Monday, March 31, 2008

Rigning :(

Loksins þegar ég kemst í sólarskap og nenni að liggja í sólbaði þá kemur rigning.
Ég fór að skokka í morgun tvo hringi rosalega dugleg og var ég þá farin að finna fyrir nokkrum litlum dropum. Núna aftur á móti er bara komin demba. Ekki alveg jafn mikil demba og getur verið hérna, því það getur verið eins og helt hafi verið úr fötu, en svona 50% af því.
Þá er bara málið að fara með Fabio Mola í olíuskipti og svo að vesla í Khols heyrinst mér á pabba og mömmu.
Núna er Davíð minn að fara til Whasington D.C. á föstudaginn og verður þá Moli kall hjá tengdó í pössun. Annars var ég að fatta að mig vantar nokkrar hluti frá íslandi sem ég get horft á þegar ég er orðin ein eins og Næturvaktina og Fitball líkamsræktardiska svo ég geti gert leikfimi inni þegar ég nenni ekki að skokka.
Annars átti Moli að koma held ég í næsta Dýravinia blaði eða heitir það einhvað annað? Endilega ef þið sjáið blaðið stelpur, þá sérstaklega Helga og Kristín, væruð þið til í að skoða það svo ég geti látið Davíð kaupa blaðið?
Jæja það er verið að reka á eftir mér að gera mig til svo ég ætla að fara í sturtu og gera mig til fyrir daginn :D.
Guð blessi ykkur og hafið það sem allra allra best.

Kveðja Fjóla

Sunday, March 30, 2008

Ströndin

Ég komin og lögst í sólbað en ég fékk fult af freknum og far og allt :D.

Þetta kýs ég að kalla Marglittuskrímslið en þetta var alstaðar á ströndinni, samt svona fallega ljótt finnst ykkur ekki?

Ströndin og skeljarnar

Hálfur kuðungur

Annað Marglittuskrímsli þetta er samt meira eins og Troyju hjálmur (þið vitið þessir með rauðu hárin uppúr).

Sandkastali. Ég á samt ekki heiðurin af þessum heldur einhverjir krakkar.

Þarna er ég komin til baka úr labbitúr eftir strandlengjunni.

Ekki má gleyma máfunum sem eru fastir liðir þegar farið er á ströndina. Þeir hanga yfir þér og vonast eftir að þú dragir einhvað upp til að borða en því miður var ekkert í boði fyrir þá í dag.



Núna er bara afslappelsi og matur seinna í kvöld afgangar af kínamatnum sem var í gær mjög ágætt bara. Hafið það gott elskurnar mínar

Kv Fjóla

Ströndin í dag

Jæja gott fólk þá á að skella sér á ströndina og ná sér í smá brúnku. Fyrst ætla ég að vera rosalega heylsusamleg og skokka allavegana einn hring í kverfinu (reyna við tvo er búin að vera rosalega léleg að skokka) svo er bara að skella sér afstað og byrja á IHPO eða Internatonal House of Pancakes og fá okkur morgunmat. Seinna í dag er svo allt óplanað líklega ekki mikið þar sem ströndin tekur langan tíma bæði í keyrslu og annað.
Annars er það að frétta að ég keyfti síma í gær til að vera alveg í lagi ef einhvað kemur uppá hjá mér svo ég geti hringt og það kosti ekki miljón og sjötíu.
Annars skelli ég inn myndum í kvöld eða á morgun af ströndinni fyrir ykkur svo þið meigið njóta þeirra með mér.

