Sunday, December 22, 2013

Jóla jóla :D

Jæja þá fara jólinn alveg að detta inn og búið að vera nóg af jóla jóla stuði :D. Ég ætla í þett askiptið bara að skella inn nokkrum vel völdum myndum frá síðastliðnum dögum :D.

 Ég fór út að labba með bræðurnar um dagin og þeim fanst það nú ekki leiðinlegt :D 


 Svo fékk hann að fara á þotuna hans Sveinbjörns afa

 Fallegi jólastrákurinn minn

 Salómon fékk tjald með göngum sem hann var sko í skýjunum með og vildi helst ekki fara úr því :D



 Flottir jólafeðgar

 sjálfur að fara upp tröppurnar

 Fjölskyldan öll jólaleg og fín :D


 Frændurnir, Elí (10. mánaða), Breki (13. mánaða) og Salómon Blær (17. mánaða) að leika sér 

 Sætasti jóla minn

 Hjónin spókuðu sig vel í stíl ;D

 Við fórum út að borða með Guðlaugu þar sem hún var að útskrifast úr MH

 Við hjónin

 Lilja Írena og Sunna í Jólapeysu afmæli Bári minnar :D

 Ingunn :D

 Jessica, Anna, Berglind og Arna hressar :D

 Hjónin Raggi og Jóhanna með bumbubúanum :D

 Stirmir, Raggi og Bára ásamt einhverjum sem ég þekki ekki en þetta eru viningshafarnir í jólapeysu keppninni. S.S frá Vinstri: Besta skítamixið, frumlegasta, Jólapeysan árið 2013, ljótasta :D

 Vinirnir Davið og Ásgeir

 Davíð minn og Bára mín

Allir saman og gegjað gaman :D

Knúsar öll, Guð veri með ykkur og GLEÐILEG JÓL :D

Monday, December 02, 2013

Kominn desember :D

Þá er desember mættur á svæðið :D. Það er nóg að gera eins og alltaf hjá okkur. Benjamín kom til landsi s á laugardaginn. í gæær vorum við með Thanksgiving dinner fyrir tengdó og Guðlaugu og Benjamín sem heppnaðist bara ágætlega held ég. 
Desember verður þó nokkuð troðinn af verkefnum en ég vona að við höfum samt tíma til alls sem þarf að gera. Davíð er á fullu í vinnunni og í kennslunni þannig að hann hefur ekki mikinn íma aflögu þessa dagana þessi elska. Davíð fer líka líklega út í vinnuferð um miðjan des og svo förum við saman deginum eftir að hann kemur heim aftur til London :S. 
Salómon Blær vaxar og dafnar og er allur að finna sinn persónulega vilja  í ÖLLU ;D. Hann er alveg klárlega ákveðinn og óðolinmóður eins og mamma sín ;D. Það er samt svo gaman af honum. Hann er nú þegar komin með 16 orð sem hann getur sagt og okkar uppáhalds er Moli því hann vandar sig svo þegar hann segir Moli og það er svo endalaust krúttlegt. Við fórum öll að hitta Lilly, Margeir og Krúsu en Coco þurfti að fá smá l-jólaklippingu :D. Það var gaman að sjá Margeir en hann hefur stækkað svo rosalega síðan við sáum hann síðast og farin að labba og allt ekki orðinn 12 mánaða :D. 
En annars höfum við það gott. Hundarnir eru yndislegir eins og alltaf og svo þolinmóðir og góðir þrátt fyrir að fá ekki þá athiggli sem þeir eru vanir. En á miðvikudaginn förum við í myndatöku og fáum Kristínu og Sverri í mat sem verður rosalega gaman enda langt síðan síðast. 
Ég bið ykkur vel að lifa og eigið góðann desember mánuð :D.

Sunday, November 17, 2013

Komið langt in í nóvember...

