Monday, December 17, 2007

17. desember


Góðan daginn gott fólk.
Þá er bara vika í jólinn og get ég ekki beðið en á sama tíma trúi ég ekki að það sé svona stutt í þau. Jæja jólagjafir loksins BÚNAR jeiii!!! Þá er bara að bíða eftir að Davíð klári sitt próf og þá er virkilega hækt að slappa af og njóta lífsins en það er ekk fyrr en 20. desember :(.
Dagurinn í gær var notalegur ég vaknaði snemma eins og alltaf og horfði bara á imban og hafði það gott með Mola svo ákvað ég að vekja Hlegu vnkonu kl 13:05 og draga hana út með mér og Kristínu í göngu í brjáðuðu veðri sem hressti okkur allar við. Eftir gönguna var svo farið heim skift um föt og farið svo á Serrano í Smáralindinni og VÁ hvað öll bílastæðin voru troðin af bílum SÆLL!!
Í dag er fátt planað hjá mér en bara slappa af vegna þess að ég þarf á því að halda og kúra með Mola en það er ekkert jafn girnilegt að gera en einmitt leggjast niður við hliðina á honum og rotast aftur því ég er enganveginn að nenna að fara á fætur og fara í vinnuna.
Ég hef það ekki lengra í bili fáið meira á morgun.

Kær kveðja Fjóla og Moli


Ef vér lifum, lifum vér Drottni, og ef vér deyjum, deyjum vér Drottni. Hvort sem vér þess vegna lifum eða deyjum, þá erum vér Drottins.
Róm. 14:8

7. dagar til jóla SÆLL!!!!
P.s Ein uppskrift af jólasmákökum fyrir jólin
Grand fyrir jólin
1 bolli vatn
1 bolli sykur
4 stór egg
2 bollar þurkaðir ávextir
1 teskeið salt
1 bolli púðursykur
1 bolli sítrónusafi
1 bolli hnetur
1 FULL flaska af Grand
Smakkið Grandið til að vera viss um að það sé ekki skemmt. Takið stóra skál. Athugið Grandið aftur til að vera alveg viss um að það sé ekki skemmt. Hellið í einn bolla og drekkið. Endurtakið. Kveikið á hrærivélinni, hrærið 1 bolla af smjöri í stóra, mjúka skál, 1 einni teskeið útí og hrærið aftur. Athugið hvort Grandið sé nokkuð farið að skemmast, fáið ykkur annan bolla. Slökkvið á hrærivélinni. Brjótið tvær skurnir og bætið í skálina og hendið út í bollanum af þurkuðu ávöxtunum. Hrærið á kveikivélinni. Ef þurkuðu ávextirnir festast við hrærarrana losið þá þá af með rúfskjárni. Bragðið á Grandinu til að athuga magnið. Næst sigtið 2 bolla af salti. Eða einhverju. Hverjum er ekki sama? Athugið Grandið. Sigtið sítrónusafann og teygið hneturnar. Bætið einu borði. Skeið. Af sykri eða eitthvað. Hvað sem þú finnur nálægt. Smyrjið ofninn. Stillið kökuformið á 250°. Gleymið ekki að hræra í stillaranum. Hendið skálinni út um gluggann. Athugið Grandið aftur. Farið að sofa. Finnst nokkrum hvort sem er ávaxtakökur góðar
Varð að stela þessu af hundaspjallinu algjör snild ;).

