Thursday, March 11, 2010

Up

Við Davíð leigðum Up hjá Netflix og vorum að horfa á hana í dag og vá hvað hún er æðisleg ég grét nánast allan tíman. Hún er alveg rosalega falleg og hjartnæm og fyrir þá sem eru ekki búin að sjá hana þá verðið þið að gera það sem fyrst.
Annars dagurinn í dag bara búinn að vera rólegur ég fór bara í leikfimi eins og alltaf en annað merkilegt var það nú ekki :S.
Davíð er búin að læra í allan dag með hléum en við erum svona að velta fyrir okkur að fara í göngu á morgun á einhverjum góðum stað sérstaklega þar sem veðrið hérna er búið að vera alveg æðsilegt síðastliðna daga en hitinn fór í dag upp í 20°C ekki slæmt ;D. Davíð panntaði hitamæli í gær og við fengum hann núna áðan þannig að hann er kominn upp og núna vitum við hitastigið bæði inni og úti sem er náttúrulega rosa gott að vita :D.
Ég er alveg veik að fara heim til Íslands og sjá hvolpana hjá Kristínu vinkonu en það er ekki ódýrt :S. En ég fæ þá bara að fylgjast með á netinu og sjá myndir en hún er sem betur fer dugleg að taka myndir :D.

Annars sendi ég bara hlýjar kveðjur heim

Fjóla og co

4 comments:

Anonymous said...

Úff hvað ég væri mikið mikið til í að fá þig Fjóla það væri æði :D
Var að setja inn nýjar myndir :)

Knús Kristín

Helga said...

20 gráður! Vá það er svakalegt. Ég er búin að vera fagna þessum tvem plúsgráðum sem hafa stundum skriðið uppí sex síðustu daga! Væri sko meira en til í að losna við þennan snjó og fá meiri hita hérna!
En þessi Up mynd, er það teiknimynd eða???
Hlakka til að spjalla á morgun
Knúsar héðan

Fjóla Dögg said...

Já þetta er teiknimynd frá Disney og Pixel algjört æði :D.
Það var hætt við tjúa hittinginn minn á morgun vegna rigningar en það er ok ég verð samt komin á netið um morguninn :D.

Knúsar Fjóla

Fjóla Dögg said...

já Kristín kanski lofar Guð mér að kíkja í heimsókn hver veit ;D. Ég ætla allavegana ekki að gefa upp neina vona ;D

kv Fjóla