Friday, June 11, 2010

Fréttir af okkur

Stelpurnar eru farnar þannig að við erum með tómt hús for now ;D. Við höfum tekið ákvörðun um að slappa af yfir helgina og vera ekkert að pæla í flutningsmálum, geymslumálum eða neitt sem tengist því fyrr en á mánudaginn en þá förum við líka á fult.
Við höfum átt góðan dag í gær þar sem við erum nánast ekkert búin að gera nema slappa af og horfa á Braking Bed algjört æði. Ég er svona að reyna að koma mér afstað í leikfimi áður en við huggum okkur í kvöld. Það verða heimatilbúnar pabba og mömmu fiskibollur í matinn með brúdni sósu og karteflum jam jam en svo er svona pælingin hvort við nenum í bíó eða horfum bara á eitthvað skemmtilegt heima.
Á morgun er planið að vakna snemma og fara á Newseum í D.C og vonandi að við höfum tíma til að skoða helfarar safnið í leiðinni. Það er svo víst einhver heimsmeistaramót í fótbolta og það er svona spurning hvort við kíkjum eitthvað á það ;D. Annarts er ég alveg dottin inn í Lakers vs Celtics úrslitaleikina en við hjónin höldum statt og stöðugt með Celtics enda varð ég þess heiður aðnjótandi að sjá þá spila í febrúar :D.
Annars er fátt annað að frétta af okkur allt gengur bara vel og við höfum það gott. Það var alveg hrillilega gaman að hafa Elísabetu og Kallý hjá okkur og erum við svona hálf döll að þær séu farnar hefðum sko alveg viljað kíkja til Flóró og fara á Sweet Tomato með þeim ;D.
En ég hef þetta gott að sinni

kveðja Fjóla og co

1 comment:

Mamma og Pabbi said...

Gott hjá ykkur að slappa af fyrir lætin. Takk fyrir blog!
CWC10D