Blesó í biló

Fjóla

Saturday, March 29, 2008

Fullt af myndum frá gærdeginum

Það var nóg að gera í gær eins og alla aðra daga hérna á Flórída. Við fórum smá í laugina, fórum svo á uppáalds staðinn minn eða Sweet Tomatos sem er salladbar, súpur, pasta, sætabrauð, ávextir og ís mátt borða eins og þú vilt :D. Eftir matinn var svo farið í skólann minn þar sem tóku á móti okkur tvær púðlur og vá hvað það var gott að fá að koma við og klappa hundi þeir gjörsamlega elskuðu að láta kjassa við sig. Ég komst þá að því að ég byrja ekki í skólanum núna á mánudaginn (31. mars) heldur næsta mánudag (7. apríl) sem er sosem bara fínt því þá hef ég viku til að gera ekki neitt svona þannig séð bara hanga og gera einhvað sem pabbi og mamma vilja gera.
Við fórum svo í smá búðarrölt og enduðum á Pizza hut að kaupa væng fyrir pabba og mömmu. Ég fékk alveg rosalega óðægilegan verk í brjóstið og upp í háls sem var soldið eins og brjóstsviði en samt ekki virkaði ekki að fá sér samarín. En það er farið núna sem betur fer.
Annars sáum við mamma dateline þátt í gær um tvær fjölskyldur þar sem báðar dætur þeirra hefðu verið í sama bílslisinu ásamt 9 mans þar sem 5 dóu en önnur dóttir þessara beggja hjóna lifði en var í dái í langan tíma. Svo þegar hún fer að vakna upp úr dáinu fóru þau að taka eftir hlutum sem ekki alveg passaði við dóttur þeirra en liddu það bara hjá sér. En svo endaði sagan þannig að þessi dóttir var ekki dóttir þeirra heldur dóttir hinna hjónana og hafði þá verið gerð svona rosaelga mikil mistök þegar líkin voru skoðuð en bæði foreldrapörinn treystu sér ekki að skoða líkin á sýnum tíma. Rosalegt ekki satt?
Jæja þá koma myndir dagsins

Maður verður nú að taka myndir af íkornunum hérna í hverfinu en þeir eru út um allt algjörar dúllur.

og þarna er annar.

Svo er það sundlauginn og glampandi sól.

Pálatréin falleg rosa mikið Flórída

Jæja Fabio Moli er komin á bráðabyrgðarnúmer.

Við fundum rosa skemmtilega dýrabúð sem heitir Petsupermarket þar sem við fundum þetta líka stóra og flotta bein. Haldiði að Moli yrði ekki hissa ;).

Jæja hvað finnst ykkur um þennan... ROSALEGUR. Þessi var tekin fyrir tengdapabba sem er svo hrifinn af Audi ;D.

Hattar út um allt hver öðrum hallærislegari :D ég að máta einn.

Ég var að hugsa um að upgraita Pug töskuna mína hvað finnst ykkur?

Það vantar ekki stærðina á þessari

Þessi er sérstaklega fyrir Davíð minn. Poker spilapeninga sápuflaska.

Þetta er það sem ég myndi kalla svertingjaúlpu. Ef að þið þekkið einhvað til svertingja þá eru þeir alveg athygglissjúkur þegar kemur að fatnaði ekki illa meint.

Ég og mamma að máta úlpur á fullu enda í Burlington Coat factory hvað er annað en að máta úlpur? ;D
Ég keyfti mér hins vegar þessa húfu fannst hún töff

Svo varð ég að kaupa þessa lyklakyppu handa sjálfri mér en hún er Chihuahua. Ég sá líka fyrir Papillon en því miður ekki Tíbban. Var að spá hvort Kristín hefði áhuga ða ég leggi út fyrir svona kyppu handa hrnni stykkið kostar $9.99 og það er til Papillon og Chihuahua. Ef þú hefur áhuga láttu mig bara vita og ég reyni að fara í búðina fyrir þig.

Hef það ekki lengra að sinni meira á morgun.
Kveðja Fjóla

Thursday, March 27, 2008

Ég náði Ökuprófinu Thank you Jesus!!!!!!!!!!

Jæja ég náði blessaða bílprófinu n ekki áverka laust. Við mættum í prófið og ég tók skriflega hlutan sem var í 2 hlutum fyrst og náði ég honum nánast 100% eð ameð einni villu. Þegar komið var að því að skrá mig í verklegaprófið komumst við að því að pabbi og mamma höfðu ekki sönnun í bílnum um að hann væri tryggður sem er MJÖG mikilvækt hérna úti. Það kom afstað alveg rosalega panikk ferli að redda þeim upplýsingum sem tók mikin og langan tíma en tókst loks á endanum eftir heilmargar símhringingar og endalaust símtal.
Þegar það náðist að leisa úr flækunni var svo komið að verklega hlutanum. Hann fór allur fram á bílaplaninu fyrir utan skrifstofuna (sem er nú samt þó nokkuð stórt) og átti ég að leggja í stæði, bakka, bremsahratt, lýsa því hvernig ég mydi leggja bílnum mínum í brekku, toppa hjá stoppskiltum og svo einhvða fleira. Ég náði þeim hluta líka með glæsi brag fyrir utan að bakka of hratt og gefa ekki stefnuljós of snemma (je who ever).
Þá var næsta skref, eftir endalausar þakki til hins hæðsta, að fara til Ruth Swanto og klára tryggingamálin svo við gætum farið og borgað bílinn. Við erum öll orðin rosalega hrifin af bílasölugæjunum okkar en þeir eru ekkert nema nice og yndælir í alla staði og vilja allt fyrir mann gera. Pabbi og mamma eru jafnvel að velta fyrir sér að upgraita minivaninn og fá sér nýrri hjá þeim. Í lokinn var svo smelt mynd af mér og gamla settinu hjá lánuðum Mustang (þar sem við vorum ekki á mínum bíl) til að hengja á töfluna inni hjá þeim en þeir taka myndir af öllum sem kaupa bíl hjá þeim.
Eftir að bílaviðskitum var lokið skelltum við okkur í Mont Dora sem er lítill gamall bær og löbbuðum um í mjög merkilegar og örðuvísi búðir og ég smellti af nokkrum myndum. Ég læt myndirnar tala fyrir rest.