Saturday, December 15, 2007

16. desember

Taka til (hálft) CHECK, baka lakkrístoppa CHECK, kaupa jólatré CHECK, fara í bíó á Fred Claus CHECK, fara á kaffihús með Helgu og Kristínu vonandi í dag. Þá fer allt að smella saman hérna á okkar litla heimili. Jólagjafirnar eru alveg að smella í klárun og allt orðið heldur jólalegt. Við Moli afrekuðum helling í dag meðan Davíð lærði og svo þegar tími gafst hjá Davíð skelltum við okkur að kaupa jólatré og fórum svo og fengum okkur pizzu og í bíó með Helgu.
Í dag ætla ég svo að bara gera einhvað, eins og á kaffi hús með þeim bestustu Helgu og Kristínu. Það er svo gott að vera ég þessa dagana. Ég fæ frí milli jóla og nýárs í vinnunni og er því komin í frí eftir 21. desember til 2. janúar SWEET!!! Í næstu viku eru svo tvö jólahlaðborð með Árbæjarkirkju og Björnsbakarí, Davíð klárar prófin sín á fimmtudaginn og jólin eru á mánudaginn eftir viku, hvað viltu hafa það betra?
Guð er góður það er það eina sem ég get sagt. Hann hefur blessað mig svo margfalt og ég átta mig ekki á því most of the time. Hann hefur gefið mér svo mörg tækifæri og möguleika í lífinu sem ég verð bara að tegja mig í og grípa, hann hefur gefið mér vinkonu sem hefur hjálpað mér svo mikið og reynst mér sannur vinur í raun og er alltaf til staðar þegar ég þarf á henni að halda, hann hefur gefið mér frábæra fjölskyldu sem styður mig í því sem ég tek mér fyrir hendur og hjálpar mér að takast á við lífið, hann hefur gefið mér frábæra tengdaforeldra sem alltaf eru að öllu vilja gerð til að hjálpa okkur Davíð, hann hefur gefið mér fullkominn hund sem er mitt líf og yndi og eins og hugur mans betri hund er ekki hækt að fá, en fyrst and for the most hefur hann gefið mér yndislegasta mann í heimi. Davíð er dásamlegur í alla staði og er ég svo þakklát Guði fyrir hann. Davíð myndi aldrei yfirgefa mig þegar ég þyrfti mest á honum að halda, hann er alltaf til staðar fyrir mig.
Hvað get ég annað sagt en takk Guð fyrir þetta allt saman. Takk fyrir að ég fékk að þekkja þig. Guð blessi ykkur öll dásamlega fólk og takk fyrir að vera hluti af mínu lífi.

Hver sá sem ákallar nafn Drottins, mun frelsast.
Post. 2:21

Kær kveðja Fjóla og Moli
8. dagar til jóla

Mynda blogg

Varð að skella inn nokkrum myndum af fallegasta fallega sem ég var að taka áðan.
Njótið vel!
Við kíktum í Garðheima áðan til að kaupa jólatré og tengda mamma vildi endilega skella á hann jólasveinahúu og ég var með myndavél svo skemmtilega vildi til.
Lítill og efnilegur Stúfur hér á ferð ;D

Tók nokkrar af Mola í snjónum áðan með jólaólina sýna er að spá í að senda hana í keppnina á hvuttum hvað finnst ykkur?

Amma að dekra við Molann sinn og gefa honum kjúkling en hann fékk nú ekki að naga beinið blessaður þótt hann langaði til þess.

Moli hjá uppáhalds frændanum Hlynsa bróssa. Hann er svo stór og gott að kúra hjá honum.

Það er nú eitthvað Gangster look á gæjanum við jólatréið eða hvað finnst ykkur? Chihuahua mafíuforingi á ferð :D

Allur innvafin jólaskrauti bara gert fyrir mömmu sína sem er mynda sjúk.

Bara smá innlegg í skammdeginu
Kær kveðja Fjóla og Moli

15. desember

Loksins loksins er allt farið að líta jólalegra út hérna hjá okkur heima. Ég náði að vaska upp taka til og riksuga en er ekki búin enn.
Við Davíð skelltum okkur í Fjarðarkaup í gær og keyptum piparkökur og sitthvað fleira. Við fórum svo með bílinn í þrif til Robba og er hann þar enn og veit ég ekki hvenar við fáum hann í dag. Daví, ég og Moli horfðum á It´s a wonderful life sem er jólamynd frá 1946 og er sýnd skilst mér á hverjum jólum í Bandaríkjunum. við vorum rosalega ánægð mðe hana og vill davið að við horfum á hana á hverju ári. Ég ætla að taka mig til og baka lakkrístoppa í dag einig ætla ég að reyna að klára þessar blessuðu jólagjafir og svo var planið að kaupa jólatré um helgina hver veit nema það verði í dag :D. Fyrir utan þetta ætla ég bara að reyna að slappa af og hafa það kósý í dag horfa á aðra jólamynd ætli það verði ekki Christmas vaction eða Elf eða Santaclaus. Einnig langar mig að sjá myndina Deck the Halls sem er jólamynd frá því í fyrra.
Ég ætla að reyna að dofla Helgu að gera kanski einhvað í skemmtilegt í dag fara kanski á kaffihús kanski vill Kristín koma með?
Annars ætla ég að skella in mynd af Mola, Fróða og Trítlu sem tók FOREVER að ná en hér er hún.
Kvær kveðja Fjóla og Moli

Jesús sagði: "Hverja þá bæn, sem teir yðar verða einhuga um á jörðu, mun faðir mnn á himnum veita þeim."
Matt. 18:19

9. dagar til jóla


Friday, December 14, 2007

14. desember

Góðan daginn gott fólk. Það er crazz veður úti og ekki get ég hugsað mér að þurfa að fara á fætur og fara í vinnuna.
Það er helst í fréttum að ég og Davíð skelltum okkur í bíó með Helgu á Bee movie. Við fórum áhana með eingar sérstakar væntingar en hún kom okkur skemmtilega á óvart. Þessi mynd er alveg þess virði að sjá hana og mæli ég eindregið með henni. Ég skellti mér svo í göngu með stöllunum mínum Kristínu og Helgu í Heiðmörkinni í þessu líka frábæra veðri.
Við Helga náðum loksins að klára pönntunina á petedge í gær þannig það er farið afstað. Ég fór svo í mat til pabba og mömmu meðan davíð var á jólaballi og skellti mér svo í mjöööög langþráð bað vá hvað það var gott.
Það er nú ekkert sérstakt sem ég ætla að gera í dag en þyrfti helst að ná að telja flöskurnar okkar og fara með þær í endurvinsluna, taka til og svo bara gera einhvað kósý með Davíð mínum.
Ég segi bara Guð merði með ykkur.

Kveðja Fjóla og Moli

Guð auðsýnir kærleika sinn til vor, þar sem Kristur er fyrir oss dáinn, meðan vér enn vorum í syndum vorum.
Róm. 5:8

10. dagar til jóla

Thursday, December 13, 2007

13. desember

Jæja gott fólk hvað segið þið svo gott?
Núna er aldeilis farið að styttast í jólin. Í gær fékk ég að vita að það verði jólahlaðborð í vinnunni minni og verður farið á Geysi bistro bar þann 21. desember og er Davíð boðið með líka. Við davíð förum þá á 4 jólahlaðborð í vetur eða hjá Bústaðarkirkju, mað fjölskyldunni, Árbæjarkirkju og Björnsbakarí.
Ég er svo sátt við mig þar sem ég er búin að klára jólagjöfina og afmælisgjöfina hans Davíðs ótrúlegt en satt. Núna er það bara ein gjöf sem á eftir að klára og finnst mér það mjög gott að þurfa ekki að stressa mig yfir meiru en því. Ég og mamma skelltum okkur nefnilega í kringluna í gær og náði ég þar að klára nánast allt.
Núna erum við búi að steikja laufarbrauð með báðum fjölskyldunum og gekk það bara mjög vel. Við skárum kökur og hlustuðum á jóla Clay Aiken heima hjá mömmu og pabba og skelltum okkur svo yfir til Jóhanns frænda og steiktum þær. Það var svaka stuð í bílskúrnum hjá okkur og mikið hleigið og haft gaman. Þar sem afi er farin að heyra illa þá komu upp nokkur tilfelli þar sem við höfðum sagt einhvað findið og svo hafði afi sagt nákvæmlega það sama og við höfðum verið að segja vegna þess að hann hafði ekkert heyrt þegar við sögðum það mjög findið dæmi: Mamma notar alltaf eldhúspappír til að þerra fituna af kökunum og verður pappírin gegnsósa af fitu. Við sögðum sem svona að það væri bara hækt að kreista fituna úr pappírnum og nota hana aftur og þá sagði einhver já eða bara borða pappírinn. Þá kom afi og sagði: það er bara hækt að nota fituna aftur úr pappírnum. Við hlógum náttúrulega miklu meira og afi vissi hélt hann væri svona rosalega fyndinn sem hann og var en þar sem við höfðum bara rétt lokið okkar tjók þá var þetta enn fyndnara.Það þarf nú að minnast á kökurnar hans Jóhanns. Þannig var mál með vegsti að hann keyfti kökur ír Árbæjarbakarí útflattar og tilbúnar eins og hann gerði í fyrra en núna í ár voru þær svo þykkar að þær uðru bara eins og laufarBRAUÐ ef þið skiljið mig bara rosalega seikt ekkert stökkt. Við prófuðum allt steikja þær lengur, setja þær í kæli, pressa þær ekkert, pressa þær rosalega mikið en ekkert gekk. Krúsa kom í eitt skiptið með köku sem hún hafði látið kólna inn í bílskúr og dinglaði henni fram og til baka og við hlógum svo mikið. Ég held að mamma sé búinn að ná að sannfæra Jóhann um að kaupa Kristjáns laufarbrauð á næsta ári því okkar voru fullkomnar.
Í dag veit ég ekki hvað dagurinn hefur uppá að bjóða en það verður alveg örugglega einhvað frábært. Giljagaur kom til byggða í nótt en hann gaf mér ekkert :( en ég fékk jólastaf eða candycane frá Stekkjastaur. Jæja ég ætla ekki að hafa þetta lengra í dag bið bara að heilsa ykkur.

