Tuesday, June 29, 2010

Jæja við erum lent...

... í Queens. Við lögðum afstað stuttu eftir 6 í morgun og vorum komin hingað rétt eftir hálf 12. Bílinn var TROÐINN vægastsagt af dóti en það tók okkur sem betur fer ekki langan tíma að ferja dótið inn :D. Við erum búi að ganga frá svona helmingnum ca af dótinu okkar en það er bara fónt því þá hef ég eitthvað að gera þegar Davíð fer í vinnuna á fimtudaginn ;D.
Við gerðumst svo gróf í gær að við keyftum okkur flatskjá í Costco en ætli það sé ekki bara brúðkaupsgjöfin til okkar frá okkur ;D. Ástæðan fyrir þessu bruðli er sú að okkar túbu sjónvarp er eiginlega of stórt fyrir kommóðuna sem það á að standa á til þess að geta verið í loftnetssambandi þannig að við ákváðum bara að gera líf okkar enþá auðvledara og kaupa bara lítið og þagilegt sjónvarp sem er auðvelt í flutningum. En þetta er full HD, 23", með tengi til að tengja tölvuna, leikjatölvuna, blue ray og ég veit ekki hvað ;D

Þar sem við erum bara með dollumat og þurmat þurftum við að skella okkur í búð. Við vorum búin að sjá að Costco átti að opna rétt hjá okkur (35 mín labb) og ákváðum við að athuga hvort það væri opnað. Við komumst að því að það opnar víst ekki fyrr en 8. júlí en það er þó allavegana gott að vita það :D. Við skeltum okkur þá bara í matvörubúð á leiðinni og fundum þennan líka rosalega ódýra ávaxta og grænmetismarkað eða búð og keyftum 6 kiwi, tvær agúrkur, 5 tómata í mjög fínni stærð og kirsuberjapoka á aðeins $6.39 sem mér finst nú ansi gott.
En í kvöld er það bara pasta og kjötbollur heimatilbúnar og kósý heit eftir langan dag með mikilli keyrslu, miklum burði, miklu labbi (enda liggur Moli hérna alveg stein dauður við hliðina á mér) og mikilli frágengni.
En ég sendi bara knúsa heim.

Fjóla og co

3 comments:

Mamma og Pabbi said...

Flott hjá ykkur og til hamingju með þetta!
CWC#10D

Anonymous said...

Flott að heyra - hlakka til að heyra betur í ykkur. Við fórum með pappírana f. Davíð í morgunn.
Knúsar
A7

Helga said...

Til hamingju með nýju íbúðina og flatskjáinn :D
Knúsar frá mér og tríóinu