Monday, June 07, 2010

Fréttir

Jæja komin tími á smá frétta blogg. Héðan er allt gott að frétta. Við höfum haft það gott með strákunum en í dag fórum við í kirkju og skelltum okkur svo í mallið og Costco en þeir náðu að versla slatta á met tíma eitthvað sem strákar eru góðir í inn og út ekkert hangs ;D. Núna sit ég hérna heima með Mola mínum en þeir fóru í mega kirkju s.s risastóra kirkju, hérna í Virginiu og svo ætluðu þeir út að borða þannig að ég veit ekki alveg hvenar þeir koma heim en ég vona að þeir skemmti sér vel :D. Á morgun koma svo stelpurnar Kallý og Elísabet og þá verður sko stuð á okkur og nóg að gera :D.
Fréttir af íbúðinni eru þær að við þurfum að vera samþykkt af húsráðinu í húsinu og værum við þakklát ef þið mynduð halda áfram að biðja fyrir því að þetta blessist allt saman en við trúum því að Guð hafi bent okkur á þessa íbúð þannig að við ætlum að treysta honum fyrir því öllu saman.
En við erum þakklát fyrir allar bænirnar eins og alltaf takk fyrir :D.
Annars hef ég fátt annað að segja en bið bara Guð að vera með ykkur eins og alltaf.

knúsar héðan Fjóla og co

1 comment:

Helga said...

Það er alltaf nóg af heimsóknum hjá ykkur!:D Ég hef íbúðarmálin í bænum mínum, er viss um að þið fáið samþykkið sem þið þurfið.
Knúsar og hlýjar kveðjur.