Sunday, October 15, 2006

Belgískur Griffon eða Papillon?

Jæja krakkar mínir núna vil ég heyra ykkar álit á málunum.
Ný er stefnan sett á að fá sér annan hund á næstunni annaðhvort núna næsta sumar ef ég næ að sannfæra Davíð, ömmu og afa eða sumarið 2008. Málið er bara það að hvaða tegund á að fá sér.
Ég er búin að kynna mér mjög vel þessar tvær tegundir Griffon og Papillon og lýst vel á þær báðar en eina meira en hina. Nú langar mig að fá ykkar álit. Hvað finnst ykkur Griffon vs Papillon?

Þá skulum við byrja á Papilloninum

Lýsing
Papillon (sem þýðir fiðrildi á frönsku) fékk nafnið vegna eyrnanna sem minna helst á fiðrildavængi, og þegar hann hleypur er líkt og hann blaki vængunum. Papillon er lítill og fíngerður hundur, hann er alltaf einstaklega fjörugur og vinalegur og bindur sig traustum böndum við eiganda sinn og verður stundum eigingjarn og þykist eiga hann. Hann getur laðað sig að lífi í borg sem byggð. Papillon er barngóður hundur sem auðvelt er að þjálfa, hann hefur náð góðum árangri m.a. í hundafimi. Hann er líflegur, ástúðlegur, ákafur, ávalt árvakur og nokkuð fjarlægur ókunnugum. Í nokkrum löndum er Papillon og Phaléne skilgreindir sem sama tegundin. Sú tegund er þá kölluð ,,Contiental Toy Spaniel.” Ræktunarmið þeirra er nákvæmlega það sama, nema þegar kemur að lýsingu á eyrnastöðu.

Uppruni
Sögur segja að Dwarf Spaniel sem var uppi á 16 öld, sé forfaðir Papillon. Af feldinum og byggingu að dæma er þó líklegt að hann sé skyldur Evrópskum Spits hundum. Phaléne er eldri en Papillon sem kom fram á 19 öld og var líklega blandað við Þýska dvergspits, til að fá uppréttu eyrun. Ræktunarmiðið var viðurkennt árið 1937.

Umhirða
Dagleg burstun og kembing, sérstaklega eyru, skott og buxur. Böðun reglulega, klippa þarf klær eftir þörfum

Hreyfing
Papillon þar meðalmikla hreyfingu, og hefur gaman af útivist.

Leyfilegir litir
Allir litir leyfilegir á hvítum grunni. Hvítur litur á líkama og fótum verður að vera ráðandi. Nokkuð breið, hvít blesa er mikils metinn, en ríkjandi hvítur litur á höfði er galli. Varir, augnaumgjörð, og nef verður að vera svart.

Hæð á herðakamb
Hámark 28 sm.ÞyngdTil eru tvö þyngdarmörk; 1.5 - 2.5 kg. Og 2.5 - 4.5 kg.

Þyngd
ætti að vera í samræmi við stærð.

Þá er það Griffoninn


Lýsing
Líflegur, greindur, fjörugur og árvakur hundur. Griffon er skemmtilegur og kubbslegur lítill hundur. Til eru þrjú afbrigði af tegundinni, eini munurinn er hárafar og litur. Brussel Griffon og Belgískur Griffon hafar hár af miðlungslengd, og er það þétt og stíft. Litli Brabant er snögghærður. Griffon er skemmtilegur félagi, og semur yfirleitt vel við aðra hunda. Hann þolir frekar illa kalda veðráttu. Þess má geta, að í kvikmyndinni ,,As Good As It Gets" var einn af aðaleikurunum hundur af þessari tegund (Brussel Griffon afbrigðið).
Griffon er lítill félagi sem er árvakur og í góðu jafnvægi. Griffon ætti að hafa sterkleg bein, en samt sem áður að vera tignarlegur í hreyfingum. Andlitið á honum er sérkennilegt og er nokkuð mannlegt á að líta. harðger, orkumikill, líflegur og kátur. Hann verður mjög háður eiganda sínum. Árverkni gerir hann að góðum, litlum varðhundi. jafnlyndur hundur sem þarf þó ákveðna þjálfun

Uppruni
Vinsældir tegundarinnar risu á milli heimstyrjaldanna, það voru bókstaflega þúsundir af tíkum með hvolpa, aðeins í Belgíu. Í dag hefur hann leyst af hólmi í vinsældum í nokkrum löndum, ættingja sinn Yorkshire Terrier. Þessir tegund er ein sú vinsælasta í Belgíu. Brussel Griffon er elsta afbrigðið aftegundinni. Tegundin er komin af Barbet. Lagfæringar á tegundinni byrjuðu fyrir árið 1880 í Brussel. Notaðar voru tegundirnar Affenpinscher, Franski Barbet, Yorkshire Terrier, Pug og King Charles Spaniel í Ruby lit. Brussel Griffon var fyrst sýndur í Brussel árið 1880. Fyrsta ræktunarmiðið var skrifað 1883 og því breytt árið 1904. Belgíski Griffon var talin þróaður með því að kynblanda Brussel Griffon við Pug og ef til vill einnig við litla Terrier hunda. Afbrigðið var viðurkennt árið 1908. Belgian Griffon var nær útdauður á tímum seinni heimstyrjaldarinnar. Hann er óþekktastur af Belgísku Griffon hundunum. Augljóslega hefur Pug verið bætt við stofninn, til að fá út snögga afbrigðið, Litla Brabant.

