er svo önnur hlið

og svo framaná hana eða aftaná en Moli getur séð í gegn báðu megin.

Knúsar héðan held ég skelli mér út að skokka 2 hringi ;D.

Kveðja Fjóla og Moli

p.s. til hamingju með mærðadaginn til allra mæðrana þarna úti en ég gerði alvöru morgunmat handa mömmu og pabba í morgun og mamma fékk smá kort og mynd af okkur Mola í ramma :D.

1 comment:

Helga said...

Þessi taska er nottla bara snilld! Sýndist Moli bara nokkuð ánægður með hana líka :D
Það var svo gott að heyra í þér í dag, get engan veginn beðið eftir að fá þig hingað til mín eftir bara rúmar tvær vikur.
Fullt af knúsum frá mér og liðinu :p