Jæja þessi var tekin í morgun af þeim skrítustu jarðarberjum sem ég hef séð. Mandarínan er til hliðsjónar um hvað þau eru stór.

Skemmtilegir og sérstakir sparibaukar.

Pöddu hálsmen á tilboði aðeins $9.99. Það merkilega var að þau voru soldið töff

Jú jú okkur tókst það... Íslenskur bar á Mont Dora sem heitir Frosty mugg hvða er ekki til í henni Ameríku?

Fanst þessi stigi alveg þess virði ða taka mynd af

Rosalega flott hús en það er eins og það sé búð til úr bókaskáp eiginlega, mjög spes.

Svo var það Sonnys BBQ staður sem sló botninn í daginn í dag. Ég fékk mér reyktan kalkún, maiis stöng, cornbrauð og sætakartöflu mjög gott.

Núna er komið að því að glápa á Lost sem byrjar kl 9 þannig að það er ekki seinna vænna að fara að drífa sig fram. Guð blessi ykkur yndislega fólk og takk fyrir að hugsa til mín í dag í bílprófinu.

Kær kveðja Fjóla Florida licensed driver ;)

Wednesday, March 26, 2008

Nokkrar myndir fyrir bróssa og aðra sem hafa áhuga á íbúðinni

Jæja það tókst víst bara ða setja inn eina mynd í þetta skiptið af íbúðinni en ég reyni betur seinna. En hér sjáið þið endurbreytta stofu rosa flotta.

Þar sem ég vildi nú ekk iskilja ykkur eftir tómhent bara með eina mynd ákvað ég bara að fylla upp í með myndum af Fabio Mola

Fabio Moli

Og svo hvernig hann er að innan kallinn.
Njótið vel og bið að heylsa afa og ömmu í Garðhúsi sem ég veit að skoða bloggið á kverjum degi ;D knús knús
Blessó frá Flórídó :D

26. mars

Jæja það er búið að vera mikið að gera í dag þannig að ég ætla að stikla á stóru.

  1. Fórum og skráðum bílinn á gestastæði hérna í götunni þannig að hann er löglegur hér með í götunni til janúar 2009.
  2. Næst var svo farið til hennar Ruth Swanto sem er tryggingar kellingin þeirra mömmu og pabba. Við fórum yfir tryggingamál og allt er nánast tilbúið fyrir utan ökuskírteinisnúmerið mitt sem ég fæ ekki fyrr en á morgun ef ég næ prófinu þannig að ég yrði mjög þakklát ef þið gætuð minst á mig í bænum ykkar að ég nái því nú alveg örugglega.
  3. Vegna þess að tryggingarnar eru ekki alveg klárar var ekki farið og borgaður billinn í dag en það verður gert á morgun í staðinn.
  4. Pabbi var orðin svangur þegar þessu öllu var lokið svo við fórum á Taco bell og fengum okkur hádegismat.
  5. Næsta skref var að fara í bankann og leggja inn peninginn minn og fá svo ávísun frá bankanum til að borga bílinn.
  6. Svo var komin tími í smá afslappelsi eða þar að segja Target.
  7. Publix var það síðasta á dagskrá í dag og er ég komin hingað heim núna þreitt og lúin.

