Thursday, March 05, 2009

Cesar rokkar.... eða það finnst okkur Mola allavegana ;)

Við pabbi, mamma og Moli fórum í smá búðarrölt í dag og varð Petco fyrir valinu sem ein af þeim búðum. Ég ákvað það kaupa handa Mola dósamat sem ég hafði prófað og hann var mjög hrifin af en sá svo þessa dollu hér að ofa og auðvita varð ég að kaupa hana. En þetta er hvorki meira né minna en Cesar Millan hundamatur lífræntræktaður og alles mar ;). Ég var að gefa Mola skamt af þessum fína mat blandaðan saman við Royal Canin matin hans hitað svo í örbylgjunni með smá lögg af vatni til að þetta blandist nú allt vel saman. Moli var sko ekkert smá hrifin af matnum og gjörsamlega stleikti skálina upp til agna og er búin að fara nokkrum sinnum til að athuga hvort það sé til meira þannig að Cesar fær "two thumbs up ;D" en ekki hvað?
En það sem Moli er byrjaður að gera eftir að borða svona blaut mat er að hann nuddar sér upp við tepið með hausnum :S ég veit ekki hvað hann er að gera en það hlýtur að vera gott því hann er alveg vitlaus í matinn.
Davíð er búin að vera mjög duglegur að læra í dag sem er mjög gott. Það er spurningin hvenar hann ætlar að koma hingað til Deltona en við sjáum bara til ;). Ég freistaðist til að skoða húsnæði nálægt UCLA og fann fult flott en við sjáum hvað við gerum því það er ekkert ákveðið enþá.
En nóg í dag.

Love Fjóla og Moli

4 comments:

Davíð Örn said...

Moli átvagl ;)

Anonymous said...

Snilld ég verð að prófa þennnan hehe en er hann ekki bara að þurrka muninn eftir matinn?Snyrtumenni

Kristín

Fjóla Dögg said...

jú ætli það ekki mér finnst þetta svo spes þegar hann gerir þetta algjört krútt.
Já Kristín þú verður að taka nokkrar dollur með þér heim ;)

kv Fjóla og Moli

Helga said...

Haha, er hann ekki bara að sýna undirgefni? Það hlýtur nottla að vera einhver svona Calm Submissive Energy í þessum Cesar mat :þ