Sunday, July 29, 2007

Sweeney Todd og Johnny Depp í sama pakka gerist ekki betra!

Jæja gott fólk nú fer að stittast í það að ég fái tvo uppáhalds mennina mína (fyrir utan Davíð ;)) Sweeney og Jhonny í sama pakkanum í nýrri mynd Tim Burton Sweeney Todd sem er byggð á söngleik Stephen Sondheim. Þessi söngleikur er minn allra allra uppáhalds ég get ekki fengið nóg af honum frá því hann var settur upp í óperunni fyrir 2 eða 3 árum síðan.
Ef þið hafið ekki séð þennan söngleik þá spir ég bara... hvað hafið þið verið að gera með tíman ykkar eiginlega?
Ég get allavegana sagt að ég yða í skinninu eftir þessari mynd og ég veit að hún verður stórkosleg á allan hátt. Njótið myndana.


Fjóla Dögg

Friday, July 27, 2007

Grill í kvöld

Jæja þá er maður bara að fara í mat til Jóns og Riss í kvöld í nýju íbúðina þeirra. Bergur úr vinnunni okkar ætlar að koma með kærustunni sinni þannig að það verður bara mjög spenna. Hlakka til að fá góðan mat og spila og tala saman um hvað sem okkur dettur í hug.
Á laugardagsmorguninn er okkur Davíð svo boðið í alvöru amerískan morgunmat mðe pönnukökum, eggjum, backoni og name it bara svo langar okkur að stefna að því að fara í göngu upp á Esjuna seinna um daginn þannig að það er eins gott að veðrið verði gott. Pabbi og mamma koma heim á sunnudagsmorgun og ætla ég og Hlynsi að fara að ná í þau og ætli Moli fái ekki að koma með líka ;).

Kveð að sinni
Fjóla Dögg

Monday, July 23, 2007

Bráðum....næstum ;)


46 daga þangað til við förum til Flórída :D YYYYYYYYEEEESSSSSSSS!!!!!!!!!!!!
Er að fara með Marisu að skoða ketlinga ógó sætir.


Blessó

Wednesday, July 18, 2007

Myndir frá Veiðileysu

Þá er frábæra helgin okkar búinn og myndaafraktur ferðarinnar kominn inn í tölvuna.
Njótiði vel.

Moli að leika við frekjuna hana Mussajef en hann stóð sig eins og hetja þrátt fyrir að hún sé miklu stærri en hann


Ég og Moli hjá leifum af hvalshræi en það hefur verið þarna að rotna frá því einhverntíman fyrir desember 2006 :Þ oj

Ég að stanga úr tönnunum með rekavið ;9


Moli var svo þreyttur eftir daginn að við gátum leikið okkur með hann t.d. brettum við upp á varirnar þannig að tennurnar sáust


Moli og Amor algjörar dúllur og svo góðir saman


Ég tók ákvörðun um að færa Veiðileysu ögn og blés henni til hliðar


Moli prins með náttúruna að baki


Davíð töffari með Molan sinn í göngu upp að fossinum


Ég og Moli með fossinn í bakgrunn



Moli að hlaupa niður kindastíginn


Moli steinsofandi á búrinusínu í bílnum á leiðinni heim sæll og ánægður

Takk fyrir mig

Kveðja Fjóla, Davíð og Moli

Tuesday, July 17, 2007

Þá er það ákveðið :D


Jæja ég og Davíð erum búin að ákveða hvernig bíl við ætlum að kaupa þegar við flytjum út. Það dugar ekkert minna en Ford Mustang fyrir liðið. Þar sem maður er nú að fara að búa í USA verður maður að vera með Bandarískan bíl er haggi? Við erum búin að reikna út að ef við værum að fara að kaupa okkur einn slíkan núna og með viðmiðunina 400.000 kr gætum við fengið árgeð 2001 sem er mjög gott. Þessir bílar hérna heima árgerð 1997-1999 eru ekki að fara undir 7-800.000 kr. Þannig að þið sjáið að árgerð 2001 væri að fara á svona 1,5-2 millur auðveldlega.
Jæja ég hef það ekki lengra að sinni ætla að skella inn myndum úr Veiðileysu sem fyrst en þangað til

bbbbblllleeeeessssóóóóóóó

Tuesday, July 10, 2007

Veiðileysa um helgina :D

Þá er aðeins 2 dagar og 21 tími þangað til ég, Davíð og Moli skellum okkur í Veiðileysu með Sveinbyrni og Guðlaugu Maríu þar sem við munum svo hitta fyrir ættingja Davíðs. Ég er svo tilbúin að fá að taka þriggja daga frí frá vinnu til að slappa af í tjaldi í góða veðrinu, spila, veiða, tala saman og bara það sem manni dettur í hug.
Annars er það að frétta af okkur að ég fann dog grooming skóla á Flórída sem er eingöngu 3 mánaða nám þrisvar í viku og líst mér ekkert smá vel á það. Ég myndi læra svona beisik atriði en það er einmitt það sem ég er að leistast eftir þar sem ég vildi bara læra helstu aðferðir við snyrtingu og þá sérstaklega reitun eða stripping þar sem ég er að fara að fá mér Griffon ;). Annars ef mér finnst þetta gegjað þá á ég alveg öruglega eftir að bæta bara við mig því sem vantar uppá framhaldið. Ég er nýlega búin að fá mail hjá konu sem er að kenna við skólan og hún hljómaði mjög spennt að fá að hitta mig og vildi að ég kíkti og skoðaði skólan þegar ég kæmi í september og er ekkert nema gott um það að segja ;).
Ég fann líka hundaþjálfara skóla á netinu sem heitir Animal behavior Collige og hann er bara draumur. Fyrstu árið allavegana er bara í gegnum netið að undanskildum í lok náms að minsta kosti 10 tímum í sjálfboðavinnu hjá Kennelum þar sem ég á að æfa það sem ég hef verið að lesa mig til um á hundum sem eru heimilislausir og þá má nefna klikker og aðrar beisik æfingar mmmmmmjjjjjjjjööööööööööögggggggg spennandi ;D. Eftir það bóklega þá er komið að verklega mðe hundaþjálfurunum og vá ég bara get ekki beðið.
Ég hef þetta ekki lengra að sinni var að fá sms frá Kristínu þar sem hún sgaði kem eftir 5 mín ;).

Ykkar Fjóla

Friday, July 06, 2007

Orkudrykkur

Ég þarf að fá mér einn svona...

Wednesday, July 04, 2007

Elsku besta vinafólk

Þar sem ég, Davíð Moli og verðandi hvolpur erum að fara að flytja út til bandaríkjana viljum við reyna að fá tölvupóst fang hjá öllum. Endilega ef þú sérð þetta innleg og hefur áhuga á að halda sambandi við okkur, sem við viljum gera, sendu mér línu á fjola@isl.is með tölvupóstfanginu þínu og við munum senda þér p´sot með upplýsingum um okkur þegar við flytjum.

Elsku bestu vinir og ættingjar hrúiði nú á mig tölvupóstföngunum ;)

Kv Fjóla og Davíð

Tuesday, July 03, 2007

Ég er gúmmí björn...

Þetta er það sætasta sem ég hef séð í langan tíma.
Njótið vel.....