....og jólin handan við hornið :S. Það er búið að vera allt á haus hjá okkur í nóvember og Davíð er að fara á miðvikudaginn í sína þriðju utanlands ferð í mánuðinum :S. Það vantar ekki að það sé að nálgast smá jólastress þegar ég átta mig á því hvað það er raun og veru stutt til jóla og markt sem á eftir að gera og undirbúa :S. En um helgina náðum við samt góðum árangri þar sem við sáum ekki fram á að geta skreytt neitt á nstunni nema að við drifum í því núna þá ákváðum við að gera það. Það er s.s búið að setja jólaskraut í glugga, jólaseríur í glugga og jólaþorpið er komið upp :D.
En veðrið hefur verið svo fallegt um helgina og Salómon Blær er alveg heillaður af þessum hvíta snjó að það er erfitt að halda honum innanndyra ;D. Ég tók nokkrar myndr af prinsinum um helgina. 

 Minn fékk að borða smá jógúrt sjálfur um daginn ;D ákvað að leifa ykkur að sjá árangurinn





















Knúsar og munið að það eru bara 37 dagar til jóla :D

Wednesday, October 23, 2013

Kominn tími til...

....að ég hendi inn nokkrum línum af okkur hérna í Mosfelsbænum. Það er sko sannarlega búið að vera nóg að gera bæði hjá mér og Davíð þennann október mánuð. Ég er búin að vera á fullu að vinna að hundaskólanum mínum og Halldóru og er þetta allt að fara að smella núna á næstunni. Námskeiðin tvö sem við erum með klárast núna í vikunni og þá tekur við undirbúnings vinna fyrir næstu námskeið sem verða eftir áramót. Davíð hefur meira en nóg að gera í sinni vinnu og þessum tveim skólum semhann er að kenna hjá :S ásamt öllu öðru sem hann þarf að gera fyrir mig og fjölskylduna þannig að það er so sem ekkert nýtt þar á ferð ;D. 
Hundarnir hafa það rosalega gott þrátt fyrir að ég veit að þeyr myndu þyggja lengri gönguferðir en því miður hefur ekki verið mikið af þeim upp á síðkastið þannig að þeir eiga betra skilið þótt þeir kvarti ekki þessar elskur. 
Salómon Blær er eldhress eins og alltaf þrátt fyrir að hann hafi verið að ganga í martraða tímabil þar sem hann hefur verið að vakna ca klukkutíma eftir að hann sofnar grátandi og hefir átt mjög erfitt með að sofna aftur :S. Það lítur samt út fyrir að þetta sé að ganga yfir en við tengjum þetta við að hann er að upplifa aðskilnaðar kvíða og við teljum að martraðirnar tengjast því vegna þess að straxog hann heyrir í okkur líður honum betur. 
Annars er það nýjasta í fréttum hjá Salómon Blæ það að hann er að fara að byrja í sundinu aftir hjá Snorra í eldri hópnum og erum við mjög spennt fyrir því :D. 
Ég er búin að vera að prjóna mikið upp á síðkastið og á eftir að gera þó nokkuð af því áframhaldandi enda endalaust gaman :D. Núna er mitt aðal verkefni að klára lopagallann sem ég er að gera handa Salómon Blæ en það gengur alveg rosalega vel :D.
Við Davíð erum á leið til Rómar þann 1. nóvember og komum heim þann 5. nóv seint um kvöldið. Salómon Blær fær að vera hjá afa Dóra og ömmu Maríu á meðan en þetta verður í fyrsta sinn þar sem við verðum lengur en sólahring í burtu frá honum sem mun vera erfitt :S. En við vitum að afi og amma passa vel upp á hann og láti okkur vita hvernig gengur :D. 
Annars eins og so oft áður ætla ég að senda með nokkrar myndir því það er svogaman ;D. 


 Að prufa bílstólinn í forstofunni sem var sko gegjað sport :D

 Amma og Salómon Blær :D

 Svo sæt saman :D


 Mega KRÚTT!!!!!!!!!!!

 Svo fallegur með nýju húfuna sem mamma hans prjónaði handa honum :D


 Þessir tveir eru algjört æði en gætu ekki verið mikið ólíkari. 

 Það er gaman að segja frá því að Salómon blær þurfti að skipta um öll sín föt eftir sulleríið á meðan Adrían varð varla blautur ;D. Þessi mynd segir mikið ;D

Það var svo gaman að fá að sulla í balanum enda heyrðist varla í þeim ;D

Knúsar Fjóla og co