Wednesday, November 05, 2008

Hundapælingar

Ég er búin að vera að skoða hunda sem eru að leita að heimilum á Flórída og er farin að hallast að því að fá mér Chinese Crested. Mér hefur alltaf líkað við þá og þeyr eru alveg margir hverjir gull fallegir. Ég er búin að vera að skoða tjúana og Crestedinn er miklu miklu fallegri. Ég mæli með að þið kíkið á þessa síðu http://www.petfinder.com/shelters/FL802.html og skoðið hundana ég féll alveg fyrir tveimur öðrum meira vegna persónleika en hinn vegna fegurðar en báðir gull fallegir. Jæja hundafólk tjáið ykkur endilega fræðið mig um tegundina er mjög spennt fyrir henni og ég veit að eini svona hundurinn sem Moli hefur eitthvað hitt og leikið við hentaði honum mjög vel og hann gat sko hlupið eins og vitleysingur.
Ég set hérna inn myndir af þessum tveimur sem ég féll fyrir. Þessi svarti er reyndar gegjaður en þessi ljósi er með alveg frábæra lísingu á skapi og hann er líka staðsettur í Flórída hinn ekki.

Hafið það gott og Guð veri með ykkur og blessi ykkur og varðveiti ykkur og Knúsi ykkur ;).

2 comments:

Anonymous said...

Ég er mjög hrifin af þeim, er reyndar meira fyrir þá nöktu :)

Kristín og voffarnir

Helga said...

Já, þeir eru mjög fallegir báðir tveir. Ég verð þó að segja þér að á flugvellinum í Danmörku sá ég stelpu með tvo Russian Toy Terrier og VÁ hvað þeir voru fallegir!!! Ég var alveg heilluð :þ