Thursday, September 02, 2010

Davíð að batna

Davíð er allur að koma til. Er komin með matarlist, hitinn er að lækka og líður bara yfir höfuð betur. Við höfum haft það rólegt í dag, Davíð er búinn að vera að sækja um vinnur í Californiu þar sem hann er að fara þangað í næstu viku og vonum við svo innilega að einhver bíti á þar :S.
Ég er búin að vera að dúlla mér, fara út með Mola í labbitúr og skoða villurnar hérna í næstu götum (þvílíkt rugl) en annars er ég búin að vera að velta fyrir mér jólagjöfum og svona ;D.
Núna er Davíð að tala við bróður sinn um forsetaembættið heima á íslandi :S úff... Annars er Kolla ræktandi komin með þrjár stæðilega tíkar hvolpa og eru þær algjörar prinsessur allar black og tan sem er bara gegjað :D.
Núna er verið að velta fyrir sér hvað skal gera varðandi hvöldmat en letin er í hámarki og er spurning hvort það verði bara pönntuð pízza ;D hver veit.
En það er ekkert annað sem éghef að segja eða allavegana ekki sem ég get sagt hér eins og er ;9.

Kveðja Fjóla, Davíð og Moli

1 comment:

Anonymous said...

Þetta er svo spennandi :D

Knús Kristín