Saturday, March 06, 2010

Spila kvöld


Í gær buðum við Davíð íslensku hópnum heim til okkar í spil og spjall. Moli fékk meira að segja líka heimsókn því ein konan sem kom á tvo chihuahua hunda og einn Boston terrier og hún kom með eina af tjúa tíkunum sínum hana Phoenix sem er ekkert nema ljúfleiking upp málaður :D. Moli varð strax hrifinn enda ekki hækt annað :D.
Við spiluðum Trivial strákar á móti stelpum og borðuðum laxasalat, osta, nammi og höfðum það kósý og nutum þess að vera í góðum félagskap.
En helgin verður þó nokkuð upptekin hjá okkur Davíð en núna er ég að bíða eftir að Davíð klári tímana sína hér uppi í Georgetown Law, Moli er að lúlla hjá mér í töskunni sinni vegna þess að strax og Davíð er búin í tíma ætlum við að kíkja í Alexandríu og fara á einhverja svona írska hunda skrúðgöngu en það verða einhjverjar sýningar og svona þannig að það ætti að vera gaman :D. á leiðinni heim er svo planið að kíkja á Veroniku í skólan þar sem sonur hennar Kyle stundar nám en þar er svona crafts sala og sýning en Veronika er með bás þar og Nía dóttir hennar líka :D. Í kvöld vorum við svo að spá í að kíkja í bíó á Lísu í Undralandi en ég hlakka til að sjá hana. Á morgun sunnudag ætlum við að vakna eld snemma og fara í göngu einhverstaðar í Alexandríu en við höfum því miður ekki komist í göngu í margar vikur núna þannig að við erum að byrja að taka okkur á og vonandi getum við farið jafnvel í nokkrar í næstu viku þar sem Davíð er í spring brake fríi frá skólanum alla næstu viku. En svo klukkan 10 um morguninn á sunnudeginum er svo Chihuahua hittingur innandyra sem við ætlum að kíkja á en það ætti að verða gaman því það eru 13 mans skráðir :D. Spurningin er svo hvort við náum að kíkja en það er hittingur eftir hana þar sem allir koma með mat og deila saman og spjalla :D. Um kvöldið er svo Oskarinn sem ekki má missa af :D. Á mánudaginn er svo kvenna hittingur hjá kirkjunni en hann verður haldin heima hjá Veroniku í þetta skiptið og ætla ég pottþétt þangað :D.
Þannig að þið sjáið að aldrei þessu vant er ég alveg á haus það er svo mikið að gera :D. Næta helgi verður eitthvað svipuð þessu en þá erum við líklega upptekin bæði laugardag og sunnudag allavegana um kvöldið :D.
En nóg með það hér koma myndirnar ;D.

Moli að skoða gelluna

Phoenix sæta

Matthew og Joe hressir

Viola og Phoenix litla sæta músin

Moli tók mjög fljótlega ástfóstri við Matthew og kom sér bara fyrir í fanginu á honum ;D

Joe og Davíð

litla krúttið svo ljúg og góð og æðisleg ef hún hefði erið í boði hefði ég bara sakt já takk og tekið hana :D

:D

Moli og Matthew flottir saman

Ein af hópnum en veronika var staðin upp og var á leið út

ég og Phoenix
ég og voffarnir :D

Kær kveðja frá mér :D

2 comments:

Anonymous said...

Va hvad tetta hljomar allt spennandi og skemmtilegt :D
Pheonix er rosalega sæt :D
Knusar,
Helga og voffarnir

Mamma og Pabbi! said...

Það er ekkert lítið að gera, frábært hvað er gaman hjá ykkur. Takk fyrir myndir og allt!
B21