Wednesday, June 02, 2010

Smá up date

Nýjustu fréttir eru þessar. Davíð er að fara til N.Y í fyrra málið til að skoða íbúð í Queens sem við erum mjög spennt fyrir. Það má svo sannarlega biðja fyrir þessu fyrir okkur því við erum mjög spennt þetta lítur vel út og er á góðu verði miðað við N.Y. Það tekur Davíð svona 40 mín að komast í vinnuna sem er mjög gott og er íbúðinn í góðri stærð með húsgögnum, afgirtu hundasvæði og dyraverði ásamt fleiru. Það er svo þvotta aðstaða í kjallaranum og við getum haft bílin okkar fyrir utan án þess að það kosti neitt. Þannig að ég bið ykkur elsku bestu vinir og ættingjar að leggjast á bæn fyrir þessu fyrir okkur því það væri ekkert betra en að ljúka þessum íbúðar málum af.
En ég kem með frekari upplýsingar þegar ég veit meira.

Knúsar og Guð veri með ykkur

Fjóla og co

No comments: