Thursday, February 28, 2008
Myndir
Tuesday, February 26, 2008
Hvað mig langar að gera áður en ég fer út
- Fara á uppáhalds göngu staðinn minn í Hvalfirðinum með Mola og nokkrum vel útvöldum hunda og manna vinum (Helgu og Kristínu ásamt Fróða, Sóldísi og Arisi ;D)
- Bjóða vinum í heimsókn í mat, spil og spjall
- Fara í Kolaportið og vera með bás með Helgu þar
- Eiða tíma með Davíð
- Eiða tíma með Mola
Þetta er það eina sem ég vil og þarf á að halda áður en ég fer út.
Monday, February 25, 2008
Síðastliðnir dagar!
Ég held ég sé búin að finna réttu myndina fyrir málverkið af Mola. eða hvað finnst ykkur? Ég sendi þó nokkrar aðrar myndir með þessari til listamannsins og er að bíða og sjá hvað hann segir. Annars er tengdapabbi svo mikill listamaður að það er alveg fáránlegt að við eigum enga mynd eftir hann en bara svona til ða verja okkur þá heldur hann þessu mjög vel leindu að hann geti teiknað sem er mesta vitleysa sem ég hef vitað um og ætla því að pannta mynd af Mola í afmælis eða jólagjöf já og hana nú ;D.
Thursday, February 21, 2008
Tíminn líður en ekki mjög hratt
Síðasta helgi var alveg frábær mikið að gera og rosa stuð. Davíð er aftur á móti búin að vera nánast ekki neitt heima heldur hangir hann dögunum saman með jessup liðinu þar sem á laugardaginn keppa Háskólinn í Reykjavík, Háskólinn á Akureyri og Háskóli Íslands um að komast út til Wosington og keppa í alvöru keppninni.
Við Moli höfum verið nokkuð dugleg að labba til pabba og mömmu og hangið þar þangað til pabbi og mamma keyra okkur heim.
Annars er ég núna með dropa í eyranu þar sem ég hef þurft að fara tvisvar í eyrnasog þar sem ég er með svo þröng eyrnagöng að það þarf ekkert til að þau stíflist mjööög pirrandi. Ég fer aftur til læknisins á miðvikudaginn og þarf að vera með endalausa droða í eyranu þangað til.
Ég er held ég búin ða finna réttu myndina fyrir Málverkið af Mola. Ég þarf bara núna að senda listamanninum hana og reyna að lýsa því fyrir honum hvað ég vil sem gæti orðið soldið flókið :S.
Ég er alveg farin að iða í skinninu að komast út og fá sól og hita og notarlegheit. Sólinn er nánast alveg frá gengin þarf bara að senda nokkrar upplýsingar og borga og þá er allt klappað og klárt.
Ana aftur á móti er enþá á spítalanum hef ekki mikið rætt það hér en hún gekst undir aðgerð fyrir um 2 vikum síðan þar sme fjarlagt var húr henni lagið og eggjastokkarnir vegna gruns um krabbamein en ekki er enþá komnar niðurstöður úr þeim prófum. Hún kom heim á mánudaginn síðasta en fór aftur sama dag á spítalan þar sem það fór að blæða þar sem blóð hefði safnast saman og endaði með því að sprautast út um saumana. Hún er ekki alveg orðin hress og vill ekkert frekar en komast heim en það er ekki það sniðugasta. Ég yrði mjög þakklát ef þið gætuð beðið fyrir henni með okkur.
Jæja ætla að fara að byrja á bréfinu til málarans og koma því afstað.
Guð blessi ykkur
Friday, February 15, 2008
Pabbinn

Thursday, February 14, 2008
Wednesday, February 13, 2008
:D

Það er gaman að segja frá því að ég er byrjuð að lesa fyrir bílprófið mitt sem ég tek núna í lok mars úti á Flórída. Þetta virðist nú ekki vera nein brain surgery en það er nú gott að vera við öllu viðbúinn því það geta laumast inn á milli lumskulegar spurningar. En prófið úti er mun auðveldara þar sem þú getur bara gert einn kross í hverri spurningu en ekki eins og hérna heima þar sem þú getur svarað 4 af 4 krossum í einni spurningu.
Annars fæ ég líklega Fróða sem næturgest hérna til okkar á föstudagsnóttina þar sem Helga er að vinna og mamma hennar er að fara til Skálholts. Það verður bara gman að hafa kallinn hjá okkur. Ég er samt ekki búin að ná að tala við Davíð en ég er nokkuð viss um að það verður ekkert mál.
En þessi helgi hjá okkur Davíð er alveg stútfull. Það byrjar strax á morgun með Valentínusardeginum en ég veit ekki hvort það er einhvað sem Davíð hefir planað handa mér en ég vona það ;), svo á föstudaginn er kveðjupartí hjá Svanhvíti frænku og ætlum við að kíkja þar inn, á laugardaginn er svo kóræfing um morgunninn og Árshátíð laganema um kvöldið og þarf ég víst að vera rosalega vel út sofin fyrir það kvöld annars verður Davíð ekki sáttur með mig (en satt að segja hef ég rosalega lítið úthald í svona skemmtanir þegar maturinn er búinn þá er ég líka búin) svo er það sunnudagurinn en hann byrjar á Chihuahua og papillon göngu kl 13 í Heiðmörk einhverstaðar og strax eftir hana er farið í kveðju matarboð hjá Svanhvíti (aftur ;D).
Jæja ég hef það ekki lengar í þetta skiptið. Yfir og Út
Fjóla Dögg
Monday, February 11, 2008
Hundamálverk



Sunday, February 10, 2008
Lífið er yndislegt.... YEEESS!!!!!
Núna er ég að fara út til Flórída nánast bara að skemmta mér í rúmlega 2 mánuði sem er rosalega mikið til hlökkunar efni hjá mér. Við höfum svo nú þegar bókað flug út í sumar í júlí og ætlum við að ferðast á Mustangnum til Washington og hitta Jennifer, Clint, Colby og Anne ásamt fleirum þar og vera í tæplega viku. Síðan keyrum við aftur til Flórída og verum þar restina af fríinu.
Svo er það það að við fengum alveg óvænt að vita að afi hans davíðs ætlar að bjóða okkur til Spánar í húsið sem hann á þar úti. Vá GEGJAÐ!!!! Við erum alveg rosalega spennt og er planið að fara þangað í september. Þannig að ég verð erlendis samtals í 3 og hálfan mánuð á þessu ári.
Rosalega spennandi og gaman. Moli fær samt ekki að koma með greyið og við eigum eftir að sakna hans en við erum að fara að flytja út á næsta ári og þá kemur hann með okkur allt sem við förum nema til Íslands audda.
Helga kemur líklega í kvöld og horfir með okkur á There will be blod og kanski koma Jón og Riss líka.
Fjóla og Moli
Saturday, February 09, 2008
Helgin
Helga, Fróði og Trítla komu í heimsókn og ætluðum við að horfa á bíómynd en nnnneeeii þá tók tækið upp á því að vera svarthvítt allt kvöldið og ekkert gekk. Við horfðum þá í staðin á frekar undarlegt Gettu betur og spjölluðum. Ætli við reynum ekki að horfa á þetta annað kvöld eða bara seinna.
Við Moli erum að fara í Garðheima á eftir á Smáhundakynninguna og verðum þar í einn og hálfan tíma. Á meðan fer Davíð á jessup æfingu. Í kvöld er svo matarboð hjá Ástu frænku Davíðs og Guðjóni. Ætli við endum ekki með að spila og hver veit hvar það endar ;) (hóst, hóst) ég held ég hafi lært mína lexíu þegar komið er að því að spila við Ástu.... það kemur ekkert til greina nema að...... VINNA.
Á morgun er svo vinna frá 8-13 og matur hjá pabba og mömmu um kvöldið. Svo er spurning hvað við gerum við restina af kvöldinu.
Ég fann aftur á móti heimasýðu á netinu þar sem Chihuahua hundum og Chihuahua blendingum vantar heimili og ég er alveg harð ákveðin ða þangað fer ég og fin mér hund fann strax tvo sem ég hefði viljað taka með heim. Síðan er http://www.petfinder.com/shelters/FL452.html kíkið á hana.
En hafið það gott, gott fólk og Guð blessi ykkur.
Thursday, February 07, 2008
Snjór, snjór, snjór...............uuu eruð þið að GRÍNAST!!!
osalega þreytt og hálf pirruð. Þegar út var komið var allt á KAFi í snjó. Ég haggaði náttúrulega ekki bílnum og endaði í botni götunnar minnar (sem er brekka by the way) og gat ekkert gert. Ég var sein fyrir þannig að ekki var hækt að gera neitt nema hringja á leikubíl. Ég fór út og ætlaði ða bíða eftir honum og ég beið og beið og ekkert gerðist þangað til Davíð hringdi aftur og þá komst ég að því að fyrri leigubíllinn sem var sendur gafst bara upp og þurftu þau að senda annann. Ég smellti af nokkrm myndum m
eðan ég var að bíða vegna þess að þrátt fyrir allt saman var veðrið alveg gullfallegt.
eð nokkrum leiðilegum uppákomum sem ég nenni ekki að fara út í hér. Ég fékk svo afa til að koma og ná í mig og fékk hann í staðin súpu og brauð og smá sætindi. Amma er komi heim aftur eftir að hætt var við að gera aðgerðina þar sem hún fékk hjartatruflanir og læknarnir þorðu ekki að halda áfram. Hún fer þó í aðgerðina á mánudaginn og vil ég biðja ykkur um að hafa ömmu í huga og bilja fyrir henni. En það er gaman að segja frá því að við lánuðum ömmu nýa testamenti áður en hún fór á spítalan og sagði hún mér í dag að hún ætlaði ekki að skila mér því strax vegna þess að hún ætlaði að halda áfram að lesa það.
Við Moli í góðaveðrinu ;D

Moli að hlaupa til mömmu sín

Snjórinn var búinn að fjúka í stóra hóla inni í undirgöngunum rosalega flott

Greinarnar voru svo þungar útaf snjónum að þar lágu í göngustígnum

Moli prins

Mola var orðið kallt þanig að hann fékk far í nokkrar mínútur það er nú bara sangjant hann er á berum táslunum meðan ég var í sokkum og ullarsokkum og skóm ;)

Litli snjókallinn var orðinn þreyttur

Það er nú bara eins og maður sé mættur á jökulsárlón svei mér þá rosalega fallegt
Monday, February 04, 2008
Dagurinn í dag
Ég ætla nú samt að reynaða fara í stuttan göngutúr með Mola og kanski í smá leikfimi þar sem það er löngu komin tími á það sérstaklega eftir alla þessa bolludaga (munið ég vinn í bakaríi).
Davíð er að vinna núna í Bústaðarkirkju og kemur heim fyrr en um 6 leitið held ég.
Ég fór og söng í fyrsta sinn með Gospelkórnum mínum ;) á sunnudaginn en við vorum beðin um að syngja í Salt kirkjunni og var það bara rosalega gaman.
Ég fattaði það strax á sunnudaginn að ég get ekki BEÐIÐ að sjá Sweeney Todd aftur og einhvernivegin er ég viss að það verði að vera áður en hún hætti í bíó. Ég er alveg orðin hookt.
Jæja gott fólk ég hef það ekki lengra.
Hafið það gott og njótið þess sme eftir er af deginum og megi Guð vaka yfir ykkur og blessa ykkur.
Kv Fjóla sátt og sæl.
Saturday, February 02, 2008
Sweeney Todd njótið
YOU Sir too sir I want you bleeders!
Búin að ákeða hvað skal gera við líkin og hvað er þá best að gera... hvað annað en að DANSA!
At last my arm is complete again!
Mr T og Mrs Lovett að sjá Signori Adolfo Pirelli á torginu.Þau eru vægast sagt soldið Creepy looking ekki satt en svo rosalega í anda hlutverka sinna.
Ef ég gæti hitt Tim Burton þá myndi ég þakka honum svo innilega fyrir að hafa gert þessa mynd og gert hana betri en ég hefði getað ímyndað mér. Hann tók frægan söngleik og gerði það sem maður vill að sé gert, ekki það sem er svo oft gert við endurgerðir að þær eru eiðilagðar.
Friday, February 01, 2008
Sweeney Todd VÁ!!!!!!!!!!
na betri en ég hefði nokkurntíman getað ímyndað mér. 
leikari. Ég varð náttúrilega alveg kolfallin fyrir honum þegar ég sá hann fyrst í hlutverki Snapes í Harry Potter en hann er ekki síðri hér og VÁ hann fer svo vel með hlutverkið. Það eina sem maður saknar er að hann komi meira fram í myndinni ekkert annað.
ssu hlutverki þá held ég að Cohen nái því betir en hann. Þessi pommper prik gæji how dosent know whats good for him. Hans adriði í mindinni er eitt það skemmtilegasta og fyndnasta í allri myndinni.
Timothy Spell er Beadle Bamford aðstðoarmaður dómarans. Hann nær svo vel þessum ógeðfelda manni sem er gjörsamlega siðspilltur og rottulegur.Ef þið viljið fara og sjá bestu mynd ársins... já ég sagði ársins þrátt fyrir að það sé bara febrúar þá þori ég að fullyrða að það kemur ekki út mynd sem á eftir að toppa þessa fyrir mér. Farið á hana í alvöru farið áhana. Ég á eftir að fara á hana aftur sme allra allra fyrst og kaupa hana strax og hún kemur út.
Wednesday, January 30, 2008
Jesús
Takk fyrir eiginn manninn minn
Guð blessi ykkurMonday, January 28, 2008
Lífið heldur áfram
Annars er ég að vinna með svo frábæru fólki þessa dagana LOKSINS. Ég er að vinna flesta morgna með strák sem heitir Marko og er frá Þýskalandi. Hann er hérna með kærustunni sinni meðan hún er í námi og er hann rosalega góður að vinna með. Í dag kom svo ný stelpa sem heitir Tina og er frá Noregi og talar reip rennandi íslensku. Loksins er kominn minn tími að ég fái að vinna með góðu fólki sem vinnur vel og kemur ekki fram við mann eins og skít. Ég er ekki að segja að ég sé fullkomin ég er dugleg að loka mig af ef einhvað bjátar á.
Ég get ekki beðið að komast til Flórída er farin að hlakka alveg rosalega til. Ég ætla að fara eins oft og ég get á Sweet Tomato sem er grænmetisstaður sem er í mjög miklu uppáhaldi hjá mér. Ég ætla að borða smoothisa eins mikið að ég get og fá mér hollan mat og fara út að skokka og vera heilsusamleg. Ég get ekki beðið að fara að versla í Puplix, fara í Target, kaupa BÍL, Fara í Epcot með tengdó GMS og BRS, fara í Holyland (sem er kristinn garður) get ekki beðið að sjá hvernig hann er http://www.theholylandexperience.com/ og skólinn auðvita.
Ég er að fara að sækja um námið núna í byrjun næsta mánaðar og hlakka ég bara til.
Sweeney Todd eftir 4 daga vá hvað ég get ekki beðið. Við hittum Jón og Riss á laugardagskvöldið og horfðum á mynd og höfðum það alveg rosalega kósý gaman að hitta þau aftur eftir langa básu þar sem mikið er búið að vera að gera hjá bæði okkur Davíð og þeim eftir áramótinn. Við ætlum að fara með þeim í sumarbústaðinn hans Jóns yfir páskana og verður það ekkert smá gaman eins og alltaf einn af skemmtilegustu tímunum okkar hafa verið þar.
Við Davíð höfum verið að ræða að taka allan júlí mánuð í frí. Við förum út til USA 9-31 júlí og ætlum við að ferðast hringinn í kringum Ísland fyrstu vikuna í júlí og hlakka ég ekkert smá til þess. Það verður líka svo gama að fá að vera með Mola þessa viku og fara í gönguferðir í ullfallegu íslensku náttúrunni okkar. Moli á eftir að elska það líkt og við.
Ég er ein heima að horfa á Dr. Phil þar sem Davíð er að vinna og svo fer hann á fund strax eftir vinnu þannig að ég sé hann ekkert fyrr en bara á morgun held ég bara þar sem ég dett útaf um kl 22.
Núna er Bolludagurinn á næsta leiti og þið getið rétt ímyndað ykkur hvað það þýðir fyrir mig bakaríiskonuna. GEÐVEIKI!!!!! Það verða seldar bollur helgina áður og svo á mánudeginum og ég er að vinna á sunnudeginum og mánudeginum AAAAHHHH!!!
Jæja ég hef það ekki lengra í þetta skiptið.
Guð blessi ykkur öll
Kær kveðja Fjóla Dögg
Thursday, January 24, 2008
Hvað íbúinn á Flórída þarf að hafa
2. Hundar leifðir
3. Ekki mikið dýrari en $700 á mánuði
4. Verðum að getað losnað undan samningi eftir 7 mánuði
5. Garður
6. Sundlaug
7. Líkamsræktarstöð
8. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara
9. Uppþvottavél
10. Ekki minni en 65 fm
11. Í góðu hverfi nálægt ákveðnum stöðum (sama hverjir þeir eru vitum ekki eins og er)
12. Air condisioning
13. Bílastæði
14. Dog park hverfisins (ekki nauðsynlegt en mjög eftirsóknarvert)
15. Þvotta aðstæða í sameign
16. Leik aðstaða fyrir börn
17. Stórt og gott eldhús
18. Hverfis eftirlit (eins og hjá pabba og mömmu) eða lokað hverfi með hliði
19. Ef hægt er 2 svefnherbergja (fyrir þetta verð meina ég) annars að möguleiki sé að vera með svefnsófa í stofu fyrir gesti.
20. Baðker á baðherbergi
Bara leifa ykkur að sjá hvað við erum að hugsa ;D.
Wednesday, January 23, 2008
Ég hef það gott
Ég fékk alveg óvænnt að fara heim úr vinnunni kl 14 í dag sem gerðið það að verkum að ég komst í mjög góða göngu með Kristínu, Sóldísi og Arisi. Við ætluðum okkur bara í smá göngu í hverfinu mínu sem endaði samt með því að vera alveg vel klukkutímalöng ganga sem teigði sig alveg niður í Elleðaárdalinn. Löngu komin tími á göngu og ég skil ekki hvernig ég get komist af án þeirra þegar mikið er að gera.
Ég er búin að vera frekar dugleg að borða ekki algjöra vitleysu þessa dagana og ætla að halda því áfram, ég meira að segja er búin að hreyfa mig fyrir utan gönguna í dag.
Ég er búin að taka ákvörðun um að sækja um í húsdýragarðinum og vona vona vona að ég fái vinnu þar sama á hvaða tíma dags. Ég heyrði nefnilega frá Kristínu að hún þekkti stelpu sem væri að vinna þar og fær að taka hundinn sinn með í vinnuna sem er það sem ég er að leita eftir.
Ég gerði lista áðan yfir því sem íbúðin okkar þarf að hafa úti á Flórída. Ég vil hafa það skjalfest þar sem Davíð og tengdapabba hefur verið falið það verkefni að finna íbúðina þegar þar að kemur.
Tuesday, January 22, 2008
Dagurinn í dag
Hlustaði á leikinn í útvarpinu á leiðinni heim.
Gat ekki horft á endirinn heima, of sorglegt.
Davíð var búinn að undirbúa matinn kjúlli í ananas, papriku, lauk dæmi, sallad og hvítlaugsprauð með, mjög gott.
Horfðum á mjög erfiðan Dr. Phil þátt með alkóhólista föður og konuna hans sem lamdi hann í klessu fyrir framan börnin þeirra mjög disturbeng.
Horfðum líka á The 4400 þátt mjög undarlegan.
Fékk símtal frá mömmu, bróðir minn að hugsa um að kaupa íbúð og aðrar ekki svo skemmtilegra frétta.
Ég og Moli upp í reiðhöll í hundafimi, var engin fimi, misskilningur og rugl.
Komin heim aftur, er að blogga, vavra á netinu og horfa á Davíð skoppa upp og niður fyrir framan mig á líkamsræktartækinu okkar.
Hlakka til að komast í breyttar aðstæður á Flórída.
Hlakka til að fá útborgað og getða lagt peninginn til hliðar.
Hlakka til að hitta göngufélagana mína.
Hlakka til að fara og sjá Sweeney Todd með bestasta fólki í heimi.
Sakna bænastundanna okkar Helgu.
Langar að horfa á vidíó með góðum vinum.
En Guð er góður og ég treysti honum.
Fjóla Dögg
Monday, January 21, 2008
Smá blogg
Ég er byrjuð
í Gospelkór Reykjavíkur og er það algjör snyld loksins segi ég bara. Óskar hringdi í mig á föstudaginn síðasta og mætti ég strax laugardeginum þar á eftir. Það verður nóg að gera þar og er ég spennt að fá að vera með.
vei mér þá eða Prince Edward Island og vá hvað ég get ekki beðið að komast þangað ekki núna í sumar heldur sumarið 2009. Þeir sem hafa áhuga á að kynna sér þann dásamlega stað geta ferið á þessa heimasíðu http://www.gov.pe.ca/visitorsguide/ Himnaríki á jörðu. Ég er búin að hafa samband við tvo Chihuahua ræktendur á Flórída til að sjá og forvitnast um ræktunina þar. Ég er einig búin að senda á deildina hérna heima og forvitnast um got í sumar. Ég er svona að gæla við hugmyndina að fá bara annan Chihuahua en ekkert er ákveðið frekar en áður. Monday, January 14, 2008
Þessi vika!
ki meira né minna en 11 tíma á morgun það finnst mér algjör geðveiki. Ég vinn líka 11 tíma á miðvikudaginn þannig að ég á eftir að vera þreytt og pirruð þessa tvo daga. Það er nýr strákur að byrja að vinna með mér á morgun sem er alltaf jafn erfitt og ekki skemmtilegt finnst mér. Ég er orðin svo þreytt á því að vera alltaf að reyna að vera skemmtileg og tala um ekki neitt ég er bara einfaldlega ekki góð í því og vil bara sitja með hitablásaran í andlitið á mér og lesa Dexter og ekki hafa samvisku bit yfir því að ég sé ekki að tala við hinn starfskraftinn. Æi þetta er örugglega ekki rétta hugsuninn hjá mér en þetta er bara svo erfitt þegar það er allta einhver nýr með manni nánast á hverjum degi þá vill maður bara vera í friði.
a gáfu okkur Davíð í jóla- og afmælisgjöf. Bókin er allt öðruvísi en þáttaröðinn en mjög góð samt. Ég er samt hrifnari af Dexter í þáttunum en bókinni eins og staðan er núna en ég veit ekki hvað gerist þegar ég byrja á morgunn á annari bókinni.
mér og hlakka ég mjög til. Linda, Sveinbjörn, Benjamín og Guðlaug María eru búin að ákveða hvenar þau koma út og átti að pannta miðana um helgina en þá komust þau að því að bæði vegabréf Guðlaugar og Benjamíns voru nánast útrunnin og varð þá að bíða með pönntunina og sækja um vegabréf í staðin. Þau eru búin að skipuleggja alla dagana held ég bara og verður rosalega gaman að fá þau út þá hef ég afsökun til að fara út að borða og í Epcot og fleira ;D.Eitt mjög stutt
Davíð er búin að vera mjög lítið heima er bara uppi í skóla að gera Jessup verkefnið. Ég er búin að vera að fara með bakaríis mat til krakkana í liðinu og þau voru bara mjög sátt.
Ég verð að fara ða gera mig til fyrir vinnuna er orðin frekar sein reyni að blogga í dag.
Kveðja þreytta Fjóla og vantar athyggli Moli.
Sunday, January 06, 2008
Mikið sem er að brjótast um í kollinum á mér
Þetta ár er ár breytinga hjá mér, Davíð og Mola. Ég fer út til Flórída í lok mars nánar tiltekið 25. mars til ða fara í hundasnyrti nám í 2. mánuði. Það fyrir mér er rosalega scary! Ég veit að ég er rosalega háð Davíð og Mola og vil helst ekki vera án þeirra í langan tíma þessvegna fyrir mér er rúmlega 2 mánuðir langur tími að vera frá þeim. Fyrir utan það verð ég stóran hluta tímabilsins alein í íbúðinni og það á eftir að vera erfitt fyrir mig. Ég verð samt alla virka daga í skólanum til kl 16 sem skilur bara eftir kvöldið og helgarnar. Ég hef þó ákveðið að ég ætla að notfæra mér það að ég sé ein og styrkja sambandið mitt við Frelsarann minn. Ég ætla að finna mér góða kirkju í Flórída og fara þangað pína mig til að hitta og kynnast fólki sem ég á rosalega erfitt með. Ég vil bara vera ég ein og ekki tala við fólk sem ég þekki ekki þannig að það verður mjög erfitt fyrir mig sérstaklega ef ég er ein. En hvar er betri staður til að kynnast góðu fólki en í kirkju ha?
En þar sem við Davíð og Moli erum að fara að flytja út eftir ár er búið að ákveða að ég kaupi með hjálp pabba og mömmu bíl núna þegar ég fer út í mars. Það var búið að ákveða fyrir löngu að við ætlumum að kaupa okkur Ford Mustang árgerð 2002 eða 2003. Ég er rosalega spennt og hlakka til að eignast Mustang þar sm það hefur alltaf verið draumur minn að eignast slíkan bíl. Þar sem Mustang er Bandarískur bíll þá kostar hann ekki margar miljónir eins og hérna heima (algjör geðveiki) heldur getur þú fengið bíl eins og ég er að spá í fyrir $ 6000-7000 sem er ekki svo slæmt.
Tengdó ásamt Guðlaugu og Benjamín ætla að koma út til mín í maí og verður það alveg frábært. Ég á pottþétt eftir að skella mér í garða með þeim þar sem Guðlaug á eftir að tapa sér þegar hún sér alla garðana. Mig langar líka að nota tækifærið og fá þau til að fara með mér í Holyland sem er Kristinngarður. Ég er nokkuð viss um að þetta er einhvað sem Sveinbjörn og Benjamín eiga eftir að vera rosalega spenntir fyrir.
Ég held náttúrulega í vonina að Davíð minn komi út til mín þegar þau koma en það er náttúrulega ekki það gáfulegasta fyrir okkur þar sem við erum að fara út í júlí saman í þrjár vikur en ég læt mig dreyma samt. Einnig er best ða davíð nái að vinna eins mikið og hækt er næsta sumar svo við töpum ekki of miklum pening á því að ég sé að fara út.
Sem kemur að næstu umræðu að ég er að reyna að vinna eins mikið og ég get sem þýðir alla virka daga frá 7-14 og aðra verja helgi. Ég veit að það a eftir að vera rosalega þreytandi þar sem þetta er nú ekki drauma starfið mitt en ég veit að ég get þatta samt. Núna er bara málið að spara og spara og halda í peningana eins vel og hækt er.
Svo er það Helga bestasta. Hún er að fara að flytja með Fróða út til Noregs. Ég á eftir að sakna hennar óendanlega mikið. Hún fer áður en ég fer út eða í ágúst og verður það rosalega erfitt. Helga hefur verið ekkert nema góð við mig og styrkt mig og stutt mig í gegnum mjög erfðan tíma í mínu lífi og á ég eftir að vera henni æfinlega þakklát. Núna langar mig bara að fá hana í heimsókn fljótlega og horfa á spólu og spjalla og hafa það kósý.
Ég er svo þakklát fyrir allt sem ég hef t.d. liggur Molinn minn hjá mér núna alveg aflappaður og rólegur og mér finnst að hann sé að segja við mig " mér þykir svo vænt um þig mamma og ég þarf ekki ða vera hræddur þegar þú ert hjá mér". Davíð minn er að læra núna til að við getum átt frábæra og örugga framtíð og ég treysti engum (fyrir utan Jesú) eins vel og ég treysti Davíð. Það er ekki hækt að hafa það betra.
Mig langaði að segja ykkur frá átakinu "Skiðaðu þér í skarðið" sem Shila hjá Lindinni var búin að vera að hugsa mikið um og ákvað að framkvæma. Þú getur farið á lindin.is og þar fáið þið frekari upplýsingar endilega fariði og skoðið þetta mjög gott og nauðsynlegt framtak.
Að lokum langar mig að þakka ykkur fyrir að vera í mínu lífi og fyrir að vera góðir foreldrar, tengdaforeldrar, vinir, frændfólk og kunningjar.
Guð blessi ykkur öll!
Kær kveðja Fjóla Dögg