Núna á svo bara að slappa af og slaka á, klára að lesa og læra fyrir bílprófið og horfa á TV og borða kvöldmat. Dagurinn á morgun verðu líka mjög strembinn en þá þarf ða reyna að komast yfir 1. bílprófið, 2. tryggingar hjá Ruth, 3. borga bílasölunni og 4. fara í skólann minn og fá upplýsingar þar um hvenar og hvernig ég borga, í hverju ég á að vera, hvenar ég á að kaupa verkfæratöskuna o.s.fv.

Guð blessi ykkur ott fólk þangað til næst :D

Tuesday, March 25, 2008

Fyrsti dagurinn liðinn

Ég byrjaði á því í morgun að fara á Perkins með pabba og mömmu og fá mér ommilettu, bregfast potados og apple cinnamon muffins ógeðslega gott.
Eftir morgunmat var svo farið afstað að leita eftir bílasölum þar sem rétta bílinn væri að finna. Við fundum þó nokkra suma of dýra en aðra í lagi. Það var einn hvítur sem okkur leist vel á með leddersætum, flottum græjum, einn eigandi en var frekar mikið keyrður eða 102.000 milur.
Við fórum líka í einhverja Big lot búð sem mamma vildi fara í og þar fór ég á það ógeðslegasta klósett sem ég hef nokkurntíman farið á. OJ. Mamma keyfti þó þar borð og stóla út á svalir hérna í íbúðinni sem var mjög flott.
Við skelltum okkur líka í BJ´s og þar fann ég alveg frábært töskusett á aðeins $99.90 rosalega brúnar og doppóttar og sætar eins og þið sjáið. Ég keyfti líka headset til að geta talað við Davíð í gegnum Skype. Mamma og pabbi keyftu líka alveg sjúklega góðar mandarínur og kirsuberjatómata sem voru bara dísætir.
Við komum svo heim rétt til að koma með allt draslið inn og svona en töfðumst lengur en við ætluðum. En svo var farið afstað til að skoða einn bíl sem ég fann í gegnum Autotrader. Viti menn þessi ágæti bíll er minn og Davíðs í dag. Já það er rétt gott fólk ég er búin að kaupa bíl, Fabio Moli is born. Við keyrðum í um 30 milur (50 km) frá íbúðinni til að skoða gripinn. Þegar við mættum á svæðið fengum við strax að taka smá rúnt á honum með bílasalanum. Okkur leist mjög vel á hann enda mjög vel með farinn jafnt að innan sem utan, ekki dæld á honum og lítur hann enganvegin út fyrir að vera 6 ára gamall. Stax og við sýndum honum áhuga greip bílasalinn okkur taki og vildi sko ekki sleppa en við vorum undirbúin undur það svo sem. Við fórum strax inn og hann lét mig skrifa á pappíra vegna tryginganna og reiknaði svo út veðrið. Bíllinn átti að kosta $6995 en þegar hann var búin að bæta við sölugjaldi, skatti, númeraplötuverði og einhverju fleiru var bílinn komin upp í hvorki meira né minna en $8196. Við náttúrulega vorum ekki búin að reykna með því að bílinn myndi hækka um rúmlega $1000 við kaupinn og vorum því ekki tilbúin að svara hér og nú með hvort við ætluðum að taka hann enda verðið komið vel yfir ásett hámarksverð sem við Davíð vorum tilbúin að kaupa á. Hann byrjar þá að spurja mig hversu langt frá mínu veðri þetta er en ég vil ekkert segja segi bara að ég þurfi að tala við manninn minn fyrst áður en ég tek ákvörðun. Ekki meira en mínútu seina kemur bossinn og segir heyrðu við erum tilbúin að láta þig fá bílinn á $6610 ef við gengjum frá því núna. Við náttúrulega vissum ekki almennilega hvað á okkur stóð veðrið því þarna á innanvið 2 mín var búið að lækka bílinn um $1600 ca.
Málin enduðu þannig að ég keyrði heim á lánuðum númeraplötum sem við skilum á morgun til þeirra þegar við borgum bílinn. Ég er rosalega sátt við gripinn og vona að alt sé í mjög góðu standi hjá honum en allt það sem ég sé er mjög fínt.
Ég er núna að fara að fá mér Hungry Howie pizzu enda er ég alveg að farast úr hungri ;).
Kem með aðra færslu sem fyrst.

Knúsar og Kossar Fjóla og Fabio Moli ;).

