Jónsi Sheiking it
Saturday, September 22, 2007
Myndir sumarsins
Þið verðið að sjá þetta....
P.s Fyrir ykkur sem eruð ekki búin að sjá Chuck and Larry skutlist í bíó NÚNA hún er alveg brill ;).
Thursday, September 13, 2007
Flórída Flórída Gaman gaman

Við fórum í Sea World á þriðjudaginn og var það bara alveg ágætt, engin Disney en ágæt þrátt fyrir það. Í garðnium eru bara tvö tæki og ég fór í annað þar sem þú verður gjörsamlega gegn votur af bleitu... ef þú situr fremst sem ég og Davíð gerðm og vá hvað við urðum blaut. Davíð fór svo aftur á móti einn í hitt tækið sem var rússíani sem mér leist ekkert áh. Hann byrjaði á því að draga þig tugi metra upp í loftið og henda þér svo beint niður á flegi ferð, svo í tvo hringi, svo í skrúu, svo upp og niður þetta var alveg hræðilegt að mér fanst og Davíð sagði að ég hefði aldrei meikað þetta tæki sem var alveg nóg sannfæring fyrir mig ;).Tuesday, August 28, 2007
Jæja þá styttist í Flórída!
Bóka skipið Logos II er búið að vera hérna í höfninni í Reykjavík og erum við Davíð búin að eiða þó miklum peningi þar í bóka kaup. Þetta er skip sem er rekið af sjálfboða vinnu og styrkjum, Kristið fólk sem vinnur þarna en er samt með meira en bara Kristilegar bækur ég fann t.d. fult af hundabókum.
Annars hef ég ekkert að segja í lífinu en bara Guð blessi ykkur og vonandi eigið þið góðan dag :D
over and out
Fjóla
Friday, August 17, 2007
Elsku Sera
Sá hræðilegi atburður átti sér stað í fyrradag (tel ég að sé rétt) að hún Sera Sól hálfsystir hans Mola var drepin af Bullmastiff rík.Hún var á gangi með eigendum sínum og hinum hundunum á heimilinu þegar að tíkin kemur hlaupandi upp að Seru, eigandi tíkarinnar lætur stelpurnar vita að þær þurfi ekki að hafa áhyggjur að hún geri ekkert en nokkrum sekúntum seina er tíkin komin með Seru í kjaftinn og hristir og kremur hana til dauða. Árásin tók bara nokkrar sek og dó Sera stuttu eftir að tíkin stelpti henni.
Wednesday, August 15, 2007
Hver er ég?
1. Ég trúi á Jesú Krist og vil fylgja honum sem best ég get og gera hann stoltan af mér ;)
2. Ég er gift yndislegum manni sem heitir Davíð og er hann ljósið mitt
3. Ég elska hunda alveg út af lífinu og á bestasta hundinn í heiminum hann Mola sem er Chihuahua
4. Fjölskyldan mín skiptir mig miklu máli og vil ég alltaf eiga góð samskipti við hana
5. Ég elska að hafa kósý kvöld með Davíð mínum heima þar sem við horfum á bíómynd og nöslum einhvað
6. Ég er hálfgerður Ameríkani í hjartanu og hlakka til að flytja út til Bandaríkjanna í byrjun árs 2009
7. Ég srefni á að læra eins mikið og ég get um hunda og gera það að æfistarfi mínu
8. Góðir traustir vinir skipta mig miklu máli og að eiða tíma með þeim. Mitt mottó er frekar færri vini en trausta en fleiri ekki traustsins verða.
Að lokum langaði mig bara að segja að við Davíð höfum verið að velta því fyrir okkur að ég fari út til Flórída í 3 mánuði að læra Hundasnyrtinn svo ég sé búni að læra einhvað þegar við flytjum þannig að ég geti byrjað að vinna við það þegar við flytjum. Hugsunin núna er að fara í byrjun Janúar og vera fram í lok Mars, langur tími að vera frá Davíð mínum og Mola mínum en ég tel þetta vera gott tækifæri auk þess sem það hjálpar til að vera í Bandaríkunum í lengri tíma út af grænakortinu. Ég yrði þá alein í íbúðinni úti en ég ætla að reyna hvað mest að fá fólk til að koma í heimsókn til mín þá meina ég pabba og mömmu, Hlynsa bróssa og Dísu, Davíð auðvita og tengdó.
Kv Fjóla ;)
Thursday, August 09, 2007
3 ár
Saturday, August 04, 2007
Sunday, July 29, 2007
Sweeney Todd og Johnny Depp í sama pakka gerist ekki betra!
Jæja gott fólk nú fer að stittast í það að ég fái tvo uppáhalds mennina mína (fyrir utan Davíð ;)) Sweeney og Jhonny í sama pakkanum í nýrri mynd Tim Burton Sweeney Todd sem er byggð á söngleik Stephen Sondheim. Þessi söngleikur er minn allra allra uppáhalds ég get ekki fengið nóg af honum frá því hann var settur upp í óperunni fyrir 2 eða 3 árum síðan.
