Friday, June 05, 2009

Jæja...

...kominn tími á smá blogg. Við Moli fórum í smá búðarrölt í dag nánar tiltekið Target, Dollar Tree og Pet Smart. Við náðum að kaupa eithað smotterí ekkert til að tala um. Davíð er búin aðvera að vinna í verkefni alla þessa viku nánast og er loksins farin að sjá í endan á því þannig að þá er kanski hækt að fara að gera eitthvað af þessum ótal mörgu hlutum sem þarf að gera áður en ég fer til Íslands :D. Talandi um íslandsferðina þá þarf ég að fara að skipulleggja tímanminn svo ég nái nú að hitta alla sem mig langar að hitta þannig að verið tilbúin gott fólk að fá kanski e- mail sendingu frá mér fljótlega. Annars eru pabbi og mamma að skipuleggja leikhúsferð, útilegu ferð og fjölskylduheimsóknir sem ég hlakka mikið til.
Við Davíð erum svo heppin að eiga góða að en Donna sem er með mér í bókaklúbbnum mínum gaf okkur frían mánuð hjá Netflix. Netflix fyrir þá sem ekki vita er svona fyrirtæki þar sem þú ert bara áskrifandi og borgar fast mánaðargjald, þú ákveður hvaða dvd diska þig langar að sjá. Þú færð svo einn sendan þegar þú ert búin að horfa á hann sendir þú hann til baka í umslagi sem er þegar búið að greiða fyrir og færð næsta dag annann disk. Við erum að fara að horfa á fyrstu myndina í kvöld en hún er Tropic Thunder og er með Jack, Black, Ben Stiller og Robert Downey Jr. í aðalhlutverkum.

En ég hef ekkert meira ða segja ykkur í bili nema bara Guð belssi og varðveiti ykkur öll við söknum ykkar mikið og ég hlakka til að koma heim í heimsókn :D

Fjóla og Co

2 comments:

Anonymous said...

Jejj hlakka til að sjá skipulagið :)

Knús Kristín

Anonymous said...

snilldar mynd ;) ég fór einmitt á hana í bíó í Orlando

kv Berglind