Monday, November 10, 2008

Frábær sumarbústaðar ferð... eins og alltaf

Jæja við fórum í bústað með hjónakornonum okkar Marisu og Jóni og vá hvað það var gaman. Við tæplega þrítug fórum út í svartasta mirkri og fórum í feluleik. Ég var alveg hissa hvað mér fannst þetta alveg ógeðslaga gaman. Ég alveg lagði mig alla fram. Moli eiðilagði þó fyrir mér tvisvar sinnum með því að finna mig vegna þess að hann var að hjálpa þeim sem var að leita. En ég var bara stolt af honum. Hann fann eiginlega alla áður en við fundum þá ;9.
Við átum og horfðum á imban og átum smá meira og spiluðum og átum meira og töluðum saman. Strákarnir þurftu reyndar að læra smá en við Marisa lögðum okur á meðan mjöööög kósý.
En ég set inn nokkrar myndir svona fyrir augað.

Takk fyrir mig dúllur.

Elsku sætasti Davíðinn minn

Já Davíð og Jón eru MJÖG góðir vinir ;)

Marisa og Moli bara sæt ;)

Jón í góðum málum í Monapoly

Ég ekki sátt með Davíð í spilinu

2 comments:

Helga said...

Þetta lítur út fyrir að hafa verið mjög kósí ferð. Ég ætla að henda inn myndum á morgun frá Danmerkurferðinni minni, og ætla í háttinn núna enda búin að vaka í sólarhring.
Knús, knús

Anonymous said...

Já, þetta var getveikt skemmtilegt! :) Hvað myndirnar varðar þá finnst mér Davíð lang flottastur ;) hehe

-JónM