Monday, March 24, 2008

Þá er ferðin hafin

Ég sit hér á Betristofunni í Leifstöð og ákvað að nota tækifærið og blogga. Dagurinn byrjaði mjög vel hjá okkur Davíð en eftir sturtuferð gerðist eitt að því versta sem hefði geta gerst (ekkert mikið drama bara smá) ég stíflaðist í þriðja sinn í öðru eyranu. Ég náttúrulega panikaði vegna þess að þannig er ég og endaði það með því að við Davíð drifum okkur á bráðamótökuna (þetta var svo alvarlegt mál sjáiði til ;9) og sögðum að við yrðum að komast að sem fyrst til að láta sjúga úr eyranu á mér þar sem ég ætti að taka flug seinna um daginn og kæmi ekki heim fyrr en eftri rúmlega 2 mánuði. Ég fékk rosalega fínan og lúnkinn gæja til að hjálpa mér við eyrað en hann sprautaði vatni inn í eyrað og losaði það sem var fast. Ég hafði náttúrulega ekki mikla trú á að það myndi ganga þar sem ég hef gengið í gegnum það áður og fúlnaði þá vatnið inni í eyranu á mér ekki gott. En læknakallinn kom mér bara á óvart og náði alveg að losa mig við allt vatn og allann skít úr eyranu.
Efir það áfall var svo brunað heim og klárað að pakka og gera allt til fyrir ferðina. Sem betur fer var það nánast allt tilbúið þannig að ég fór ekki alveg yfir um.
Elsku bestustu Jón og Marisa hringdu svo í mig rétt áður en við lögðum afstað til að óska mér góðrar ferðar og segja að þau elski mig So I say I Love you guys so much Riss and Jónsi and I will miss you very very much. Helga og Fróði náðu að koma og knúsa mig bless sem var meira en lítið vel þegið og á ég eftir að sakna þeirra mikið. Elsku bestasta fólk þið eruð æði og ég á eftir að sakna ykkar mjög mjög mikið.
En eftir erfiða kveðju stund við hundinn minn sem vissi voða lítið hvað var að gerast og manninn minn sem vissi alveg hvað var að gerast er ég hér komin og bíð eftir að flugvélin taki mig langt langt í burtu frá þeim og ykkur.
Ég bið Guð að blessa ykkur og ég sendi inn blogg eins fljótt og ég get.

Kær kveðja Fjóla Flórída

Thursday, March 20, 2008

Kveðju partý í gærkvöldi

Í gærkvöldi buðum við nokkrum vinum í heimsókn til að kveðja mig áður en ég fer út til Flórída. Við pönntuðum pízzur handa liðinu og svo var það bara nammi og snakk eins og þú gast í þig látið.
Kvöldið var æðislegt enda komu vinir sem við höfum ekki séð í allt allt of langan tíma og var það rosalega gaman og löngu komin tími til. Núna er það bara ða gera betur þegar ég kem aftur og partý í hverri viku ;).
Ég ætla að láta myndirnar tala fyrir rest skemmtið ykkur gott fólk.
Moli mjög spenntur yfir öllum gestunum

Helga bestasta með Fróða sinn

Elísabet gella hress í hörkku samræðum

Moli og Berglind sín

Básgeir í stuði eins og alltaf :D rosa gaman að fá þau í heimsókn eftir alltof langa bið

Halldór, Tinna og Davíð
Moli hjá Halldóri sínum. Þeir eru báðir jafn hrifnir af hvor öðrum ed ég bara

Ég fékk glös fá Svanhvíti frænku í afmælisgjöf sem heita "Pick your nose" Við ákváðum að nota þau í tilefni dagsins og höfðum við mjög gaman af því eins og næstu myndir gefa til kynna, takk frænka ;). Ég er soldið eins og ég veit ekki Mörgæsarmaðurinn úr Batman

Tommi góður!!!

Davíð með myndarlegt yfivararskegg

Helgu ymd er best held ég flottur varalitur Helga!!! :D

Jón Ómar flottur ;D

Berglid sæta með mjög pent og kvenlegt nef



Ásgeir og hans nef Flottur með hýung á vörinni ;)

Við enduðum uppi með tvær sófaklessur eftir langt og skemmtilegt kvöld. Hér er sófaklessa 1

Sófaklessa 2 ;D

Í lok kvölds voru svo bestustu vinirnir eftir og enduðum við í mjög djúpum og góðum umræðum sem við höfðum öll gaman af þrátt fyrir tilfinninga ríka umræðu

Guð blessi ykkur og takk fyrir komuna rosa gaman :D