Jólsþorpið hennar mömmu sem ég setti upp um daginn

Með ljósi

Við á fullu að skera laufarbrauð

Moli var orðin þreyttur og vildi bara vera hjá pabba og kúra

Afi á fullu að steikja

Mamma á fullu að þerra og pabbi að henda ofaní pottinn

Dísa að prófa seigu kökuna

Guð blessi ykkur Fjóla og Moli

Barn er oss fætt, sonur oss gefinn. Á hans herðum skal höfðingjadómurinn hvíla. Nafn hans skal kallast Undraráðgjafi, Guðshetja, Eilífðarfaðir, Friðarhöfðingji.
Jes. 9:6

11. dagar til jóla

Wednesday, December 12, 2007

12. desember

Þá er fyrsti jólasveinnin komin á kreik hann Stekkjastaur.
Ég er svo rosalega þreitt að það hálfa væri nóg nenni ekki í vinnuna fyrir fimm aura. Langar að liggja heima og sofa hjá manninum mínum og hundinum mínum því það vill svo skemmtilega til að þeir eru ynndislegastir.
Ég setti upp hólaþorpið hjá pabba og mömmu í gær og er það rosalega flott í ár eins og alltaf. Ég þarf að smella af því mynd og setja hérna inn. Mamma fór svo með mér í hundafmi að sjá hvað Moli er duglegur og stóð kallinn sig eins og hetja. Eftir fimina kíktum við örstutt í Garðheima að skoða jóladótið sem er nú alltaf gaman.
Í kvöld er svo laufarbrauð hjá Jóhanni frænda og verður það alveg öruglega mikið stuð og gaman. Jóhann er vanur að vilja 300-400 kökur af laufarbrauði sem er nú ekkert smá og höfum við oft setið yfir að sketa þetta og svo steikja alveg langt fram á nótt en núna ætla pabbi og mamma bara að skera sitt heima og steikja bara hjá Jóhanni þar sem þau úa nú á móti hvort öðru.
Ég hef fátt að segja í dag nema bara að það er stutt í jólin og ætla ég að reyna að klára þessar gjafir sem allra allra fyrst og ætla ég að skella mér í Kringluna í dag.
Kær kveðja Fjóla og Moli

Guð hefur gefið oss eilíft líf, og þetta líf er í syni hans. Sá, sem hefir soninn á lífið, sá, sem hefir ekki Guðs son á ekki lífið.
1. Jóh. 5:11-12


12. dagar til jóla

P.s. Helga þú átt von á mér í dag til að taka mynd af voffunum saman ;).

Tuesday, December 11, 2007

11.desember

Þá er jólahlaðborðið búið :(. Við fórum í Perluna í ár eins og ég hef örugglega minst á en það var mjög fínt. Ég var samt ekki eins ánægð og með Grandhótel. Það var einhvernvegin meiri kósý stemmning þar hringlaga borð og svona en það sem Perlan hafði framyfir Grand voru fleyri réttir og eftiréttir :D. Við fórum heilan hring í Perlunni (þar sem hún snýst þið munið ;)) og tók það 2 og hálfan tíma. ég verð að viðurkenna að ég var orðin ansir þreytt eftir umburðarríkan dag þegar við komum svo heim í brjáluðu veðri klukkan hálf ellefu.
Ég fór nefnilega fyrr um daginn með Helgu í göngu með hundana + Sól og Coco og var það voða gaman. Í dag fór ég svo aftur í göngu með Kristínu og Helgu í ekki svo góðu veðri.
Núna er Coco hjá mér meðan ég blogga og vill ólmur komast niður til Mola. Við erum svo á leiðinni í mat til mömmu og pabba og svo er planið að fara að skreyta jólaþorpið hjá mömmu.
Ég sé hvort ég nenni í hundafimi með Mola í kvöld en bæði hann og ég hefðum gott af því.
Ég læt þetta næja í bili læt myndirnar um restina.
Ég og Dísa hans Hlynsa

Ég og Pabbi
Hlynsi með pínulitla kaffibollan ógeðslega fyndið ;D

Systkinin Guðlaug María og Davíð
Linda Tengdamamma og pabbi


Mamma og Sveinbjörn tengdapabbi
Kveðja Fjóla og Moli


Ef einhver er í Kristi, er hann skapaður á ný, hið gamla varð að engu, sjá nýtt er orðið til.


2. Kor. 5:17


13. dagar til jóla

Monday, December 10, 2007

10. desember

Þá er þessi dásamlega helgi búin því miður og önnur vinnuvika tekur við. Ég er ekkert alltof upplögð að fara ða vinna en þannig er það bara víst því miður. Í gær voru skorin laufarbrauð og hlustað á jólatónlist svo borðuðum við hanginkjöt og uppstúf og drukkum jólaöl með.
Ég fór í smáhundagöngu í gær sem gekk nú ekki nógu vel Coco kom með og hafði ég ekki miklar áhyggjur af honum þar sem hann stóð sig svo vel þegar hann fór með okkur Helgu og Kristínu en hann varð einhvað skelkaður þarna og naut sýn ekkert.
Í dag ætla ég svo að reyna að fara í göngu með Helgu og kanski Kristínu og svo er jólahlaðborð í kvöld og það verður sko gaman.
Ég hef það ekki lengra í þetta skiptið. Guð blessi ykkur öll.

Kær kveðja Fjóla og Moli

Jesús sagði: "Biðjið, og yður mun gefast, leitið, og þér munum finna, knýið á, og fyrir yður mun upp lokð verða."

Matt. 7:7

14. dagar til jóla

Sunday, December 09, 2007

9. desember


Þessi helgi er búin að vera alveg dásamleg í alla staði. Við Davíð erum búin að á að klára helling að því sem við ætluðum að gera og ætlum við að reyna að klára það í dag sem við vorum búin að ákveða að gera um helgina. Ég er búin að pakka inn nánast öllum gjöfum sem við erum búin að kaupa og er ég bara sátt með það. Ég og Davíð keyftum t.d. í gær gjöf handa Mola, Trítlu og Fróða og Sóldísi og Aris.
Í dag ætlum við svo að lára alveg að taka til, og kíkja svo í jólaþorpið í Hafnarfirði og svo fer ég í smáhundagöngu og vá hvað það verður gaman. Í kvöld er svo laufarbrauð hjá tengdó eins og ég hef minst á hér og hlakka ég mjög til, held ég skelli jólaólinni á Mola og geri hann fínan ;).
Restin af jólakortunum verður svo hent í póst í dag og þá er það búið og farið út YESSSS!!! Ég ætla líka að reyna að taka fallegar jólamyndir af Mola í dag úti og inni og senda í keppnina á hvuttum og sjá hvort maður vinni ekki með svona flottan hund ;D.
Ég held ég hef fátt fleira að segja eins og er þið fáið bara myndir og gaman á morgun eftir gönguna og svona.
Guð blessi ykkur öll og eigiði góðan dag.

Kveðja Fjóla og Moli

Meistarinn er hér og vill finna þig
Jóh. 11:28

15. dagar til jóla

Saturday, December 08, 2007

8. desember


Hann á afmæli í dag hann á afmæli í dag hann á afmæli hann PABBI hann á afmæli í dag JEEIIIII :D. Núna er komin 8 desember og þá verður pabbi 45 ára eða hálf fimmtugur ein asnalega og það hljómar fyrir mig allavegana. Við Davíð ætlum að fara og kaupa afmælisgjöf núna á eftir og held ég að Hlynsi bróssi ætli að vera með okkur í henni.
Planið svo í dag er mjög þétt þar sem það þarf að gera helling af hlutum. Það þarf að taka allt í gegn hérna heima og klára að jólaskreyta, fara og versla jólagjafir, kíkja auðvita til pabba og mömmu, panta á netinu með Helgu, senda restina af jólakortunum, fara í labbitúr með Mola og vonandi einhverjum fleirum og jafnvel pakka inn jólagjöfum úúúú.... ;D
Á morgun er svo laufarbrauð um kvöldið hjá tengdó og verður það rosalega gaman og jólastemmarinn í hámarki.
Ég og Moli tókum Sól og Coco með okkur í göngu í gær með Helgu og Kristíu og voru með í för Fróði, Nala, Sóldís og Aris þannig að allt í allt vorum við með 7 hunda VÁ!!! Trítla var ekki með þar sem hún er ný búin að fara í geldingu og má ekki hreyfa sig of mikið. Það var sko rosa stuð hjá hundunum og elskaði Sól greyið að fá að fara með þar sem ég hef bara alltaf verið að taka Coco með mér en hana ekki. Það var svo gullfallegt veðrið og við töpuðum okkur alveg í myndatökum eins og sjá má.
Ég held ég hafi þetta ekki lengra í dag en leifi myndunum að tala.



Ætli maður byrji ekki á mannfólkinu en þarna er ég og Helga


Ég og Kristín

Fróði beauty prins


Rosalega góð mynd af Mola og Aris svo ógó sæt


Þarna var Aris ný búin að vera að grafa nebbanum ofaní snjóinn ig leit svo sona sætt upp


Sól skemmti sér Konunglega og var hin hressasta en maður fann að hún var orðin þreitt svona seinustu 15 mínúturnar því þá var hún bara fyrir aftan mig og labbaði þar rólega ;D


Dæmi um hvað veðrið var himneskt


Þá koma myndir af fallegasta hundi í heimi.. no offence stelpur ;). Ég náði svo flottum myndum af kallinum í nýu úlpunni sem mamma keyfti á Flórída handa honum


Rosalega flottar myndir þessi verður notuð í jólakortið næsta ár kanski ;)


Kær kveðja, Guð blessi ykkur

Fjóla og Moli

Minnist bandingjana, sem væruð þér sambandingjar þeirra. Minnist þeirra er illt líða, þar sem þér sjálfir eruð einnig með líkama

Heb. 13:3

16. dagar til jóla

Friday, December 07, 2007

7. desember

Ég skellti mér á tónleika í gær kvöldi með mömmu og Benjamín alveg óvænt. Við fengum miðana hjá tengdó á Jólatónleika Fíladelfíu vegna þess að þau komust ekki. Tónleikarnir voru ágætir. Páll Rósinkrans var gestasöngvaro og var hann bara ágætur. Það var engin fiðla í þetta skiptið og saknaði maður hennar alveg rosalega mikið. Efitr tónlekiana kíktum við mamma aðeins í jötuna og viti menn helduru að maður hefði ekki fundið Kristilegan disk með Brian Littrell úr Backstreet boys. Þetta var ánægjulegt og keyfri mamma hann handa mér og er hann nokkuð góður enda ekki við öðru að búast.
Ég fór í göngu í gær með Kristínu og hennar voffum og ég og Moli tókum Coco með sem var ekkert smá sáttur með það. Við ætlum aftur á morun í göngu og ætla ég að reyna að taka Sól með okkur þar sem við ætlum í langa og góða göngu og nú skal sko myndavélin vera við höndina.
Davíð er að fara í próf í dag næst síðasta og er það alveg rosalega mikill léttir hér á bæ þegar það er búið. Við ætlum svo að fara að jólavesla einhvað og gera fínt fyrir jólin um helgina og þess inni á milli fer ég í göngur með Mola en það verður smáhundaganga á sunnudagin sem mig langar að fara í.
Pabbi á afmæli á morgun elsku bestasti kallinn minn og verður hann 45 ára. Við Davíð getum ekki beðið ða gefa honum kortið sem við keyftum anda honum en það er gargandi snild.
Við fengum Grænakortið okkar inn í bandaríkin í fyrradag þegar afi, amma og mamma komu heim og vá hvað það er flott. Það er mynd af okkur og fingrafarið okka og svo er aftan á því einhver svaka plata sem geymir enhverjar endalausar upplýsingar um okkur. Það er best að tína þessu ekki ;D.
Jæja ég hef það ekki lengra í þetta skiptið og bið bara að heylsa ykkur. Guð blessi ykkur