Friday, July 27, 2007
Grill í kvöld
Á laugardagsmorguninn er okkur Davíð svo boðið í alvöru amerískan morgunmat mðe pönnukökum, eggjum, backoni og name it bara svo langar okkur að stefna að því að fara í göngu upp á Esjuna seinna um daginn þannig að það er eins gott að veðrið verði gott. Pabbi og mamma koma heim á sunnudagsmorgun og ætla ég og Hlynsi að fara að ná í þau og ætli Moli fái ekki að koma með líka ;).
Kveð að sinni
Fjóla Dögg
Monday, July 23, 2007
Bráðum....næstum ;)
Wednesday, July 18, 2007
Myndir frá Veiðileysu
Moli að leika við frekjuna hana Mussajef en hann stóð sig eins og hetja þrátt fyrir að hún sé miklu stærri en hann
Ég og Moli hjá leifum af hvalshræi en það hefur verið þarna að rotna frá því einhverntíman fyrir desember 2006 :Þ oj
Ég að stanga úr tönnunum með rekavið ;9
Moli var svo þreyttur eftir daginn að við gátum leikið okkur með hann t.d. brettum við upp á varirnar þannig að tennurnar sáust
Moli og Amor algjörar dúllur og svo góðir saman
Ég tók ákvörðun um að færa Veiðileysu ögn og blés henni til hliðar
Moli prins með náttúruna að baki
Davíð töffari með Molan sinn í göngu upp að fossinum
Ég og Moli með fossinn í bakgrunn
Moli að hlaupa niður kindastíginn
Moli steinsofandi á búrinusínu í bílnum á leiðinni heim sæll og ánægður
Takk fyrir mig
Kveðja Fjóla, Davíð og Moli
Tuesday, July 17, 2007
Þá er það ákveðið :D
Jæja ég og Davíð erum búin að ákveða hvernig bíl við ætlum að kaupa þegar við flytjum út. Það dugar ekkert minna en Ford Mustang fyrir liðið. Þar sem maður er nú að fara að búa í USA verður maður að vera með Bandarískan bíl er haggi? Við erum búin að reikna út að ef við værum að fara að kaupa okkur einn slíkan núna og með viðmiðunina 400.000 kr gætum við fengið árgeð 2001 sem er mjög gott. Þessir bílar hérna heima árgerð 1997-1999 eru ekki að fara undir 7-800.000 kr. Þannig að þið sjáið að árgerð 2001 væri að fara á svona 1,5-2 millur auðveldlega.
Jæja ég hef það ekki lengra að sinni ætla að skella inn myndum úr Veiðileysu sem fyrst en þangað til
bbbbblllleeeeessssóóóóóóó
Tuesday, July 10, 2007
Veiðileysa um helgina :D
Annars er það að frétta af okkur að ég fann dog grooming skóla á Flórída sem er eingöngu 3 mánaða nám þrisvar í viku og líst mér ekkert smá vel á það. Ég myndi læra svona beisik atriði en það er einmitt það sem ég er að leistast eftir þar sem ég vildi bara læra helstu aðferðir við snyrtingu og þá sérstaklega reitun eða stripping þar sem ég er að fara að fá mér Griffon ;). Annars ef mér finnst þetta gegjað þá á ég alveg öruglega eftir að bæta bara við mig því sem vantar uppá framhaldið. Ég er nýlega búin að fá mail hjá konu sem er að kenna við skólan og hún hljómaði mjög spennt að fá að hitta mig og vildi að ég kíkti og skoðaði skólan þegar ég kæmi í september og er ekkert nema gott um það að segja ;).
Ég fann líka hundaþjálfara skóla á netinu sem heitir Animal behavior Collige og hann er bara draumur. Fyrstu árið allavegana er bara í gegnum netið að undanskildum í lok náms að minsta kosti 10 tímum í sjálfboðavinnu hjá Kennelum þar sem ég á að æfa það sem ég hef verið að lesa mig til um á hundum sem eru heimilislausir og þá má nefna klikker og aðrar beisik æfingar mmmmmmjjjjjjjjööööööööööögggggggg spennandi ;D. Eftir það bóklega þá er komið að verklega mðe hundaþjálfurunum og vá ég bara get ekki beðið.
Ég hef þetta ekki lengra að sinni var að fá sms frá Kristínu þar sem hún sgaði kem eftir 5 mín ;).
Ykkar Fjóla
Friday, July 06, 2007
Wednesday, July 04, 2007
Elsku besta vinafólk
Elsku bestu vinir og ættingjar hrúiði nú á mig tölvupóstföngunum ;)
Kv Fjóla og Davíð



