
Ég var búinn í vinnunni um 14 leitið og dreif mig þá heim til Davíðs og Mola. Við fórum í Markið til að gá hvort þeir ættu hjólið, sem mig langar svo í, í minni stærð og viti menn það var til. Við Davíð fórum svo heim og fengum okkur að borða og svo fór ég með pabba og mömmu að ná í hjólið þar sem þau eru á jeppa. Ég keyfti líka körfu á hjólið til að geta haft Mola með mér ef ég er að fara einhvað langt og til að geyma nestið mitt og fleira þegar ég hjóla í vinnuna eins og ég ætla að gera í dag. Davíð tók nokkrar myndir af mér og Mola í jómfrúar hjólaferðinni í gær og hér kemur ein. Eins og sjá má er Moli bara m

Við Moli skelltum okkur líka aftur í stuttagöngu hjá Búrfellsgjá en fórum og skoðuðum rústir á leiðinni og ég smellti af nokkrum. Það var ofsalega gaman að sjá þetta sérstaklega þar sem, ég er nú verðandi fornleifafræðingur ;).
Það var frekar mikið rok þannig að við stoppuðu

Ég náði nokkrum góðum myndum af Mola og hér kemur ein sérstaklega góð að mínu mati. Sjáið þið bara hvað ég á fallegan hund. Bestastur og skemmtilegastur.
Ég kveð í dag.
Fjóla hjóla óði fornleifafræðingurinn og Moli bestaskinn.
3 comments:
úúú rosa flott hjól til hamingju með það! :o) Moli er bara algjör fyrirsæta! haha :o)
kv bebe
Takk frænka ég er hæst ánægð með það :D
oh, you two are so cute, I can hardly even handle it...makes me miss Bonnie :(!
Post a Comment