Friday, January 23, 2009

Hitinn hækkar og hækkar

Jæja Moli er farin að mása. Ég fór með hann út að labba í dag og hann er byrjaður að opna smá muninn enda heitasti dagurinn í dag síðan við komum hingað.
Við erum bara að hanga heima, Davíð að reyna að læra, ég að spá í að fara í bað með bók að lesa og hver veit nema við förum svo eittvað út að borða í kvöld þar sem það er föstudagur og erum við að spá í að hafa hann sem út að borða dag ;).
Nú fer að styttast í að ég setji inn myndir af íbúðinni því ég er alveg að fara að verða mjög ánægð með hana það vantar bara nokkur smáatriði.
Við ætlum að keyra til pabba og mömmu líklegast á mánudagskvöldið og ég verð þar í nokkra daga en davíð verður eitthvað styttra. Trygingarnar á bílnum eru einhvað að stríða okkur vegna þess að þeir vilja ekki viðurkenna davíð sem reyndan ökumann vegna þess að ökuskýrteinið hans Bandaríska er ekki nógu gamalt en hann tók bara prófið síðasta sumar. En Davíð er búin að vera að skoða önnur tryggingafélög og líst okkur vel á Geico og erum að hugsa að færa okkur þangað.
En nóg um það ég ætla að láta renna í bað og hafa það kósý enda er ekkert meira kósí en bað ummmm.....

4 comments:

Helga said...

Kósíkvöld, líst vel á það :D Ég er búin að blogga ;D
Knús á þig og Mola í hitanum :x

Anonymous said...

Ég verð í fríi 20-31júlí ekki besti tíminn hvorki fyrir heimsókn til þín né Helgu svo ég verð bara að taka auka frí. Mér lýst alla vega vel á maí :D Láttu mig bara vita svo ég geti beðið um frí í tíma þarf líka að skoða flugin getur munað svo miklu bara milli daga....

Anonymous said...

Hey er Geico ekki eðlu tryggingafyrirtækið ? Ég var alltaf að sjá svoleiðis auglýsingu :)

Fjóla Dögg said...

jú það er eðlan :D krúttið