Umhirða
Brussel og Belgian Griffon þarf að bursta reglulega og verður hann að fá fagmannlega snyrtingu á um 3 mánaða fresti. Hann er með feld sem þarf að reyta. Fylgjast þarf með augum. Fylgjast þarf með augum og fellingum í andliti. Litli Brabant þarfnast lítillar feldhirðu.

Hreyfing
Daglegar, meðallangar gönguferðir. Griffon líkar ekki að vera skilinn eftir einn. Hann er hentugur fyrir borgarlíf, en þolir hita ekki of vel.

Leyfilegir litir
Brussel Griffon: rauðleitur-brúnn. Litlir svartir blettir á skeggi og höku eru leyfilegir. Belgian Griffon: Svartur, svartur og rauðbrúnn og samsetning af svörtum og brún-rauðleitum. Small Brabant: brún-rauðleitur og svartur og rauðbrúnn. Svört gríma í andliti er ekki galli.

Hæð á herðakamb
Hæð ekki skilgreind.

Þyngd
Þyngd 3.5 - 6 kg

Jæja hvða segið þið

Kveð í bili

Fjóla Dögg

5 comments:

Jón Magnús said...

OOOOOOOHHHHHHHH!!!!!!!! PAPILLON! PAPILLON! PAPILLON!!!!!!!!!!

Davíð Örn said...

veistu...ég veit hvaða hund þú myndir frekar vilja akkúrat núna...ligga ligga lá. En ég held að ég myndi undir öllum kringumstæðum, persónulega, reyna að velja hundinn sem er með "minnstu" vinnuna á bakvið sig og sem að er skemmtilegastur og klárastur :)

Anonymous said...

Hallá!
það er voða lítið að frétta af mér, er bara að meygla í skólanum, og er svo að fara upp á skaga á morgun í verknámið og er soldið stressuð fyrir það. jamm förum endilega að hittast.
en sambandið við voffana:
ef þú tekur þá tvo saman þá er papillon með mun meiri feldumhirðu og hann fer úr hárum. Brussel fer ekki úr hárum og það er mikill kostur finnst mér, þér gæti fundist ókostur að þurfa að láta reita hann en.. papillon er fjarlægur ókunnum, ég hef persónulega mjög leiðinlega reynslu af papillon finnst þeir gelta rosa mikið og þeim dettur ekki í hug að tala við ókunna(allavega þeir sem ég hef hitt, er samt ekki að staðhæfa neitt). Ég hef náttla ekki neina reynslu af Griffon en ég mindi persónulega velja þann sem er minna fjarlægur óknunnum. Einnig finnst mér soldið skemmtilegt hvað talað er um að Griffon sé gáfaður, ég veit náttla ekki hver munurinn er á gáfunum hjá þessum tegundum en maður hefur heyrt meira hvað Griffon sé klár. svo er náttla mínus að erfitt er að skilja Griffon einan eftir - en það ætti ekki að vera vandamál hjá þér þar sem Moli væri alltaf með honum :) mér finnst líka plús við Griffon að þeim semur vel við aðra hunda.
Ég veit hvorn þig langar meira í. Ég held persónulega að ég mindi frekar fá mér Griffon en er ekki búin að kinna mér þetta jafn vel og þú, en þetta er allavega það sem ég var að pæla þegar ég las mismuninn á þessum tegundum. aftur á móti er Papillon ótrúlega fallegur það fer ekkert á milli mála, jafnt og Griffon. Þetta er erfitt ;)

kv Bebe

Fjóla Dögg said...

Já en það þarf að fara með Griffonin í klippingu á 3 mánaða fresti sem er kosnaður og svo þarf að reita hann sem maður þarf að læra eða láta gera á stofu. Papillon er sagður vera gáfaðasti smáhundurinn enda hefur hann verið notaður sem hjálparhundur fyrir heirnarlausa og blinda. Feldhirðan hjá Papillon er ekki meiri ég get ekki sagt það. Jú hann fer úr hárum en þú þarft bara að greiða honum reglulega svona eins og ég greiði Mola. Sagt er ða Papillonin sé góður með öðrum gæludýrum en að Griffonin sé það oftast ekki alltaf.
Annars er þetta náttúrulega spurning. Ég á eftir að bögga Ástu Maríu helling þegar hún er búin ða fá sinn og þá held ég að valið eigi eftir að vandast helling.
Takk fyrir þetta frænka
Bless í bili

Æsa said...

Papillon myndi ég segja, hann er virkilega sætur, einnig kemur það inn í að þurfa ekki að fara reglulega í kostnaðarsama snyrtingu. :o)