Thursday, January 15, 2009

Jæja sófasettið á leiðinni í dag

Þá erum við vöknuð þar sem við eigum vona á að fá sófasettið milli 9 og 13 í dag. Við vonumst að sjálfsögðu til að fá það fyrr en seinna svo við þurfum ekki að hanga hérna í allan dag ;). Þegar það er allt búið og gert ætluðum við Davíð að kíkja á Dog Training club of St. Petersburg og reyna ða finna hundafiminámskeið fyrir Mola. Við þurfum að byrja í eingverju og kinnast nýjum hundum og fólki til að hann verði ekki þunglindur greyjið en mér finnst ég finna á honum að hann sakni þess að leika við Arisi, Sóldísi, Fróða, Töru og aðra góða hundavini heima á Íslandi og Noregi. Ég ætla jafnvel að reynað að finna eitthvað hlýðni námskeið handa honum aukalega þar sem ég komst aldrei á hlýðni 2 á Íslandi sem mig langaði svo að gera.
En þið fáið að sjálfsögðu mynd af sófasettinu þegar það er komið í hús ekki örvænta ;).
Knús og kossar til ykkar allra
Fjóla og Moli

2 comments:

Dagný said...

Ég elska hvað þú ert ofur dugleg að blogga!! :)

Hlakka til að sjá myndir af sófanum :)

Anonymous said...

Já við söknum ykkar líka :(

Kristín, Sóldís og Aris