Sunday, February 15, 2009

Moli dauð þreyttur

Ég tók myndband af Mola um daginn þegar hann var alveg úrvinda af þreytu. Hann fær oft að koma uppí á morgnana eftir að hann er búin að fara út að pissa og við nennum ekki framúr alveg strax enda finnst honum ekkert betra en að kúra uppí. Stundum segi ég við hann viltu koma upp í rúm og þá stendur hann bara við rúmmið og bíður eftir því að vera lyft upp í það ;).

En njótið vel við biðjum bara að heylsa söknum ykkar allra

Kær kveðja Fjóla og Moli

1 comment:

Davíð Örn said...

Moli er alveg svakalega sætur voffalingur!!! Algjört krútt!!!