Tuesday, March 02, 2010

Skrapp bók nr. 7

Jæja það eru algjörir skrapp dagar hjá mér núna enda gerist það yfirleitt að sé sekk mér í skrappið þegar ég hef ekkert sérstagt að gera svo koma einhverjar vikur það sem ég geri ekkert skrapp :D. En ég var eitthvað hálf þung í dag og nennti ekki neinu þannig að ég settist bara við skrappið og gerði nokkrar síður. Moli fék samt að líta dagsins ljós en ég fór með hann í stuttan labbitúr í þetta skiptið svo spjallaði ég við Helgu í klukkutíma. Ég er svo núna að fara að undirbúa mig andlega og líkamlega undir leikfimi og svo næ ég í Davíð í skólan og við förum saman í íslensku hópinn.
En hér koma myndir af afrekinu mínu í dag

Nokkrar frá heimsókn tengdamömmu og Guðlaugar Maríu

Leti og læridagar hjá okkur Davíð. Svo Moli á Halloween sem póstmaður :D

Jólabasar hjá Íslendingafélaginu og amerískur fótbolti og Thanks giving hjá Veroniku og Gary

Hangikjöts kvöld hjá litlu fjölskyldunni okkar og kleinu bakstur :D

Knúsar Fjóla

No comments: