Thursday, March 20, 2008

Kveðju partý í gærkvöldi

Í gærkvöldi buðum við nokkrum vinum í heimsókn til að kveðja mig áður en ég fer út til Flórída. Við pönntuðum pízzur handa liðinu og svo var það bara nammi og snakk eins og þú gast í þig látið.
Kvöldið var æðislegt enda komu vinir sem við höfum ekki séð í allt allt of langan tíma og var það rosalega gaman og löngu komin tími til. Núna er það bara ða gera betur þegar ég kem aftur og partý í hverri viku ;).
Ég ætla að láta myndirnar tala fyrir rest skemmtið ykkur gott fólk.
Moli mjög spenntur yfir öllum gestunum

Helga bestasta með Fróða sinn

Elísabet gella hress í hörkku samræðum

Moli og Berglind sín

Básgeir í stuði eins og alltaf :D rosa gaman að fá þau í heimsókn eftir alltof langa bið

Halldór, Tinna og Davíð
Moli hjá Halldóri sínum. Þeir eru báðir jafn hrifnir af hvor öðrum ed ég bara

Ég fékk glös fá Svanhvíti frænku í afmælisgjöf sem heita "Pick your nose" Við ákváðum að nota þau í tilefni dagsins og höfðum við mjög gaman af því eins og næstu myndir gefa til kynna, takk frænka ;). Ég er soldið eins og ég veit ekki Mörgæsarmaðurinn úr Batman

Tommi góður!!!

Davíð með myndarlegt yfivararskegg

Helgu ymd er best held ég flottur varalitur Helga!!! :D

Jón Ómar flottur ;D

Berglid sæta með mjög pent og kvenlegt nef



Ásgeir og hans nef Flottur með hýung á vörinni ;)

Við enduðum uppi með tvær sófaklessur eftir langt og skemmtilegt kvöld. Hér er sófaklessa 1

Sófaklessa 2 ;D

Í lok kvölds voru svo bestustu vinirnir eftir og enduðum við í mjög djúpum og góðum umræðum sem við höfðum öll gaman af þrátt fyrir tilfinninga ríka umræðu

Guð blessi ykkur og takk fyrir komuna rosa gaman :D

Tuesday, March 18, 2008

Ganga í dag í snjónum og góða veðrinu

Við stöllurnar þrjár skelltum okkur með alla hndana + Coco í göngu í Þjóðhátíðarlundi í dag í frábæruveðri. Ég vil láta myndirnar tala þannig að njótið vel.

Moli á stökki rass upp í loft :D

Moli og Coco að elska það að vera úti í snjónum. Fanst þessi mynd soldið töff

Hey má ég vera með á mydinni?

Fróði og Rjúpurnar þrjár nýa metsölubókin fjallar um hundinn Fróða og rjúpurnar þrjár sem komust undan ;)

Sóldís prinsessa ekki alveg jafn ánægð með snjóinn og hinir hundarnir. It sucks being a schort haird Chihuahua in winter

Moli fallegi

Aris ákvað að pósa smá fyrir okkur gellurnar og það náðsit þessa eina mynd ég kýs að kalla hana Aris fjallageit

Eltingaleikur í aðsýgi

Gullfallegt veður eins og alltaf hérna heima ;)

Kv Fjóla og Moli

Sunday, March 16, 2008

Fjöruferð

Við stöllurnar þrjár skelltum okkur á Kúluströnd og vá hvað það var gaman. Hundarnir voru svo sáttir að fá að hlaupa og leika sér í sandinum og sólinni. Við löbbuðum á ströndinni í einn og hálfan tíma og nutum náttúrunnar og veður blíðunnar þrátt fyrir að það varð soldið kalt undir lok göngunnar.
Ég ætla að láta myndirnar tala og bið ykkur vel að njóta
Sóldís prinsessa elskaði að vera úti í góða veðrinu alveg alsber enda ekki þörf fyrir neina yfirhöfn

Á þessari mynd eru þrír hundar....já þeir eru þrír. Moli er vanur að hlaupa við hliðina á Fróða og öskra í eyrað á honum ;). Hundar hvað getur maður sagt


Moli á harða spretti á undan Aris sem náðist þó ekki inn á myndina ;)

Sjáið bara veðrið sem við fengum algjör draumur.
Svona er ástin mikil milli Mola og Fróða þeir kyssast út í eitt og skammast sín ekkert fyrir það.



Fróði sáttur að fá smá öndunarpásu


Helga og Kristín. betri vini er ekki hækt að fá.




Helga tók upp kuðung í fjörunni og að sjálfögðu varð Fróði þá ða taka hann og athuga hann nánar.

Moli alltaf jafn handsom!!


Fróði, Moli og Aris alveg að tapa sér í eltingaleik. Hundarnir voru svo rosalega ánægðir með fjöruferðina og fíluðu sig í botn.

Kær kveðja Fjóla og Moli

Saturday, March 15, 2008

Esjuganga með Marco og Karo

Jæja eftir viðburðarríkan dag í gær þar sem ég söng fyrir framan 6000 mans eða troðfulla Laugardagshöll ásamt Gospelkónum og Sálinni hans Jóns míns. Það var rosa stuð og algjört egópúst að standa þarna fyrir frama allt þetta fólk og syngja. Fyrir utan það var ég með the ultimit packstagepas eða AAA passa sem þýddi ða ég mátti fara allt sem ég vildi ;), ég var tildæmis að chilla með Sálinni áður en tónleikarnir byrjuðu :D.
En nóg með það í morgun væknuðum við Davíð svo kl hálf 9 til að taka allt í gegn hérna heima sem var löngu komin tími á. Mamma og pabbi komu svo færandi hendi með bakaríis mat og svo var lagt afstað að ná í Marco og Karo til að skella ér upp á Esjunasem ég er búin að hlakka til að gera frá því við ákváðum að skella okkur. Moli kom að sjálfsögðu með og var fólk ekkert smá hissa á dugnaðinum í litlu músinni okkar sem labbaði alveg þrefalt á við okkur hljóp upp og niður og naut sín í botn. Hann lenti þó í því að hitta aðeins of æstan svartan labba (sem er ekki uppáhalds tegundin hans ásamt risa snáser) og panikaði Moli af hræðslu. En það leið hratt hjá og var hann fljótur að ná sér þegar labbinn var farinn.
Við vorum að sjálfsögðu með myndavélina með og smelltum af alveg á fullu. Marco fann hvorki meira en minna 3 lonely gloves og var að sjáfsögðu smellt mynd af þeim. Veðrið var algjörlega himnest og áttuðum við okkur fljótt á því að við vorum alltof vel klædd þannig að ekki leið á löngu að við fórum að tína af okkur spjarirnar. Við Davíð og Moli vorum þó þau einu sem náðum upp að Steininum þar sem Karo var hálf slöpp og ákvað Marco að fara til hennar eftir smá labb áfram þar sem hún sat á steini og beið eftir okkur í góða veðrinu.
Í kvöld ætla þau svo að koma í heimabakaða pízzu og böku sem verður rosa gaman og skemmtilegt. Marisa og Jón ætla svo líka að kíkja seinna um kvöldið þannig að það verur stuð hér á bæ.
Ég læt þetta duga í bili en læt nokkrar myndir fylgja með.


Marco alltaf hress :D
Moli á harða spretti niður brekkuna


Davíð lang flottasti eiginmaður í heimi. Töffari :D


Ég og Moli næstum því komin að steninum

Komin hjá Steininum

Já og Davíð líka ;)

Og Moli fékk eina af sér einum á steininum.

Jæja hafið það gott og Guð blessi ykkur

Tuesday, March 11, 2008

13 eða 14 dagar í brottför!

Jæja þá er sko farið að styttast í að ég fari út. Pabbi hefur verið að reyna ða vinna í því að ég komist út degi fyrr eða 24. mars vegna þess að þá fara þau út (þar ða segja pabbi og mamma) og væri gott að fara samferða þeim annars skiptir þetta ekki öllu máli.
Við Moli kíktum til Helgu í dag til að hjálpa henni smá við að pakka niður þar sem hún er á fullu að flytja út úr íbúðinni sinni þessa dagana. Ég mætti með sá bakaríis mat til gellunar og svo var bara farið í að pakka niður í kassa. Heimsóknin var þó ekki mjög löng þar sem ég þurfti að fara og ná í Davíð upp í skóla en það var allt í lagi.
Við Davíð skelltum okkur svo í stutta sundferð áður en við fórum í mat til tengdó sem var löngu komin tími á þar sem manni finnst eins og maður hefur ekki sé þau í ár og öld. Allir í Vesturbænum eru mjög hressir og kátir og stuð á mannskapnum ;).
Núna er Davíð með tengdapabba á Gideon fundi þar sem verið er að vígja Davíð inn í félagið. Ég þurfti að sjálfsögðu að spurja og vera með vesen hvort þetta væri ekki bara Frímúrararegla í dulbúningi en þau tóku þessu nú ekki mjög alvarlega þar sem þau vita hvernig ég er.
Núna liggjum við Moli og huggum okkur uppi í rúmmi og ætlum að fara snemma að sofa það er mikið sem er framundan og þarf að safna orku til að komast í gegnum allan þann pakka.
Svona til að nefna það helsta þá ætla ég að skella mér í bíó á fimmtudag með Kristínu og Helgu á 27 dressis, á föstudag eru Sálar tónleikar kl 22:00 sem ég verð að syngja á, á laugardag er svo kóræfing, Esju labb með Karo og Marko og matarboð um kvöldið með þeim líka og á sunnudaginn er svo planað að reyna að fara í fjöruferð mðe Kristínu og Helgu ásamt öllum voffunum.
Mikið að gera og ekki minkar það í næstu viku.

Takk í kvöld Kær kveðja Fjóla og Moli kúrudýr

Sunday, March 09, 2008

Nokkrar myndir frá gærdeginum


Í gær vaknaði ég um 9 leitið og fékk stutt eftir það sms frá Kristínu vinkonu. Hún spurði hvort ég hefði áhuga á að kíkja með sér í göngu. Ég sagði að sjálfsögðu já og við fórum í Elleðaárdalinn í frábæru veðri og var það rosalega frískandi í morgunsárið.

Gullfallegt veður í göngunni. Þetta er fossinn í Elleðaárdalnum


Esjan var svo falleg eins og hún væri með skýasæng yfir sér

Ég rölti svo með Moli til pabba og mömmu og enduðum við svo heima hjá Hlynsa og Dísu þar sem pabbi og Hlynsi voru að koma fyrir sjónvarpinu. Við skelltum okkur svo í IKEA og svindluðum Mola inn, rosa gaman hjá honum.


Moli elskar gluggan hjá Hlynsa getur setið á gólifu og horft á alla krakkana fyrir utan

Seinna um kvöldið skelltum við okkur svo í mat hjá Marco og Karo Þjóðverjavinunum okkar. Ég er að vinna með Marko í bakaríinu fyrir þá sem vita það ekki og er hann alveg frábær og þau bæði. Davíð fílaði þau bæði í botn og ég segi það sama mjög þægileg og skemmtileg, það er hægt að orða það þannig að manni líður vel í kringum þau. Moli fékk að koma með í taco veisluna og var hann mjög sáttur við það.
Ég læt þetta duga leifi ykkur bara að njóta myndanna.


Þarna er Marco kallinn altaf hress

Og þarna er Karo kærastan hans með Mola kallinn sem fílaði hana í tætlur en hún er algjör hundakelling eins og ég og ætlar að fá sér Pug þegar þau flytja aftur til Þýskalands

This one is especially for Marco for his Lonely glove collection ;) I saw it right in front of your house

Knúsar frá Fjólu og Mola

Thursday, March 06, 2008

Jæja litli bróssi fluttur að heiman...

já eða svona nætum því. Bróðir minn fékk íbúðina sína afhenda í dag og er ég búin ða vera þar meira og minna í dag. Það er búið að mála svefnherbergið og þvottahúsið en annað á að bíða eins og er. Hann er alveg að springa eins og má búast við þegar maður fær sína fyrstu íbúð og verður spennandi að sjá hvernig honum og Dísu á eftir að ganga.
Ég ætla að láta nokkrar myndir fylgja með njótið vel.

Pabbi að þrífa málingarrúlluna


Mamma, Hlynsi, Dísa og mamma hennar Dísu öll rosa ánægð með íbúðina

Lilly amma með uppáhalds hundinn

Hlynsi og Moli. Mola fanst ekkert smá gaman að koma í nýu íbúðina

Bróssi rosa spenntur

Tuesday, March 04, 2008

Markt sem þarf að skipuleggja fyrir Flórída

Jæja þá erum við Davíð loksins búin að ná að setjast niður og skipuleggja Ameríkuför mína.
Við erum búin að fara í gegnum öll aðal atriðin en eigum eftir að klára og ganga frá nokkrum smáatriðum ásamt nokkrum stórum atriðum.
Við erum búin að ákveða að bílinn meigi ekki kosta meira en $ 7000, ég þarf að kaupa síma úti, Davíð er búinn að panta fyrir mig tíma í skriflega og verklega bílprófið, búin að kaupa farið heim til Íslands 31. maí o.s.fv. Það sem á eftir að gera áður en ég fer út er að redda tryggingaupplýsingum, ákveða hvað er gott að taka með út núna, læra á gps-tækið, instalera skypinu, leita að kirkjum í nágreninu á netinu, athuga með vefmyndavélar o.s.fv.
Eins og sjá má er mikið sem þarf að skipuleggja og er það spennandi og á sama tíma stressandi.
Ég er náttúrulega orðin rosalega spennt að komast út og get ekki beðið en á sama tíma er ég kvíðin og stressuð að fara svona lengi frá kallinum mínum og litla Mola barninu.
Ég veit að Guð á eftir að vera með mér og ég veit að ef ég treysti honum verður allt í lagi.
Jæja hef það ekki lengar í þetta skiptið.


Kær keðja Fjóa Flórídafari

Monday, March 03, 2008

Guð er góður

Guð er það besta sem hækt er ða eiga í þessu lífi gerið allt sem þið getið til að fá að upplifa ást hans. Það er erfit á tímum og ég er enþá að vinna í því en ástæðan fyrir því að ég er en að reyna er sú að ég veit að líf mitt hefði meiri tilgang ef ég væri að gera vilja hans og lifi í honum.
Guð elskar ykkur öll ALLTAF!! Það er ekkert sem þið getið gert sem gerir það að verkum að hann hætti að elska ykkur. Ég skil þetta ekki fyllilega enþá en er að vinna í því.
Guð blessi ykkur elsku dúllur og eigið góðan dag!
Kær kveðja Fjóla Dögg

Sunday, March 02, 2008

Kór æfing, Chihuahua bás, afmælisboð, keila og hádegismatur.


Jæja það hefur verið nóg að gera hjá mer og Davíð þessa helgi.
Ég fór á kóræfingu í gær og þar sem ég þurfti ða vera mætt á Chihuahua bás kl 12 og æfingin var ekki búin fyrr en 12 þá fékk ég með leifi Óskars að taka Mola með á æfinguna. Moli vakti svona líka mikla lukku. Edgar og dóttir hans sátu við hliðina á mér nánast alla æfinguna útaf voffa þar sem þau voru bæði svo hrifin af hinum. Aðrir komu og sýndu honum áhuga sem Mola fannst nú sko als ekki leiðilegt. Þegar við þurtum svo að fara 15 mín fyrir 12 var mér hrósað í bak og fyrir hvað hann er vel uppalin og frábær hundur, þannig að einhvernvegin hef ég það á tilfinningunni að ég meigi taka hann með mér aftur ef þörf er á því. Annasr er rosalega mikið að gera hjá kórnum núna það verða Sálar tónleikar þann 14. mars í höllinni og það verða væntanlega 6000 mansa á staðnum.... VÁ!! Á næstu æfingu kemur svo Jasmín dansgella og ætlar að gera smá gorígrafíu með okkur. Strax svo eftir tónleikana er farið að vinna í páska lögum.
Þá er það Kynningarbásinn, sú sem átti að vera með mér var með veikan hund og gat ekki komið með hann þannig að auma Tara var látin vera í 2 tíma í viðbót með okkur Mola og Davíð kom og var með mér á básnum sem var bara mjög gaman að fá að hafa hann með mér. Hann stóð sig svo vel að svara öllum spurningunum sem fólk spurði og er ég svo stolt af honum. Helga vinkona kom og heilsaði upp á okkur og endaði með því að kaupa búr handa Mola þar sem hún vissi að mig langaði í það og hún skuldaði mér pening og ákvað að leisa bara vandan svona... Helga engri lík það er alveg á hreinu ;).
Kristín vinkona stóð sig eins og algjör pró á sýningunni og elskuðu bæði Sóldís og Aris að fá að vera með henni og gera allt það sem hún vildi að þær gerðu. Ég segi bara innilega til hamingju með þær báðar og hlakka til ða sjá þig á sýningum í framtíðinni.
Við Davíð fórum svo í afmæli í Keflavíkinni hjá Ágústu og Hemma en hún Valí litla átti afmæli og er orðin 4 ára. Við átum og átum og spjölluðum og höfðum það bara gott. Jón Magnús hringdi svo í Davíð og spurði hvort við vildum fara með honum og Marisu í keilu og við sögðum bara já og skellum okkur með þeim strax og vil lentum í bænum. Það var rosagaman ég var náttúrulega neðst og Jón efstur. Vonandi hittum við þau sem fyrst aftur.
Nuna á eftir er svo hádegisatur hjá pabba og mömmu með tengdó þar sem við erum að fara að ræða Ameriku mál. Við Moli ætlum að taka langan röltara til pabba og mömmu sem verður hressandi og gott.
Svo veit maður aldrei hvort maður hitti kanski Helgu í kvöld og horfi á mynd eða einhvað annað skemmtilegt.

Njótið dagsins og næstu viku Guð blessi ykkur

Kveðja Fjóla og Moli

p.s. 23 daga í Flórída