Sunday, November 18, 2012

Myndir af sundgarpinum :D

Jæja við fórum í þriðja sundtímann í gær og ákváðum við að Davíð myndi vera í því að taka nokkrar (ok aðeins meira en nokkar) myndir en hér koma þær af kallinum okkar :D.

 Salómon og Snorri 

 Að undirbúa sig í að standa :D

 Soldið mjúkur en stendur samt :D

 Við mæðginin :D


 Svo gaman :D

 Óli, Óli, Óli Skans....

 Gaman gaman :D

 VÍÍííí......



 1, 2, 3....

 og svo á bóla kaf :D

 Duglegastur :D


 Þetta var hressandi mamma

 Bí bí og blaka :D





 Krúttmundur Davíðs og Fjóluson :D

 Áslaug frænka, Albert og Viktor fr´ndi voru með okkur í tímanum síðast en vana legar eru þau í tímanum á undann :D


 Fallegasti að æfa hendurnar og fæturnar í tröppunum honum fannst það mjög skemmtilegt :D


 Fljúga skal flugvélin hátt upp í himininn :D




 F'or aftur í kaf :D

 Salómin Dansar það ekki af sér eins og Steindinn helfur syndir það af sér ;D




 Buurrrrrr...............

 Allir að horfa á Snorra fíflast :D

 Herra hvítur mættur á svæðið 


 Sparka, sparka, sparka

 og smá kollhnís og æfingar með Snorra

 Duglegur

 Snorri fékk bros og allt


 of full fata af vatni yfir hausinn :D

 Kollhnís



 Flottur :D


 Þar sem griðið er næstum alveg komið þá fékk hann að æfa sig á hringjunum 




 og út um allt hann fór :D



 Svo duglegastur :D


Jæja ég á örugglega eftir að setja fleyri myndir þegar hann er búin að vera aðeins lengur í sundinu og er farinn að styrkjast meira og geta meira :D.

knúsar Fjóla og co

Friday, November 16, 2012

Jólin nálgast

Þá eru bara 38 dagar til jóla og eins og venjulega hlakka ég alveg endalaust til :D.
Það verður alveg brjálað að gera hjá okkur næstu tvær helga en við verðum með Malakí Thanksgiving matar boð eins og í fyrra sem tekur að minsta kosti tvær helga að undirbúa því allt þarf að vera fullkomið ;D. Ég er búin að finna uppskriftir nýjar sem mig langar að gera, það þarf að undirbúa hvað er hækt að gera fyrir fram til að ofninn nítist sem best, það þarf að versla öll herlegheitin, það þarf að finna út hvernig á að skreita borðið og íbúðina sjálfa, þrífa og taka til auðvita og margt fleira :D. Ég vona að það heppnist eins vel til og í fyrra ef ekki betur :D.
Annars erum við salómon Blær búin að fara í tvo sundtíma og pabbi kom með okkur í ein síðasta laugardag. Kallinn er að standa sig rosalega vel og er að fíla sig 90% af tímanum en það kemur fyrir að hann verði soldið óviss og kjökra þá í smá stund en aldrei neitt meira en það. Við förum í 3 tíman núna á laugardaginn næsta og hlökkum við öll mikið til þess :D. 
Annars er helgin okkar nokkuð vel stöppuð en við þurfum að pannta hótel og bílaleigu bíl fyrir Flórídaferðina, ég þarf að skrá migh í áfanga í skólanum mínum  sem byrjar eftir áramót og kaupa skólabækurnar fyrir hann sem Benjamín ætlar að vera svo sætur að koma með heim handa mér, svo þarf að finna tíma til að fara með allar flöskurnar okkar í endurvinsluna, það þarf að fara með bílinn í smá skoðun til að vita hvað þarf að laga fyrir veturinn, það þarf að ná í mynd sem við eigum inni hjá ljósmyndaranum okkar, svo náttúrulega að versla fyrir Thanksgiving :D. Þetta er bara hluti af því sem þarf að komast helst yfir um helgina.
En í kvöld ætla pabbi og mamma að passa Salómon Blæ því við Davíð erum að fara á tónleika með Todmobile sem verður alveg öruglega ætðislega skemmtilegt :D. 
En við biðjum bara að heylsa ykkur og Guð veri með ykkur alltaf.

