Wednesday, June 24, 2009

Tim...

Ég ásamt Cindy og Tim
...einn af bestu vinum mínum úr hundasnyrtináminu framdi sjálfsmorð fyrir tveimur vikum síðan. Cindy vinkona mín hringdi í mig í dag og sagði mér frá þessu. Ég get mjög fátt sagt er í miklu sjokki.
Tim var alltaf frekar rólegur, sagði fátt en var svo ljúfur og góður og yndislegur og mér líkaði strax við hann fyrsta daginn í skólanum. Hann var aldrei hræddur við hundana þótt þeir létu eins og bestíur við hann, hann varð aldrei reiður og tók öllu með mikilli ró sem ég dáðist mikið af við hann. Hann var smámæltur sem var eitt að því sem var mest krúttlegast við hann.
Ég mun aldrei gleyma þér Tim og fynst svo sárt að þú sást enga aðra leið en þessa ég vildi svo óska þess að ég hefði getað gert eitthvað. Ég bið fyrir fjölskyldu þinni og vona að ég fái að sjá þig aftur.
Guð geymi þig, þín vinkona Fjóla Dögg

2 comments:

Anonymous said...

Alltaf jafn sorgelgt þegar fólk sér enga aðra leið en þessa :(

Knús Kristín

Fjóla Dögg said...

já og sérstaklega þessum strák hann var svo æðislegur