Kær kveðja Fjóla og Moli

Ver þú hughraustur og öruggur! Lát eigi hugfallast og óttast eigi, því að Drottinn Guð þinn er með þér í öllu sem þú tekur þér fyrir hendur.
Jós. 1:9

17. dagar til jóla

Thursday, December 06, 2007

6. desember

Dagurinn í dag verður erfiður. Við höfum tekið ákvörðun um að láta Hnetu fara. Það eru margar ástæður fyrir því að þessi rosalega erfiða ákvörðun var tekin og erum við rosalega sorgmæt yfir þessu. Moli vildi ekkert hafa með hana að gera og var hálf skelkaður við hana og fanst okkur hræðilegt að horfa uppá hann því hann er búin að vera skugginn af sjálfum sér þegar hún er nálagt mjög sorglegt. Við Davíð bjuggumst ekki við því að þetta yrði svona erfitt og höfum við gjörsamlega einga orku til að sinna öllu því sem hún krefst af okkur. Hún og Moli eru mjög ólík í alla staði og sjáum við enga leið að þau muni ganga saman til framtíðar.
Ég hef verið algjörlega uppgefin alla daga og hef ekkert til að gefa frá mér. Ég þarf ða vinna í mínum málum og get ég það ekki þegar hún er til staðar. Líkaminn minn segir nei hingað og ekki lengra. Við erum búin að fá frið fyrir þessu frá Guði og trúum því að hann standi á bakvið okkur á þessum erfiðu tímum.
Mér líður náttúrulega hálf ömurlega þar sem draumur minn um annann hund fer svona gjörsamlega í vaskin og verður það erfitt fyrir mig að geta fengið mér annan einhverntíman seinna meir.
Ég vona að þið skiljið bara af hluta til hversu erfitt þetta er fyrir okkur. Guð blessi ykkur öll og takk fyrir allan þan stuðning sem mér hefur verið sýndur og er ég rosalega þakkælát fyrir hann.

Kveðja Fjóla og Moli

Ef einhvern yðar brestur viska, þá biðji hann Guð, sem gefur öllum örlátlega og átölulaust, og honum mun gefast. En hann biðji í trú, án þess að efast.
Jak. 1:5-6

18. dagar til jóla

Wednesday, December 05, 2007

5. desember

Jæja loksins er mamma komin heim og rosalega er gott að fá hana. Ég er búin að vera meira og minna hjá henni í allan dag og sjá allt dótið sem hún keyfti og var það rosalega gaman. Við fengum allt hundadótið en ég hef sterklegn grun um að við höfum klúðrað pöntuninni eða að ég hef klúðrað henni fyrir okkur :( ég held það vanti allar ólar við taumana.
Dagurinn er búin að vera mjög erfiður þar sem mikið af hugsunum fljúga um hausinn á mér varðandi Hnetu. Ég ætla ekki að fara nánar út í það þar sem engar ákvarðanir hafa verið teknar endanlegar.
Ég ætla á bænastund í kvöld og vona ég svo innilega að Helga sé nógu hress til að fara með mér. Ég hef risa stórt bænarefni til að biðja fyrir.
Davíð er að fara í próf eftir 50 mínútur tæplega og er hann gjörsamlega að farast úr stressi elsku dugleasti maðurinn í heiminum. Ég bið ykkur um að biðja fyrir honum að allt megi ganga betur en hann heldur að þetta muni ganga. Davíð fékk samt úr munlega prófinu sem hann tók í gær og hann hélt að hann hefði ekki staðið sig vel en nei nei minn maður fékk 8,5 og var hæðsta einkunninn 9 þannig að þetta hefði valla getað orðið betra.
Ég verð í bandi á morgun og bið Guð um að vaka yfir ykkur og vernda ykkur á sama tíma og ég bið hann um að mæta mér í mínum erfiðleikum.