Kveðja Fjóla og co

Thursday, November 08, 2012

Loksins loksins fáum við að fara í ungarnasund :D

Jæja ég fékk langþráð símtal frá Snorra þar sem ég fékk að vita að við komumst að í þann hóp sem okkur langaði að fara í s.s á miðvikudögum kl 14 og laugardögum kl 13:30. Núna er bara að undirbúa okkur fyrir hvað sem er og vonandi finnst Salómon Blæ gaman að fara í sudið og þetta geti verið eitthvað sem við höfum bæði gaman af að gera saman :D. 
Annars er það nýjasta í fréttum að pabbi og mamma eru loksins komin heim frá Flórída og er planið að kíkja á þau í hiemsókn á eftir vonandi. Þau ætla samt að leggja sig fram að hádegi skiljanlega :D. 
Annars er Salómon úti að lúlla núna í vagninum og er ég að vonast til þess ða hann geti lúllað í svona 2-3 tíma. 

En ég sendi knúsa á ykkur öll og megi Guð vera með ykkur

Fjóla

Tuesday, November 06, 2012

Ugluhúfa :D

 Salómon Blær var að fá nýja húfu sem ég bara VARÐ að kaupa handa honum

ógó sætur

Knúsar Fjóla

Monday, November 05, 2012

Læknisferð hjá strákunum

Í dag er sko búið að vera brjálað að gera hjá mér. Svo við byrjum nú alveg á byrjuninni þá vöknuðum við Davíð við það að ekkert rafmagn var í húsinu en þetta gerðist líka í gær kvöldi í svona rúmlega klukkutíma. Við komumst náttúrulega ekkert á netið nema í símanum hans Davíðs og sáum við þá að það var búið að vera rafmagnslaust frá því kl 4 um nóttina. Við ætluðum að reyna að lúlla lengur en Salómon Blær var ekki alveg á því þannig að við þurftum að drattast frammúr í kol niða mirki með Iphone og Ipad til að lýsa okkur vegin og kveikja á kertum út um alla íbúð (nú kemur sér vel að vera kerta sjúk). Rétt eftir kl 8 í morgun kom svo loksins rafmagnið á sem betur fer því manni var ekki farið að vera sama um matinn mans og the pressies brjóstamjólk :S sem er sko ekki over flowing á þessu heimili ;D. 
 Salómon Blæ fór svo í 3 mánaða skoðun í dag. Allt var skemmtilegt og spennandi. Hann hitti nýja hjúkrunarkonu og nýjan lækni og svo hitti hann Kristrúnu sem var ljósmóðirin okkar á meðgöngfunni en svo þegar hann var búinn að hitta allt þetta fólk og brosa svo fallega til þeirra tóku ljósmæðurnar upp tvær sprautur og sprautuðu hann í sinhvert lærið og þá var sko hætt að vera gaman :S. Minn var rosalega sár en var fljótur að hætta að gráta en aftur á móti var hann heilengi að kjökra og eiga rosalega bátt ;9. 
Moli aftur á móti lenti í þeim leiðinlega hlut að um helgina þá sprakk hjá honum endaþarmskirtill sem þýddi bara eitt það þurfti að fara til dýra og láta tæma kirtlana svo hann fengi ekki sýkingu elsku litla skottið. Ég fór með hann um morguninn og á meðan fór Salómon Blær með pabba sínum í vinnuna sem honum fanst nú ekki leiðinlegt ;D. Ég þurfti að skilja Mola eftir þar sem það þurfti að gefa honum deifingu/svæfingu en ég ákvað að láta hreinsa tennurnar á hunum í leiðinni svo við þurfum ekki að fara auka ferð og borga aukalega og láta hann fá auka skamt af lyfjum seina meir. 
Þannig að ég er búin að hafa nóg að gera en núna bíð ég bara eftir að Davíð komi heim og horfi á Amazing Race meðan ég klappa og klóra litla auma Mola mínum sem þarf að vera með skerm þegar ekki er verið að fylgjast með honum :S. Salómon Blær aftur á móti er að lúlla úti í vagni þessi elska en ég er að byrja nýja svefn rútínu en planið er að hann sofi tvisvarsinnum tvo tíma á dag úti í vagni eða aðeins lengur og það hefur gengið ágætlega að koma því á laggirnar so far ;D.

Knúsar og Guð veri með ykkur öllum. 

Fjóla og co