Kær kveðja Fjóla, Moli og Hneta

Eitt að lokum
Jæja sjáið þið einhvað útúr þessu?

19. dagar til jóla

p.a. ný hefð núna verð ég alltaf með ritnigarvess á hverjum degi njótið vel.

Jesús sagði: "Yðar himneski faðir veit, að þér þarfnist alls þessa. En leitið fyrst ríkis hans og réttlætis, þá mun allt þetta veitast yður að auki."

Matt. 6:32-33.

Tuesday, December 04, 2007

4. desember

Jæja þá er ég vöknuð gjörsamlega uppgefin eftir gærdaginn. Það er rosalega mikið álag á mér og Davíð þessa dagana og verð ég fljótt rosalega þreytt. Hneta var erfið í gær og ekki bætti það úr skák. Ég á það til að stressast öll upp sem gerir allt miklu verra en það þarf að vera og þá er allt komið í háaloft.
En á skemmtilegri nótum fór ég í göngu í gær með Kristínu vinkonu og Mola, Hnetu, Coco, Sóldísi og Aris og var ekkert smá gaman hjá þeim öllum, rosalega góður hópur saman. Hneta stóð sig rosalega vel í göngunni og vældi bara smá í enda göngunnar þegar hún var orðin þreytt og köld.
Í dag er málið að fara í göngu aftur með Helgu, Mola (en hann verður kanski heima finnst eins og hann sé að verða veikur), Hnetu, Coco, Fróða og Trítlu um tvö leitið. Það væri gaman að taka Sól með en hún bara er of stór í bílinn minn og þegar ég er með alla þessa hunda er það soldið erfitt. Ég sé samt hvað ég geri í dag ef Moli er ekki að fara með ;D.
Mamma kemur í fyrramálið á morgun loksins loksins loksins. Ég á þá alltaf eftir að vera hjá mömmu með hundana líklega út þessa viku.
Davíð er að fara í fyrsta prófið sitt núna í dag kl 9 og vil ég biðja ykkur um að hafa hann í bænum ykkar á þessum tíma. Ég vona að hann hafi fengið nægan tíma til að læra þrátt fyrir vandræðin í gærkvöldi.

Guð blessi ykkur
Fjóla, Moli og Hneta

20. dagar til jóla

Monday, December 03, 2007

3. desember

Þá er maður vaknaður og fer að fara í vinnuna bráðum. Það verður mikið umm ða vera hjá mér í dag þar sem ég er ábyrgðarmaður Coco næstu tvær vikurnar of fer til hans á hverjum virkum degi og er með honum og tek hann út að labba og einhvað skemmtilegt.
Davíð fer í próf á morgun og veit ég að hann verður stressaður í dag þannig að ég ætla ða vera eins mikið í burtu með hundana eins og ég get. Ég ætla að dofla Kristínu og Helgu að fara með mér í labb með alla mína ÞRJÁ í þetta skiptið og reyna að þreyta litlu skinnin.
Það verður þvímiður engin hundafimi á morgun sem er fúlt fyrir mig og Mola en svona er þetta bara víst. Það styttist óðum í að mamma komi heim og get ég ekki beðið að hitta hana með alla voffana og sjá allt dótið sem ég keyfti og hún keyfti.
Ég held ég hafi það ekki lengra að þessu sinni en bið ykkur öll bara að lifa vel og njóta dagana til jóla.

Kveðja Fjóla, Moli og Hneta

21. dagur til jóla

p.s. ég er svo ánægð að það sé verið að sýna Pú og Pa jóladagatalið ver búin að sakna þeirra smá og ætla að fylgjast með þeim í ár.